Stjarnan - 01.03.1921, Side 4

Stjarnan - 01.03.1921, Side 4
36 STJARNAN Eg skildi bara óglögt, aö eg í raun og veru var hrygg yfir aö sjá Drottin minn og Frelsara, Jesús Krist. Var það vegna þess, að eg skammaðist mín fyrir liann, eða var þar eitthvað við mig, sem eg skammaðist mín fyrir? Smámsaman áttaði eg mig þó og sagði; “lierra, þú vi!t heilsa foreldrum mín- um?” •— “Já, gjarnan það, Mable.” En á meðan hann fylgdi mér til þeirra, bætti hann við: ‘‘En eg er kominn til að vera með þér og þínum ungu vinum í kvöld, því eg heyrði þig tala um það í gær- kvöld á kristilegri samkomu, hve dýrðlegt það hlyti aö vera, að liafa mig ávalt hjá sér.” Aftur roðnaði eg við að hugsa um samkomu þá, er hann mintist á. Eg mundi hafa veriö ósegjanlega hamingju- söm við aö sjá hann þar, en hvers vegna var eg það ekki í kvöld? Eg fylgdi honum til foreldra minna og tilkynti þeim hver hann væri. Það var eins og þeim hnykti báðum við, en faðir minn náði sér brátt, bauð honum að setj- ast og bætti við, að það væri óvanalegur 'heiður, sem hann veitti þeim. Eftir langa þögn sagði faðir minn afsakandi: “Mable dóttir mín, sem er mjög niður- sokkin í nátn sitt, lifir tilbreytingarlitlu lífi, og nýtur næstum því engra skemt- ana. Þess vegna hefir hún boðið heim nokkrum ungum vinum til að taka þátt í ofurlítilli fjörgandi iskemtun, — að vissu leyti góð tilbreyting. Þessir vinir hennar eru va’dar manneskjur, og mað- ur verður vist að kalla þetta meinlausa skemtun og. leyfilega dægrastytting, þótt kirkjan líti nú mismunandi á það.” Á meðan að faðir minn bar alt þetta fram sem einskonar vörn, fann eg brenn- •andi roða breiða sig yfir alla ásjónu mína af skömm yfir mínum kæra föður og sjálfri mér. Hvers vegna var faðir minn að afsaka og verja þaö, sem 'hann ávalt hafði álitið vera sjálfsagt? Hversu tómt og marklaust virtist það þó alt vera. Vissi Jesús ekld, að nám mitt ekki var svo nauösynlegt, og að eg gat verið tímum sarnan 3 samkvæmum, já stundum alt kvöldið? Þegar faðir minn, sem var órór, vildi gjarnan hjálpa mér úr vandræðum mín- um, sagði hann: “Eg er hræddur um, að vér getum ekki látiö unga fólkið vera lengur einsamalt, og ekkert er mér kærara, en að herra minn Jesús vildi koma með mér inn í Iestrarsal minn og tala þar við mig.” “Nei,” sagði Jesús. “Mab!e hefir oft beðið mig að koma, og nú er eg kominn hingað í kvöld, sérstaklega til að vera með henni. Viltu kynna mig vinum þínum, Mable? Suma þeirra þekki eg, en sumir þeirra eru mér ókunnir.” Aftur varð eg vör við hinn óþæilega roða stíga upp i kinnar mér. Hvers- vegna gat eg ekki sagt: “Með mestu á- nægju, kæri herra Jesús?” Vegna þess, að eg þorði ekki að nota þetta vanalega, en ósanna viðhafnarsvar við hann. Þess vegna svaraði eg honum: “Já, herra, ef þú óskar þess.” Eg leiddi hann fyrst til nokkurra, sem voru meðlimir safnaðarins. En enginn þeirra var eins glaður, eftir aö liafa heilsað honum, eins og hann var áður. Andlitin skiftu litum, sumir reyndu til að komast burt úr salnum. í raun og véru virtist það þannig, eins og þeir, sem tilheyrðu söfnuðinum, viklu síöur heilsa Jesú heldur en þeir, sem ekki kölluðu sig trúaða. Einn af safnaðarlimunum kom til mín og spurði: “Á eg að biðja hljóð- færaflokkinn að spila sálma en ekki danslög?” En Jesús horfði hvast á okk- ur bæði og spurði: “Hvers vegna þá það ?” Aörir stungu upp á, að vér syldd- um breyta hinni fyrirhuguöu dagskrá og biðja Jesúm að halda ræðu fyri'r oss. Aftur mættu oss þessi rannsakandi augu og spurningin: “Hvers vegna ætti nærvera mín að trúfla fyrirætlanir yðar ?” Þegar eg nú haf ði leitt Drottin vorn Jesúm til allra, og enginn vissi hvað úr skyldi ráða, sneri hann sér að mér og sagði: “Þaö var áform yðar að dansa,

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.