Stjarnan - 01.03.1921, Side 5

Stjarnan - 01.03.1921, Side 5
STJARNAN 37 var ekki svo? ÞaS er tími til að byrja, annars fáið þér ekki lokiö viö dagskrá yöar fyrir morgun. Viltu ekki gefa skipun um, aö hljóöfæraslátturinn byrji ?” Eg var rá'öalaus, en eitt skildi eg, aö ef samkvæmi mitt væri eins og þaö ætti aö vera, mundi nærvera lians að eins gjöra gleöina yfirgnæfanlegri. En 'hér var ekki annaö aö sjá en trufluö andlit, er skömmuöust sín við nærveru hans, er þeir kölluöu sinn bezta vin. Eoks gaf eg skipun um aö spila fyrsta danslagið. Ungi maöurinn, sem beðið haföi mig um fyrsta dansinn, kom ekki, og ekkert ann- aö par kom fram á gólfið. Hljóðfæraliðið spilaði einn dans til, og ein einn. Eg varð alveg frávita af skömm, er herra Jesús kom til mín og sagði: “Mable, gestrnir þínir virðast vera dá- lítið niðurebygðir. Hvers vegna reynir þú ekki, sem leiðtogi þeirra, að bæta úr vandræðum þeirra með því að dansa sjálf? Mundi það hjálpa nokkuð, að eg byði þér að dansa við þig?” Vandræði mín urðu alveg skelfileg, horfandi inn i hans rannsakandi augu, er læstu sig gegn um alt, hrópaði eg: “Herra, þú dansa? Þú meinar það ekki.” “Hvers vegna ekki, Mable? Ef læri- sveinar minir geta dansað, svo get eg og einnig gjört það. Þti biður mig um að vera pærstaddan á bænasamkomunum, en þú kærir þig ekki mikið um mig hér, hvers vegna ekki, barnið mitt? Hvers vegna hefir nærvera mín eyðilagt g’eði yðar? Því, þótt eg sé harmkvælamað- ur og kunnur þjáningum, vil eg ekki trufla gleði lærisveina minna. Er það mögu’egt, að þú útilokir mig frá skemt- unum þínum, Mable? Ef því er þannig farið, er það þá ekki fyrir það, að skemt- anir þínar taki tíma þinn og hugsanir það mikið, að þú enga ánægju hafir af orði mínu og nærveru minni? Þú hefir spurt, Mable: “Hvað getur það skað- að? í staðinn fyrir aö spyrja: “Hvaða gagn er að því?” “Er það Guði til dýrðar ?” Skyndilega áttaði eg mig á öllu. Yf- irkomin af sorg og fyrirdæmandi sam- vizkubiti, fleygði eg mér fyrir fætur honum, og stamaði með grátkvaldri röddu fram iðrun mína. Alt í einu með orðum þessum: “Dóttir, farðu í friði, synd þín er þér fyrirgefin”, yfirgaf hann mig. Eg vaknaði af. draumi mínum. Og nú vil eg spyrja yður, vinir: Eigum vér að fylgja dagskrá vorri í kvöld, eða eigum vér að tala saman stundarkorn um þetta: “Hvernig fáum vér gjört heim- inn betri með hegðan vorri?” Svarið var einróma “Já!” við hinni nýju uppástungu, og hún var færð í framvæmdir á fleiri nytsamlegum og góðum samomum. P. Sigurðsson þýddi.

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.