Stjarnan - 01.03.1921, Page 10

Stjarnan - 01.03.1921, Page 10
42 STJAKNAN þetta myndi verða einliver hin bezta samkoma, sem hann hefði haldiö á æfi sinni. Timinn kom og borðsalurinn var full- ur af fólki. Séra Spaulding, séra og frú Gregory skipuðu hi'ö fremsta sæti. Eft- irvænting var málu'ð á ásjónum þeirra. Kershaw dómari sat framarlega i saln- um og skamt frá honum sat herra Sev- erance ásamt Haraldi Wilson meö biblí- una í hendinni. Og auðvitaS var frú Slccum ásamt vinum búin að fá sér sæti þar sem hægt væri aS heyra og sjá alt, sem fram mundi fara. Og þó undarlega láti í eyrurn, þá kom einnig herra Conan inn í salinn. Hve ólíkur var ekki sá blær, sem hvildi yfir þessari samkomu, þeim, sem hafði hvi'.t yfir hinni fyrri samkomu séra Andersonar. Á þessum stutta tima hafði GuSs andi verkaS kröftuglega á hjörtu farþeganna, þrátt fyrir þaS að verkfærin, sem hann notaði, voru ófull- komin. Þennan dag voru bæði prest- amir og farþegarnir frjálsir orðnir eins og þéir aldrei höfðu verið áður; þvi nú voru þeir búnir að opna hjörtu sín til að meðtaka þann sannleika, sem einn getur gert mennina frjálsa. Farþegunum til mikillar undrunar og gleði byrjaði herra Mann guðsþjónust- nna með bæn. — Og önnur eins bæn hafSi aldrei heyrst í þeim sal og inundi ef ti! vill alclrei heyrast aftur. “Vor kæri himneski faðir,” byrjaði hann og var dálítill titringur í röddinni, “vér þökkum þér svo innilega á þessari stundu fyrir það, að þú hefir kallaS oss til þín. Vér þökkurn þér fyrir þá gæzku, sem þú hefir auSsýnt oss alla daga vors lífs. Vér þökkum þér fvrir vorar kæru mæSur, sem, meðan vér vor- um litil, undir þinni handleiSslu reyndu að stýra fóturn vorum á braut friðarins, kendu oss aS tilbiðja og elska þig og hlýSa þinum boðuOrSum. Og vissu'ega ert þú meiri en mæður vorar; því þú skapaðir þær og gafst oss þær. Þess vegna getum vér boriS fult traust til þin. Vér biðjum þig í dag um að veita oss viðtökur og varðveita oss í þinum mikla föðurfaðmi. Vér erum þreyttir orðnir af heiminum og hégóma hans. Taktu þess vegna á móti oss, kæri frelsari, og veittu oss þína hvíld eftir þínu eigin fyr- irheiti. Vér beygjum oss fyrir áhrif heilags anda á hjörtun vor. Kendu oss þína vegu. Teiddu oss í allan sannleik- ann. Þú verður að leiða oss og vér verðum að fylgja þér. Höfum vér ver- ið tregir áður, þá ætlum vér ekki að vera þáð í dag. BlessaSu, vor kæri Guð, þetta fólk og réttu því náðarríka hjálp- arhönd. Hjálpaðu ö'.lum, sem langar að sigrast á syndinni. ÞaS eru sum hér viSstödd, sem hafa heyrt sannleika, er i þeirra eyrum hljómar eins og hann væri nýr, og þó er það erfitt að skilja hann og ef til vill erfiðara aS fylgja honum, þá biðjum vér fyrir þeim, aS þeir megi öSlast hjálp frá þér. Leiddu oss algjör- lega út úr villumyrkrinu og veittu oss styrk til aS gera hiS góða og rétta, hvað sem það svo kostar oss, svo að vér viS enda daganna munum fá að sjá vtorar kæru mæSur aftur og að sjá þig i dýrð þinni. Heyrðu og bænheyrðu oss fyrir sakir þinna fyrirheita og fyrir sakir þarfar vorrar á þér og vér biðjum i nafni Jesú, vors dýrmæta frelsara. Amen.” Úr ýmsum áttum heyrSist amen. En þegar skipstjórinn reis á fætur — því hann var búinn að krjúpa a kné — sá- ust margir, sem færðu vasaklútana upp a'ð augunum til aS burtþerra tárin, sem streymdu ofan vangana viS hugsunina um æskudagana og hinár mörgu fögru endurminningar, sem þeir geyma hjá oss. Séra Anderson stóð upp og bjó sig undir aS byrja ræðuna, en áSur en hann hafði tækifæri, bað frú Slocum um leyfi til að segja fáein orS. “Séra Anderson,” sagði hún, “hafið þér niokkuð á móti því, að nota hina undirstrikuðu biblíu við þetta tækifæri? Meðan skipstjórinn bað, kom mér til hugar, að þetta væri nokkurs konar mæSra samkoma og þessi biblia er vissu-

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.