Stjarnan - 01.03.1921, Page 11

Stjarnan - 01.03.1921, Page 11
STJARNAN 43 icga biblía góðrar móöur. Þetta er auð- vitað persónuleg ósk, en hún getur orðiö einhverjum til gagns.” Haraldur kom meö gleöi fram með bibluna og lagöi hana á borð ne'öumanns- ins. Þannig hljómaði rödd móöur hans enn. H've satt er það ekki, að verk hinna réttlátu dánu fylgja þeim. “Vinir mínir,” byrjaði séra Anderson, “þér vitið ef til vill að eg í dag tala eft ir sérstakri beiðni. Það er sumt fólk hér í dag, sem óskar eftir að öðlast full- komnari þekkingu á sannleiká fagnað- arerindisins eins og það verður kunn- gert í sambandi við Drottins hvildardag. Og til þess að veita þess konar mönnum upplýsingu ætla eg að drepa á ýmislegt, sem ekki hefir verið leitt mönnum fyrir sjónir á þessari ferð. Og eg get ekki innleitt þetta mál betur en með því aö svara spurningu, sem einhver færði mér' síðastliðinn þriðjudag. Hljóðar hún ]>annig: “Hvað þýðir merki dýrsins í Opinb. 13: 17?” , “Eg verö að vera fáorður, þess vegna vildi eg helzt, að þér skoðið ekki þetta sem prédikun, heldur sem samkomu, þar sem hverjum manni er leyft að beina að mér spurningum, ef hann óski þess. “Eg ætla fyrst að leiða athygli yðar að því, að “dýrið”, sem nefnt er í Opinb. 13. og 17. kap., táknar jarðneskt veldi, veraldlegt herradæmi, sem er undir á- hrifum Satans og undir stjórn þeirrar kirkju, sem stríðir á móti Guði. Það táknar, samkvæmt hinum 13. kap. í Op- inberunarbókinni veraldlega valdstétt, er verður að dansa eftir höfði kaþólsku kirkjunnar, sem í “fjörutíu og tvo mán- uði” spámannlegan tírna (1260 virkileg ár, frá 538 til 1798 e. Kr.) “var veittur munnur til að tala stóryrði og guðlastan- ir”, og “því var lofað að herja á 'heilaga og sigra þá”. fSjáið 5-7 versinj. Það var hið hræðilega vald, sem er nefnt “maður syndarinnar” og “sonur glötun- arinnar”, sem settist í Guðs söfnuð, öðl- aðist vald yfir Rómaríki, innleiddi erfi- kenningarnar i staðinn fyrir kenningu bibliunnar og gjörði í sannleika tilraun til að breyta lögmáli Guðs með því að innsetja sunnudaginn í staðinn fyrir hvíldardaginn. Sjáið 2. Tess. 2:3, 4 og Dan. 7:25 og aðrar ritningargreinar. Þetta eru sögulegir viðburðir, sem allir sagn fræðingar geta sannað. “Þér getiö þess vegna séð, að “merki dýrsins” hlýtur að vera eitthvert ein- kenni páfavaldsins, sem kemur glögg- lega í ljós í þeirri mótstöðu, er það veitir Guðs fólki og hans sannleika, því það er sagt skýrum orðum í Opinb. 14: 9-11, að sá sem taki merki þetta, verði álitinn mótstöðumaður Guðs, því hann verður að tæma Guðs reiðibikar. Þetta merki viðvikur þess vegna mjög, svo alvarlegu efni, og Guð hlýtur að hafa gefið oss upplýsingu um livað það í raun og veru er. Hvað orðið sjálft snertir þýðir “merki” hið sama og “innsig’i” og “teikn”. Til dæmis lesum vér í Esek. 9:4, að sendiboði Drottins mun setja teikn á enni þeirra manna, sem þjóna Guði. Og í Opinb. 7: 3 er sagt, að 'hann muni “innsigla þjóna Guðs”. f Róm. 4:11 eru orðin “teikn” og “innsigli” notuð til að tákna eitt og hið sama. “Og hann fékk umskurnar teiknið. sem innsigli réttlætingarinnar af trú þeirri, er hann hafði”. (Tldri þýð.) “Það er nefnilega svo, að dýrið hefir merki, teikn eða innsigli og gagnstætt því stendur merki Guðs, teikn eða innsigli hans. Þeir, sem meðtaka merki, teikn eða innsigli dýrsins, verða að deyja, en þeir, sem’ hafa merki, teikn eða innsigli Guðs, munu lifa eilíflega. “En nú komum vér til þess, sem ríður á að skilja réttilega. Orðin merki. teikn og innsigli eru í ritningunni notuð ■ í sambandi við lög og stjórnarskjöh Jessabel drotning “skrifaði bréf undir Akabs nafni og setti hans innsigli fyrir það.” 1. Kon. 2j:8. Skipun Hamans um að útrýma Gyðingunum var gefin út “undir nafni Assverus konungs” og skjalið var “innsiglað með konungsins

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.