Stjarnan - 01.04.1921, Page 2
50
STJARNAN
Vaxið í náð.
Revnslutíminn stendur yfir, og engl-
ar.nir gefa gætur aS hvort vér vöxum í
náS. Hversu margir eru þeir, sem eftir
aö ha'fa viöurkent Krist, hafa breyzt 'fil
hins betra? BróSir og systir, líkist þú
Jesú meir og meir, honum, sem er hreinn
og heilagur? Geta þeir, sem með' þér
eru, séð Jesú mynd í þér? Sjá þeir, að
þú í klæöaburöi, daglegri umgengni og
öllu fram.ferði breytir eftir frelsara
vorum ?
Þaö ætti aö vera viöleitni hvers manns
að ganga á réttum vegi, svo aðrir leiöist
ekki afvega. En margir sækjast eftir að
koma þannig fram, að þeir hljóti hrós
manna. Er nokkurs virði fyrir kristinn
mann hrós og smjaður þeirra, sem bera
enga virðingu fyrir Guði og hans heilaga
orði? Sá heiður, sem kemur úr þeirri
átt, er einskis virði. Vér megum ekki
keppast eftir að vinna álit og hylli heims-
ins barna, heldur heiðra þann, sem er
þes's verður að vér gefu.m honum allar
hinar beztu og göfugustu tilfinningar
hjartna vorra. Það er göfugt takmark,
og þess vert að keppa eftir; það veitir
oss ríkulegt endurgjald, því að Guð hef-
ir lofað: “Þann, sem heiðrar mig, vil eg
heiðra.”
Ó, hversu mjög allir þurfa að fá Guðs
Anda, sem eiga nokkurn þátt í starfi
hans. Guð vill, að allir noti sem bezt
hæfileika sína og þau tækifæri, sem þeir
fá, og hafa sífelt Guðs dýrð sem augna-
mið sitt. “Vort eigið “eg” má ekki fá
y.firhönd.
Hyl þig í benjum Krists, og láta hann
koma fram, sem er ímynd Guðs dýrðar,
hinn fegursti meðal margra þúsunda.
Það er skylda allra, að nota skynsemi
sína, svo langt sem hún nær; en það eru
líka takmörk fyrir mannlegri skynsemi.
Það er margt, sem hinir gáfuðustu menn
geta ekki rannsakað til fulls og hinir
djúpvitru ekki skilið. Guðs verk og veg-
ir verða ekki skoðuð né skilið með heim-
spekis-ályktunum. Mannleg skynsemi
getur ekki ski'lið ráðsályktanir eilífs
Guðs. Guð er uppspretta allrar vizku,
sannleiks og þekkingar. Menn geta í
þessu lífi komist langt í því að; öðlast
þekkingu; en þar verður eilíft framhald,
til framfara og gleði fyrir hina endur-
leystu um alla eilífð. Menn geta nú
einungis komist inn fyrir véböndin og
byrjað að nema- En dauðlegir menn
geta ekki skilið til fuls djúp Guðs speki,
því andlegir hlutir verða andlega að
dæmast. Vér getum ekki nema að nokkru
leyti skilið almætti og vizku Guðs.
Ellen G. White.