Stjarnan - 01.04.1921, Page 13
STJARNAN
61
Herra Mann, skipstjórinn, sem var
búinn að standa upp með hinum, fekk
nú tækifæri til að segja fáein orö: “Eft-
ir að íhafa verið þvínær andlega sjón-
iaus í fimtíu ár,” byrjaði hann, “eru að
lokum augu mín opnub. Eg hélt að eg
vissi það, sem eg ekki vissi. Eg var til
dæmis íhárviss um að Jesús var búinn að
íæra hvíldina frá sabbatsdeginum yfiir
á sunnudag, og að eg, hans vegna, var
skyldugur til að ihalda hinn fyrsta dag
vikunnar. En með því að rannsaka
málið, komst eg að þeirri niðurstöðu, að
eg var búinn að lifa í þeirri trú sökum
vanþekkingar á Guðs orði. Krisfur hef-
ir aldrei breytt hvíldardeginum, en
páfavaldið hefir. Þar eð eg er mótmæl-
andi, trúi að lögmál Guðs sé skuldbind-
andi og tek biblíuna sem mælisnúru fyr-
ir trú og breytni, get eg ekki annað en
af öllu hjarta meðtekið þennan sann-
leika, sem eg er búinn að finna. Héðan
t frá mun hver maður þekkja mig sem
hvildardagshaldara. Guð hjálpi mér, eg
get ekki annað. Þetta er hin síðasta
ferð mín sem skipstjóri.”
Þar næst vitnuðu séra og frú Greg-
ori einkanlega um hina undraverðu
björgun.
Þann dag komu seytján manneskjur
sér saman um að þjóna Guði samkvæmt
því nýja ljósi, sem þeim hafði verið
veitt. Hin undirstrikaða biblía var bú-
m að gjöra verk sitt og Guð var búinn
að svara 'bænum móður Haraldar.
Fleiri ár eru nú liðin og hið góða verk
heldur enn áfram. Haraldur Wilson
sneri aftur til San Francisco, þar sem
hann með styrk frá herra Severance
stundaði nám. Eftir að hann útskrifað-
ist af skólanum fór hann að boða fagn-
aðarerindið og. var seinna meir sendur
sem trúboði til ókunnugs lands, þar sem
hann hefir gjört gott og mikið starf
fyrir Guð.
Herra Mann stofnaði sjómannahæli
og þar var sagan um Harald Wilson og
hina undirstrikuðu biblíu oft sögð og
hafði hún ávalt áhrif á áheyrendurna
til betra. Margir ungir menn urðu þjón-
ar Krists eftir að hafá hlustað á þessa
sögu og séð hina undirstrikuðu biblíu.
Séra Spaulding og séra Gregory
fylgdu, samkvæmt sannfæringu sinni,
kallinu og byrjuðu að prédika i stórborg-
um í Austurálfunni. Hefir þeim hepn-
ast ágætlega að leiða marga syndara til
þess Guðs lambs, sem ber synd heims-
ins. Lausnarbeiðni séra pauldings leiddi
til þess, að tveir af íhinum fyrri trú-
bræðrum hans fylgdu dæmi hans og fóru
a ganga í ljósi Guðs orðs.
Herra Conan var stjóri mikillar og
kristilegrar stofnunar. . Hann er mjög
andlega sinnaður maður. Það er mögu-
legt að taka kristindóminn með út í hið
daglega verk sitt.
Hve undursamleg er ekki forsjón
Guðs! Látum oss læra að hin dýrmætu
fyrirheit hans og orð aldrei bregðast.
Drottinn heyrir innilegar bænir guð-
hræddrar móður og svarar þeim.
ENDIR.