Stjarnan - 01.04.1921, Blaðsíða 14

Stjarnan - 01.04.1921, Blaðsíða 14
Ó2 STJARNAN Heilbrigði og bindindi. Hve nytsamleg matarsk'omtunin reynd- ist fyrir Danmörku. Norska blaöiS, Evangeliets Sendebud, flutti nýlega eftirfarandi grein um áhrif matarskömtunarinnar á heilsufar manna í Danmörku. ’Hinn þekti danski Dr. Hind'hede hef- ir lagt fram opimberlega sk}?rslu til inn- anríkisráSuneytisins um hvaSa afleiS- ingar matarskömtunin 'hafi haft í Dan- mörku. ASal afleiSingar matarskömtunarinn- ar, segir Dr. Hindhede, koma fljótlega í Ijós í þessu, aS dauSsföllin frá i. okt. 1917 til 1. okt. 1918 voru 2,1 lægri af þúsundi, í öllu landinu, en þau nokkru sinni hafa áSur veriS, og þaS jafnvel á góSum tímum. Og 2,1 af þúsundi af 3 miljónum verSur 6,300. Svo mörg mannslif virSist þá matarskömtunin hafa sparaS. ÞaS er hægt aS gera grein fyr- ir þessum árangri, en þar er annar árang- ur ómælanlegur, nefnilega þessi, hve mikil Iheilsubót hefir fengist i heild sinni, sem matarskömtunin aS sjálf- sögSu hefir veitt fjölda mörgum.” Þetta er þá mergur málsins viS allar hinar mörgu tölur, töflur og matarkort. Þetta skýrir Dr. Hindhede auSvitaS betur viS ýms viSeigandi tækifæri af og til. Hindhede segir til dæmis í grein, er hann kallar “Danmörk sem náttúrlegt heilsuhæli.” “Ef meSlimir liins danska þjóSfélags lifSu allir eSlilegu og heilsusamlegu lífi væru þessar merkilegu afleiSingar mat- arskömtunarinnar óskiljanlegar, En ef viS aftur á rnóti skoSum vorra tíma manneskjur, sem ofalda, óhófssjúka sjúklinga, verSur auSveldara aS ráSa gátuna. Alla þessa sjúklinga höfum vér nú í meir en ár sett, ekki alla viljuga, í einskonar matræSis skóla. ÞaS mætti meS öSrum orSum líta á Danmörku á tímabili matarskömtunarinnar, sem mik- iS og eSlilegt heilsuhæli. Vöxturinn á dauSsföllum á meSal kvenþjóSarinnar af ihinum ýmsu sjúk- dómum, getur ef til vill átt sína rót aS rekja til þeirra eftirsóknar eftir aS líkj- ast karlmönnunum. Þegar kvenfólkið vill líkjast karlmönnum, þá er þaS oft jþví miður mannanna slæmu vanar (veit ingahú^líf, áfengis og tóbaksnautn, o.s. frv.), sem þær fyrst tileinka sér. Dr. Hindihede kemst aS þeirri niður- stöðu, aS bara í Kaupmannahöfn líti út fyrir, aS bannið og matarskömtunin hafi sparað 13001—1400 mannslíf. Áfengi og tóbak eru auSvitaS heil- brigSisins verstu óvinir. Hinar æsandí og Iheilsuspillandi nautnir í matarhæfi, eru þó ekki þar með upptaldar. Hverskonar “hjartaeitur” er þaS, sem hið veikara kyn stöðugt verSur sólgnara í, og sem matarskamturinn takmarkaði eða tók frá því? spyr Hindhede. Það er kaffiS. Frá 1900 til 1916 hefir notk- un þess stigiS frá 3,6 til 6,0 kg. á mann á ári eSa 17 gröm á dag. Því næst ger- ir Hindhede ráS fyrir aS hin danska kona noti 25—36 centigrama skamt af “coffein” á dag. Coffein er eiitur, sem iæknarnir sjaldan leyfa meira en 20 centigröm af. 50 centigröm eru álitin hættuleg. Hindhede álítur það ýkjur aS vera þegar sagt er, aS bindindislýðurinn svalli í ikaffi, en hann sér þó aS drukkiS er of mikiS af því. í athugasemd nokkurri bætir hann viS, aS “ihvort maðurinn skað- ar sig sjálfan meir á hóflegri áfengis- r.autn eða á mikilli kaffinotkun, veit eg ekki, en eg veit, að áfengisnautnin fyrir mannfélagiS í heild sinni, er 10 sinnum verri en kaffið.” P. SigurSsson fþýddij.

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.