Stjarnan - 01.04.1921, Blaðsíða 15
STJARNAN
63
TJARNAN
kemur út mánaöarlega.
Útgefendur : The Western Canadian Union Conference of S.D.A .
Stjarnan kostar $1.50 um árið i Canada, Bandaríkjunum og á Islandi
fBorgist fyrirfram).
Ritstjóri og Ráðsmaður : DAVIÐ GUÐBRANDSSON
Skrifstofa: 302 Nokomis Building, Winnipeg, Manitoba, Canada.
Talsími: A-4211
Hiö ameríska trjáplöntunarfélag sendi
íyrir stuttu 12 miljónir ungtrjáa tii
Frakklands til aS gróSursetja á þeim
stöðum, sem eyöilagðir voru í stríöinu.
Meðan ströið stóð fækkaði fólkinu
á Frakklandi um fjórar miljónir.
í California hafa þeir núna nýskeð
íundið beinagrindur af mönnum, sem
hafa verið meir en sjö fet á hæð.
Ameriskum biómafræðingi hefir hepn-
ast, eftir margra ára tilraunir, að fram-
lc iða litaða 'bómull. Ljós og dökkbrún
og Ijós og dökkgræn eru litirnir, sem
hann hingað til hefir framleitt. Hann
er nú að reyna að framleiða svarta
bómull.
FRÉTTIR.
Fyrir nokkru héldu 250 kínverskir
stúdentar, sem stunda nám við banda-
riskan háskóla, fund til að mótmæla
þeim tilraunum, sem amerískir ölgjörða-
menn gjöra til að selja vörur sínar í
Kína. Göfugar bindindishetjur ættu að
reyna að handtaka Bakkus áður en hann
kemst yfir Kyrrahafið.
Á Englandi ætla þeir að nota aðfallið
og útfalið til að framleið,a rafmagn, sem
svo verður notað til að knýja ýmsar
vélar.
Glæpir kostuðu Bandaríkin árið 1920
ekki færri en átta biljónir dollara.
Fyrir skömmu dó maður í Kína, sem
var hundrað ára gamall. Þegar hann
fæddist, var ekki einn einasti kristinn
maður í Kína. Þegar hann var 35 ára
gamall voru fimm kristnir trúboðar í
landinu. Fimtján árum seinna voru
fimtíu kristnir í landinu. Þegar hann
dó, voru meir en tvö 'hundruð þúsund
kristnir í því heiðna landi.
Franskir og belgiskir herforingjar eru
að reyna nýuppfundna fallbyssu, sem
þeir halda muni fleygja kúlum 200 ensk-
ar mílur. -----------------
Lögregluþjónn vestur í California var
svo heppinn, að finna fimm dollara seð-
il á stræti einu og auglýsti svo í blöð-
um borgarinnar, að hinn rétti eigandi
gæti komið til hans og fengið pening--
ana. Ekki færri en 236 persónur sögð-
ust vera eigendur hinna fundnu pen-
inga.