Stjarnan - 01.03.1923, Page 13

Stjarnan - 01.03.1923, Page 13
STJARNAN 45 Bréfin til Safnaðanna. 5. bréf: — “Og engli safnaðar- ins í Sardes skalt þú rita: Þetta segir sá, sem hefir þá sjö anda Guðs og stjörnurnar sjö. Eg þekki verkin þín, að þú lifir aö nafn- inu, en ert dauöur. Vakna þú og styrk hið annað, sem ætlar að deyja, því að eg hefi eigi reynt verk þín fullkomin að vera fyrir Guði m-ínum. iMSnst þú þvi, hvernig þú tókst á móti og heyrð- ir, og varðveitt það og gjör iðrun. Ef þú nú vakir ekki, mun eg koma eins og þjófur, og þú munt alls ekki vita, á hverri stundu eg kem yfir þig. En . þú átt fáein nöfn í Sardes, sem ekki hafa saurgað klæði sín, og þeir munu ganga íjieð þér í hvitum klæðum, því þeir eru maklegir. Sá er sigrar, hann skal skrýSast hvitum klæðum, og eigi mun eg afmá nafn hans úr lifsbókinni, og eg mun kannast við nafn hans fyr- ir föður minum og fyrir englum hans. Hver sem eyra hefir hann heyrir, hvað andinn segir söfnuðinum.—Op. 3: 1-6. “Sardes” þýðir gleðisöngur, og bréf- ið til Sardes lýsir ástandi kitkjunnar — mótmælanda kirkjunnar ,eða kirkn- anna, eftir að ofsóknunum linti, og trú- frelsi, mentun og ýmsar nýjar hreyf- ingar, er leystu öll bönd, tóku að ryðja sér til rúms. Næsta bréf á undan — 4. bréfið tók yfir allar sortaaldirnar, og þó meira, tók yfir páfavaldsins afmælda tímabil, sem samkvæmt spádómum Bib- líunnar á mörgum stöðum, var 1260 ár, og náði frá árinu 538 e. Kr. til 1798, og skömmu áður var það, að ofsókn- unum linti og trúfrelsi fékst. Á með- an að ofsóknirnar þrengdu að, viðhélst andlega lífið hjá söfnuðinum, og hann er þá ámintur um, að 'halda fast því sem hann hafi, þar til Kristur komi. Spámaðurinn Daníel segir í 11. kap. 33—35. v. “Þeir menn, sem þekkja Guð sinn, munu stöðugir standa og drýgja dáð. Hinir vitru meöal lýðsins munu kenna mörgum hyggindi, en um hrið munu þeir falla fyrir sverði báli, fyrir herleiðingum og fjárránum . En þar sem nokkrir af hinum vitru falla, þá er það til að skýra, reyna og hreinsa aðra á meðal þeirra, alt til endalokauna, því hinn ákveðni tími er enn ekki liö- inn ” Hinn “ákveðni tími”, sem hér er átt við, og ná mundi til endalokanna, er þessi ákveðni tími páfavaldsins: 1260 ár, sem enduðu árið 1798. Alt fram að þeim tíma mundu ofsóknirnar halda áfram og trúarbragðastríðin, en það miðaði, eins og spámaðurinn .þarna segir, ti.1 að “skýra, reyna og hreinsa" kristnina, en þegar þetta var á enda, þá varð að vísu mikill fögnuður “gleði- söngur” hjá leifunutn, en hvað segir svo “sonur Guðs” um þessar fagnandi leyfar: “Eg þekki verkin þín, að þú lifir að nafninu, en ert dauSur”. Mjög alvarleg yfiriýsing. En hún hæfir ein- mitt hinni köldu og dauðu kristni, sem lifði mest að nafninu, eftir að franska stjórnarbyltingin varð til þess að ryðja ýmsum stefnum bfaut, er kæfði svo meir og meir hið sanna andlega líf kristninnar. iÞá rann upp tími sá, sem kirkjusagan kallar: “tími vantrúar- innar,” - eða “timi! ,Ratíonalism|ans”. Latneska orðið “ratio”, sem þessi hreyf- ing er kend við, felur í sér þá hugsun. að láta skynsemina dætna milli þess sem er satt og ósatt. Þessi kalda van- trúarstefna, segir kirkjusöguritarinn Birger Hall, fór eins og “drepsótt yfir löndin.” Engin furða þótt hann, seni rannsakar nýrun og hjörtun, segi um þetta tiimabil, að kristnin lifi að nafn- inu, en sé dauð. ‘Söfnuður þessi er ámintur um, að “vakna” og styrkja það, sem ætli að deyja, og minnast þess hvernig hann hafi beyrt sannleikann og tekið á móti. Það var einmitt það, sem þessi kirkja

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.