Fréttablaðið - 21.11.2018, Page 10

Fréttablaðið - 21.11.2018, Page 10
Bosnía og Hersegóvína Nýir með- limir í þriggja manna forsetaráði Bosníu og Hersegóvínu voru settir í embætti í gær. Óhætt er að segja að lítill samhljómur sé innan hins nýja forsetaráðs. Fyrirkomulagið í Bosníu er þann- ig að þrír menn eru kjörnir í forsæt- isnefndina og velur hvert þjóðar- brot í ríkinu sinn fulltrúa. Það er að segja Bosníu-Serbar, Bosníu-Króatar og Bosníumúslimar. Forsetarnir þrír skipta með sér völdum. Milorad Dodik heitir fulltrúi Bos- níu-Serba í forsetaráðinu. Sá hefur lengi rætt um að serbneski hluti Bosníu stofni nýtt, sjálfstætt ríki og er serbneskur þjóðernissinni. Hann er, samkvæmt Reuters, hliðhollur Rússum, andvígur NATO en segir aðild að ESB í forgangi. Bosníu-Króatinn Zeljko Komsic og Bosníumúsliminn Sefik Dzafer- ovic eru aftur á móti sagðir hlynntir Atlantshafsbandalaginu og fjölþjóð- legri Bosníu og Hersegóvínu. – þea Átök á meðal forseta Bosníu Komsic, Dodik og Dzaferovic. NorDicphotos/AFp spánn Manuel Marchena, spænskur hæstaréttardómari, hefur hafnað því að taka við embætti forseta hæstaréttar og spænska dómskerfis- ins alls. Sósíalistaflokkurinn, sem er í minnihlutastjórn, og Lýðflokkur- inn, langstærsti flokkur stjórnar- andstöðu, höfðu samið um að hann fengi sætið og var það samkomulag hluti samkomulags um skipan í embætti innan dómskerfisins. Ákvörðunina tók Marchena eftir að spænskt vefrit lak WhatsApp- skilaboðum Ignacios Cosidó, þing- flokksformanns Lýðflokksins í öld- ungadeildinni, þar sem fram kom að með samkomulagsgerðinni fengi flokkurinn völd yfir dómskerfinu og gæti stýrt sakamáladeild hæstarétt- ar úr bakherbergjunum. Aðskilnaðarsinnar í Katalóníu gagnrýndu skilaboðin harðlega enda eru níu þeirra nú í fangelsi, ákærðir fyrir uppreisnaráróður og uppreisn gegn spænska ríkinu, og með mál fyrir sakamáladeildinni á meðan Lýðflokkurinn beitti sér af hörku gegn aðskilnaðarsinnum. Flokkurinn var við völd síðasta haust þegar Katalónarnir voru handteknir eftir ólöglega atkvæða- greiðslu og sjálfstæðisyfirlýsingu. Marchena sagði í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér að hann hafi aldrei litið svo á að dómskerfið ætti að vera verkfæri sem stjórnmála- menn geta nýtt sér og sagðist vera sjálfstæður í störfum. En Marchena mun þó áfram stýra sakamáladeild hæstaréttar, líkt og undanfarin ár. Sex þeirra níu Katalóna sem eru í haldi sendu hæstarétti bréf í gær þar sem þess var krafist að Marc- hena myndi víkja úr því embætti. Hann var sakaður um hlutdrægni í garð Lýðflokksins og Sósíalista- flokksins og hreykti Cosidó sér af skipan hans. Pedro Sánchez forsætisráðherra sagðist í gær harma ákvörðun March ena. – þea Hafnar forsæti hæstaréttar vegna skilaboðaleka Lýðflokksmanns Manuel Marchena hæstaréttardómari sést hér á miðri mynd. FréttAblAðið/EpA 1299 kr.kg Þakkargjörðarfuglinn, veislu kjúklingur 999 kr.pk. Sætkartöflumús, 500 g 1390 kr.stk. Kalkúnasósa með salvíu, 500 ml Afgreiðslutímar á www.kronan.is Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl. Á a ð b jó ða til veislu? Þessi er stór 2,5-3 kg kronan.is/ Takk Allt fyrir einfalda og góða þakkargjörðar veislu 599 kr.pk. Rauðkál heimagert, 250 g Tyrkland Mannréttindadómstóll Evrópu hefur skipað yfirvöldum í Tyrklandi að leysa Selahattin Demir- tas, fyrrverandi forsetaframbjóðanda og leiðtoga HDP-flokks Kúrda, úr haldi. Demirtas hefur verið í fangelsi síðan í nóvember 2016, sakaður um tugi brota og á yfir höfði sér allt að 142 ára fangelsisdóm að því er BBC greindi frá. Upphafleg ástæða fangelsunar Demirtas var ákæra fyrir að beina áróðri að hersveitum er berjast gegn Tyrkjum og að sýna rannsakendum ekki samstarfsvilja. Síðan þá hefur hann verið sakaður um að leiða hinn útlæga Verkamannaflokk Kúrda (PKK) sem Tyrkir flokka sem hryðju- verkasamtök, og um að hvetja til ofbeldis og skipuleggja ólögleg mót- mæli. Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að þótt ásakanirnar gegn Demirtas væru byggðar á rökstudd- um grunsemdum hefðu Tyrkir brotið á réttindum hans. Meðal annars með því að leiða hann ekki tafarlaust fyrir dómara og með því að tálma þátttöku hans í kosningum. Þá voru framlengingar á gæsluvarðhalds- úrskurðum sagðar órökstuddar. „Tálmun á þátttöku hans á þingi fól í sér óréttlát afskipti af tjáningar- frelsinu og brot á rétti hans til kjörs og þingsetu. Það er hafið yfir vafa að fangelsun hans er meðal annars til þess gerð að draga úr fjölhyggju og takmarka frelsi stjórnmálaum- ræðunnar,“ sagði í tilkynningu frá dómstólnum. Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, sagði í samtali við Ana- dolu í gær að hann liti svo á að úrskurðurinn væri ekki bindandi. Demirtas sagði í yfirlýsingu að málið gegn honum væri nú „algjör- lega hrunið“. Barátta hans fyrir rétt- læti myndi halda áfram sama hvað. Mahsuni Karaman, lögmaður Demirtas, sagði eftir uppkvaðningu að hann hefði nú þegar farið fram á tafarlausa lausn skjólstæðings síns úr haldi í Ankara. „Nú þegar þessi úrskurður hefur verið kveðinn upp er ljóst að hver einasta sekúnda sem Demirtas er áfram í haldi telst til brota á rétt- indum hans.“ thorgnyr@frettabladid.is Gert að leysa Kúrda úr haldi selahattin Demirtas verður þó ekki leystur úr haldi, ef marka má orð receps tayyips Erdogan forseta. NorDicphotos/AFp Mannréttindadómstóll- inn skipaði Tyrkjastjórn að leysa einn af stjórn- málaleiðtogum Kúrda úr haldi. Handtekinn fyrir tveimur árum vegna meintra tengsla við PKK. Fangelsunin sögð brot gegn réttindum hans. Tyrkjaforseti segir úr- skurðinn ekki bindandi. Demirtas á yfir höfði sér 142 ára fangelsisdóm fyrir tugi meintra brota. 2 1 . n ó v e m B e r 2 0 1 8 m I Ð v I k U d a g U r10 f r é T T I r ∙ f r é T T a B l a Ð I Ð 2 1 -1 1 -2 0 1 8 0 4 :2 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 7 3 -0 9 A C 2 1 7 3 -0 8 7 0 2 1 7 3 -0 7 3 4 2 1 7 3 -0 5 F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 2 0 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.