Fréttablaðið - 20.11.2018, Síða 2
Veður
Suðaustan 8-15 m/s á sunnan- og
vestanverðu landinu, skýjað og
sums staðar dálítil væta. Dregur úr
vindi er líður á daginn. Sunnan 3-8 á
Norður- og Austurlandi með þurru
og björtu veðri. sjá síðu 16
Nú er
...líka orðinn léttur
Brugðið á leik
Eftir vindasama helgi framan af má segja að veðrið hafi leikið við fólk í miðborg Reykjavíkur í gær. Þetta par stakk andlitunum í víkingamyndir
utan við Herrafataverslun Guðsteins á Laugavegi svo hægt væri að smella af því mynd til minningar um dvölina á Íslandi. Fréttablaðið/Eyþór
LögregLumáL Vísbendingar eru
um mikla fjölgun kæra til lögreglu
á undanförnum áratug í málum þar
sem einstaklingur telur að sér hafi
verið byrluð ólyfjan.
Í svari dómsmálaráðherra við fyr-
irspurn þingmannsins Helga Hrafns
Gunnarssonar kemur fram að erfitt
sé að finna staðfesta tölfræði um
kærur af þessum toga, en teknar
voru saman tölur yfir bókanir hjá
lögreglu þar sem orðið „byrlun“
kemur fyrir og fjölgaði þeim úr 16 í
78 á árunum 2007 til 2017.
Drög að sérstöku verklagi um
meðferð og skráningu þessara mála
eru til en það hefur ekki verið inn-
leitt hjá embættinu.
Þá kemur fram í svarinu að það er
mat ráðherra að ákvæði almennra
hegningarlaga séu fullnægjandi um
brot sem fela í sér byrlun ólyfjanar.
– aá
Fleiri kærur
vegna byrlunar
Ferðaþjónusta Óskað hefur verið
eftir lögreglurannsókn og eftir
atvikum lokun á átta rekstrarleyfis-
skyldum gististöðum utan höfuð-
borgarsvæðisins, frá því heima-
gistingarvakt ferðamálaráðherra
var sett á laggirnar í sumar með 64
milljóna fjármagni til eins árs.
Á sama tímabili hefur lögregla
stöðvað starfsemi þriggja rekstrar-
leyfisskyldra gististaða á höfuð-
borgarsvæðinu.
Fyrirhugaðar og álagðar stjórn-
valdssektir vegna brota á skráning-
arskyldu gististaða nema nú þegar
tæpum 40 milljónum en um það bil
sjö vikur eru síðan sýslumaðurinn
á höfuðborgarsvæðinu hóf útgáfu
sekta samkvæmt sérstökum samn-
ingi við ráðuneytið.
Þetta kemur fram í svari atvinnu-
vega-, nýsköpunar- og ferðamála-
ráðherra við fyrirspurn Maríu
Hjálmarsdóttur varaþingmanns.
Í svarinu kemur einnig fram að
80 prósenta fjölgun hefur orðið á
skráðum heimagistingum það sem
af er ári 2018. – aá
Tugir milljóna
í sektir vegna
heimagistingar
ráðherra ferðamála er þórdís Kol-
brún reykfjörð Gylfadóttir.
Fréttablaðið/SiGtryGGur ari
Skráðum heimagisting-
um hefur fjölgað um 80
prósent það sem af er ári
2018.
reYKjaVíK Borgin mun verja rúm-
lega milljarði á ári næstu fimm ár
til uppbyggingar á leikskólum. Full-
trúi Sjálfstæðisflokksins í skóla- og
frístundaráði telur að með því sé
byrjað á öfugum enda og réttara sé
að tryggja mönnun núverandi leik-
skóla áður en uppbygging hefst.
Formaður Brúum bilið, stýrihóps
um uppbygginguna, segir mönn-
unarvandann nánast úr sögunni.
Skipað var í Brúum bilið vorið
2016 en verkefni hópsins var að
brúa bilið milli fæðingarorlofs og
leikskóla. Samkvæmt niðurstöðum
hópsins verður rýmum fjölgað um
allt að 750 til að tryggja að árs-
gömlum börnum pláss á leikskóla
fyrir lok 2023. Fimm nýir leikskólar
verða byggðir og byggt við leikskóla
þar sem eftirspurn er mikil.
Þá verða sérstakar ungbarna-
deildir settar á fót við borgarrekna
leikskóla sem hafa fjórar deildir eða
fleiri. Sem stendur falla 46 leikskól-
ar í þann flokk. Að endingu er stefnt
að því að nýju leikskólarnir verði
stærri en þeir sem fyrir eru. Meðal-
fjöldi á leikskóla nú er 91 barn en
með nýju skólunum er miðað að
því að 120 til 200 börn verði undir
sama þaki.
„Þetta hefur verið hörkuvinna
unnin í ágætri þverpólitískri sátt.
Þetta er söguleg uppbygging sem
miðar að því að ljúka leikskóla-
byltingu sem hófst fyrir um aldar-
fjórðungi,“ segir Skúli Helgason,
formaður skóla- og frístundaráðs
og Brúum bilið.
„Ég tel að það sé svolítið verið
að byrja á öfugum enda þar sem
við erum enn með biðlista. Í sumar
voru send út bréf til barna um stöðu
á biðlista og það eru ekki öll börn
enn komin á leikskóla. Við ættum
að byrja að leysa mönnunarvanda
áður en við förum að koma fleiri
börnum inn á skólana,“ segir Val-
gerður Sigurðardóttur, borgarfull-
trúi Sjálfsstæðisflokksins og fulltrúi
í skóla- og frístundaráði.
Skúli segir hins vegar að mikið
hafi áunnist í þeim málum og stað-
an nú sé helmingi betri en í fyrra.
Aðeins séu um tíu börn sem ekki
séu komin með pláss eða dagsetn-
ingu á því hvenær pláss fæst.
„Það eru helmingi færri ómann-
aðar stöður sem rekja má til þeirra
aðgerða sem borgin hefur gripið til
til þess að bæta vinnuumhverfi leik-
skóla. Við höfum varið um milljarði
til þess. Að meðaltali vantar um
hálft stöðugildi á leikskólana. Það
er varla mannekla heldur eðlileg
starfsmannavelta,“ segir Skúli.
joli@frettabladid.is
Rétt að manna stöður
áður en byggt er upp
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins telur það byrjun á öfugum enda að hefja upp-
byggingu nýrra leikskóla. Fimm milljarðar fara í að byggja nýja leikskóla næstu
fimm ár. Mönnunarvanda nánast lokið, segir formaður skóla- og frístundaráðs.
lagst verður í mikla uppbyggingu næstu fimm ár, nýir og stærri leikskólar
verða byggðir og ungbarnadeildum fjölgað til muna. Fréttablaðið/vilhElm
Að meðaltali vantar
um hálft stöðugildi
á leikskólana. Það er varla
mannekla heldur eðlileg
starfsmannavelta.
Skúli Helgason, for-
maður skóla- og
frístundaráðs
2 0 . n ó V e m b e r 2 0 1 8 þ r I ð j u D a g u r2 F r é t t I r ∙ F r é t t a b L a ð I ð
2
0
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:3
3
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
6
F
-0
E
1
4
2
1
6
F
-0
C
D
8
2
1
6
F
-0
B
9
C
2
1
6
F
-0
A
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
3
2
s
_
1
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K