Fréttablaðið - 20.11.2018, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 20.11.2018, Blaðsíða 6
HEKLA · Laugavegi 170-174 / Audi.is Q5 á sérkjörum Nokkrir einstaklega vel útbúnir Audi Q5 á sérkjörum. Audi Q5 Quattro Sport Comfort 2.0 190 hö Tilboðsverð frá 7.890.000 kr. Til afhending ar strax REYKJAVÍK Egill Þór Jónsson, borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hefur lagt til að Reykjavíkurborg auki fjár- veitingar til SÁÁ um 140 milljónir króna. Lagt er til að veitingin verði fjármögnuð með því að skera niður um 2,4 prósent í miðlægri stjórnsýslu borgarinnar en rekstrarkostnaður hennar nemur rúmum 5,8 milljörð- um króna samkvæmt fjárhagsáætlun 2019. Gert er ráð fyrir að stærstum hluta fjármunanna, um 65 milljónum, verði varið í að koma á fót búsetu- og meðferðarúrræði fyrir tíu konur með alvarlega fíknisjúkdóma. Því sem eftir stendur verði varið í stuðning og sálfræðiþjónustu fyrir börn sem eru aðstandendur einstaklinga með fíknisjúkdóma, þjónustu fyrir fólk yngra en 25 ára sem glímir við fíkn og sérhæfða þjónustu til stuðnings einstaklingum eldri en fimmtíu ára með langvarandi fíknivanda. Núverandi þjónustusamningur borgarinnar við SÁÁ hljóðar upp á 19 milljóna króna fjárveitingu. Til- lögurnar gera ráð fyrir tíu milljóna króna stofnkostnaði vegna búsetu- úrræðisins fyrsta árið og 130 millj- ónum vegna annarra þátta. Kostn- aður á öðru samningsári yrði því 130 milljónir króna og yrði samningur- inn endurskoðaður árlega. „Mikilvægt er að hlúa betur að einstaklingum með fíknivanda vegna breytinga á samfélagsmynstri síðustu ár. Sóknarfærin felast meðal annars í snemmíhlutunum og for- virkum aðgerðum fyrir einstaklinga í áhættuhóp, sem sagt koma í veg fyrir að fólk lendi í neyslu,“ segir Egill Þór. Tillagan verður rædd á fundi borgarstjórnar í dag. – jóe Borgin skeri niður stjórnsýslu og borgi auka 140 milljónir til SÁÁ Mikilvægt er að hlúa betur að einstaklingum með fíkni- vanda vegna breytinga á samfélags- mynstri. Egill Þór Jónsson ORKUVEITAN „Ég get ekki annað sagt en að ég sé sátt við niðurstöðurnar. Það sem mér finnst skipta svo miklu máli í þessu samhengi er það að við fengum innri endurskoðun til að ráðast í þessa miklu úttekt og núna munum við nota niðurstöðurnar og þær ábendingar sem koma fram í skýrslunni til að gera gott fyrirtæki enn betra,“ segir Brynhildur Davíðs- dóttir, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, um úttekt innri endur- skoðunar á vinnustaðamenningu og mannauðsmálum í fyrirtækinu. Tilefni úttektarinnar má rekja til uppsagnar Áslaugar Thelmu Einars- dóttur úr starfi hjá Orku náttúr- unnar (ON) sem er dótturfélag OR. Áslaug Thelma og Einar Bárðarson, eiginmaður hennar, sökuðu í kjöl- farið Bjarna Má Júlíusson, fram- kvæmdastjóra ON, um óviðeigandi hegðun gagnvart kvenkyns starfs- mönnum fyrirtækisins. Kom fram að Áslaug hefði ítrekað gert athuga- semdir við þessa framkomu. Svo fór að Bjarna Má var vikið úr starfi framkvæmdastjóra ON og var vísað til óviðeigandi framkomu gagnvart samstarfsfólki. Helga Jóns- dóttir, starfandi forstjóri OR, sagði á blaðamannafundi í gær að úttekt innri endurskoðunar staðfesti að uppsagnir Áslaugar Thelmu og Bjarna Más hefðu verið réttmætar. Í þeirri útgáfu skýrslu innri end- urskoðunar sem gerð hefur verið opinber er búið að fjarlægja kaflana sem snúa að Áslaugu Thelmu og Bjarna Má. „Niðurstaðan var sú að upp- sagnirnar standist og það er bara ákvörðun sem búið er að taka. Menn komast ekki að niðurstöðu um að þetta sé réttmætt nema fara ítarlega í gegnum alla málavöxtu. Kjósi þessir aðilar hins vegar að tala við okkur eftir að þeir hafa farið yfir gögnin sem þeir fengu send erum við að sjálfsögðu reiðubúin til þess,“ segir Helga Jónsdóttir, starfandi for- stjóri OR. Bjarni Már segist ósammála þeirri túlkun að uppsögn hans teljist rétt- mæt. „Innri endurskoðandi segir í raun og veru að uppsögn mín hafi verið lögmæt en ég er ekki búinn að rekast á það að hann segi að hún hafi verið réttmæt, sérstak- lega ekki á þeim tíma þegar hún var framkvæmd. Það hefði verið mun eðlilegra þegar svona alvar- legar ásakanir eru bornar á fólk að gæta meðalhófs. Á þeim tímapunkti hefði mér þótt eðlilegast að stjórn ON hefði vikið mér tímabundið til hliðar meðan rannsóknin fór fram,“ segir Bjarni Már. Hann segist ekki sjá ástæðu til að gera þann hluta skýrslunnar sem snýr að honum opinberan. „Á þessari stundu er ég ekki tilbúinn til þess. Ég held það bæti engu við þessa umræðu eins og hún er í dag. Hún er svo úti um allt og verið að taka á mörgum málum.“ Aðspurður segist Bjarni Már ekki munu leita réttar síns fyrir dóm- stólum. „Það sem fólk gerir í svona málum þegar því finnst á æru sinni brotið, er að það fer það í meiðyrða- mál. Niðurstaða slíkra mála er yfir- leitt sú að orð eru dæmd dauð og ómerk. Það í raun og veru er skýrsla innri endurskoðunar búin að gera.“ sighvatur@frettabladid.is / sjá síðu 11 Ekki sammála um réttmæti uppsagnar Skýrsla innri endurskoðunar um Orkuveitu Reykjavíkur var kynnt í gær. Stjórnarformaður og starfandi forstjóri OR sáttir við niðurstöð- urnar. Bjarni Már Júlíusson, brottrekinn framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar, telur skýrsluna dæma ummæli um hann dauð og ómerk. Helga Jónsdóttir, starfandi forstjóri OR, sem er fremst á myndinni segir að skýrslan sýni að uppsagnir Áslaugar Thelmu og Bjarna Más hafi verið réttmætar. Þá séu niðurstöður úttektar á vinnustaðamenningu OR góðar. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Bjarni Bjarnason snýr aftur í forstjórastól Stjórn OR fundaði í gær þar sem skýrsla innri endurskoðunar var kynnt. Í kjölfarið var svo tekin ákvörðun um að fela Helgu Jóns- dóttur, starfandi forstjóra, að fara yfir niðurstöður skýrslunnar og gera tillögur að úrbótum í sam- ræmi við ábendingar í skýrslunni. Bjarni Bjarnason, sem vék tíma- bundið úr stóli forstjóra á meðan rannsóknin stóð yfir, mun snúa til baka í næstu viku. „Það hefur ekkert annað verið rætt en að hann komi til baka. Hann fór í tímabundið leyfi. Því leyfi lýkur á þriðjudaginn í næstu viku en núverandi forstjóri mun núna vinna úr þessari skýrslu og leggja fram tillögur til úrbóta. Það verða hennar skil til stjórnar,“ segir Brynhildur Davíðsdóttir, stjórnar- formaður OR. Engin dulin vinnustaðamenning Hluti af úttekt innri endurskoð- unar var könnun sem Félags- vísindastofnun framkvæmdi um starfsumhverfi innan OR. Niður- stöðurnar leiða í ljós að starfsfólk sé almennt ánægt í starfi og holl- usta við fyrirtækið mikil. Þá kemur fram að innan við eitt prósent núverandi starfsmanna hafi orðið fyrir kynferðislegri áreitni í starfi á síðustu 12 mán- uðum. Til samanburðar var þetta hlutfall fimm prósent í könnun Gallup meðal launafólks á síðasta ári. „Ég held að í sjálfu sér hafi þetta verið góð úttekt fyrir okkur. Það er nýr aðili sem kemst að þeirri niðurstöðu að hérna sé ekki um neina dulda vinnustaðamenningu að ræða,“ segir Helga Jónsdóttir, starfandi forstjóri OR. 2 0 . N ó V E m b E R 2 0 1 8 Þ R I Ð J U D A G U R6 f R é T T I R ∙ f R é T T A b L A Ð I Ð 2 0 -1 1 -2 0 1 8 0 4 :3 3 F B 0 3 2 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 6 F -1 C E 4 2 1 6 F -1 B A 8 2 1 6 F -1 A 6 C 2 1 6 F -1 9 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 3 2 s _ 1 9 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.