Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.11.2018, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 20.11.2018, Qupperneq 8
Ísrael Naftali Bennett, mennta- málaráðherra Ísraels og formaður flokksins Bayit Yehudi, sagði í gær að hann myndi ekki segja af sér og draga flokk sinn út úr ríkisstjórnar- samstarfinu. Slíku hafði hann hótað fyrir helgi eftir að varnarmálaráð- herrann Avigdor Liebermann sagði af sér og dró Yisrael Beiteinu úr sam- starfinu vegna gerðar vopnahlés við Hamas-samtökin. Afsögn Bennett og brotthvarf flokks hans hefði þýtt að ríkisstjórn- in væri fallin. Með Bennett og flokki hans er ríkisstjórn Líkúd-flokksins undir forsæti Benjamíns Netanja- hú með 61 sæti af 120. Jerusalem Post vitnaði í vinsæl hvatningaróp Líkúd-liða og sagði Netanjahú vera töframann fyrir að hafa náð að halda stjórninni saman eftir viðræður um helgina. En Netanjahú er ekki hólpinn enn, þótt hann hafi töfrað fram stuðning Bennett. Moshe Kahlon, fjármála- ráðherra og formaður Kulanu, krefst þess enn að boðað verði til nýrra kosninga. Talsmaður Kahlon sagði í gær að afstaða ráðherrans hefði ekki breyst enda væri eins þingmanns meirihluti til þess fallinn að koma stjórninni í ójafnvægi. – þea Netanjahú tekst að lægja öldur Benjamín Netanjahú, forsætisráð- herra Ísraels. Nordicphotos/AFp spánn Spænski fréttavefurinn El Esp- añol birti í gær skilaboð sem Ignacio Cosidó, þingflokksformaður Lýð- flokksins, sendi samherjum sínum á þingi um gerð samkomulags við Sósíalistaflokkinn, sem er í ríkis- stjórn, og sagði Lýðflokkinn hafa náð því fram að flokkurinn fengi ákveðið vald yfir hæstarétti Spánar. Þannig hafi flokkurinn fengið að ráða forseta stjórnar hæstaréttar og níu stjórnarmenn til viðbótar á meðan Sósíalistar fá ellefu. Fram kemur í skilaboðunum að nú geti Lýðflokkurinn stýrt „annarri deild hæstaréttar úr bakherbergjunum“. Undir þessa aðra deild falla meðal annars mál þeirra Katalóna sem yfirvöld í Madríd hafa ákært fyrir þátt sinn í atkvæðagreiðslu og sjálfstæðisyfirlýsingu héraðsins í október á síðasta ári. Um er að ræða bæði aðgerðasinna, þingmenn og ráðherra héraðsstjórnarinnar. Kata- lónskir aðskilnaðarsinnar hafa ítrek- að haldið því fram að ásakanirnar séu fráleitar í lýðræðisríki, þær séu pólitísks eðlis og að stjórnvöld hafi óeðlileg áhrif á dómsvaldið. Vert er að taka fram að Lýðflokkur- inn var í stjórn þegar þessir atburðir áttu sér stað en Mariano Rajoy for- sætisráðherra féll í atkvæðagreiðslu um vantraust í júní og vinstrimaður- inn Pedro Sánchez tók við. Það kemur því ekki á óvart að Quim Torra, forseti héraðsstjórnar Katalóníu, var reiður eftir lestur Reiði í Katalóníu vegna leka Þingflokksformaður Lýðflokksins segir flokkinn nú geta stýrt þeirri deild hæstaréttar sem fer með mál katalónskra aðskilnaðarsinna úr bakherbergjum. Forseti Katalóníu segir sjálfstæði dómstóla ekkert. cosidó sagði Lýðflokkinn geta stýrt úr bakherbergjum. Nordicphotos/Getty Níu eru í haldi Alls eru níu katalónskir aðskiln- aðarsinnar í haldi, ákærðir fyrir uppreisn gegn spænska ríkinu og/ eða uppreisnaráróður vegna sjálf- stæðismálsins. Raül Romeva, Joa- quim Forn, Jordi Turull, Josep Rull og Dolors Bassa voru ráðherrar í héraðsstjórninni, Carme Forcadell var þingforseti og Oriol Junqueras var varaforseti héraðsins. Auk þeirra eru aðgerðasinnarnir Jordi Sánchez og Jordi Cuixart ákærðir og í haldi. Cuixart skrifaði grein í Fréttablaðið í október þar sem hann sagðist „pólitískur fangi, gísl spænsku ríkisstjórnarinnar“. Sak- sóknarar hafa farið fram á 25 ára fangelsi yfir Junqueras, sautján ár fyrir Sánchez og Cuixart og ýmist sektir eða fangelsi í allt að sextán ár fyrir hina sex. Ýmsir úr spænska dómskerfinu hafa lýst yfir óánægju sinni með sjálfstæðismálið. Pascual Sala, fyrrverandi forseti hæstaréttar, sagði í síðustu viku að það væri ómögulegt að uppreisn gegn spænska ríkinu hefði átt sér stað í Katalóníu. Ekki ætti að leysa deiluna innan dómskerfisins. Encarnación Roca, varaformaður stjórnlagadómstóls, tók í sama streng. Sagði að Katalóníudeilan væri pólitísks eðlis, ekki lagalegs. ásakananna í gær. Torra sagði á Twitter að skilaboð Cosidós sýndu enn á ný fram á að réttlætið á Spáni væri háð samkomulagi Sósíalista- flokksins og Lýðflokksins. „Frelsi og tilvist raunverulegs réttarríkis eru ekki lengur sjálfsagðir hlutir sem ríkisborgarar geta treyst á. Hér er sjálfstæði dómstóla ekkert og sama að segja um hlutleysi eða heiðar- leika,“ tísti héraðsforsetinn. Albert Rivera, formanni kata- lónska Borgaraflokksins, höfuðand- stæðings Torra og sambandssinna, ofbauð skilaboð Cosidós. Rivera sagði orð Cosidós og gerð samkomu- lagsins skammarlega og að það væri aðför gegn sjálfstæði dómstóla. Cosidó svaraði fyrir umfjöllunina og skilaboð sín í gær. Hann sagði þau rangtúlkuð en viðurkenndi að orðavalið hefði verið óheppilegt. Að auki benti hann á að hann hefði ekki sagt að Lýðflokkurinn stýrði dóms- valdinu enda „er það ómögulegt“. Þá neitaði hann að segja af sér, en þess hafði grasrótarflokkurinn Podemos krafist. thorgnyr@frettabladid.is Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is HÓLASANDSLÍNA Boðað er til kynningarfundar, opið hús, þar sem farið verður yfir frummatsskýrslu vegna Hólasandslínu 3 sem liggur frá Hólasandi til Akureyrar. Línuleiðin er innan ögurra sveitarfélaga: Akureyrarkaupstaðar, Eyjaarðarsveitar, Þingeyjarsveitar og Skútu- staðahrepps. Markmið framkvæmdarinnar er bætt orkunýting, aukin flutningsgeta og að tryggja stöðugleika raforkukerfis- ins á Norður- og Austurlandi. Framkvæmdin er einnig mikilvæg fyrir flutningskerfi landsins í heild þar sem um er að ræða mikilvægan hlekk í styrkingu tengsla milli sterkari hluta kerfisins á suðvesturhorninu og veikari hluta þess á Austurlandi. Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 9. nóvember til 21. desember 2018 á eftirtöldum stöðum: Í ráðhúsi Akureyrarkaupstaðar Geislagötu 9, á skrifstofum Eyjaarðarsveitar, Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Frummatsskýrslan er aðgengileg á vefsíðum Skipulagsstofnunar, Landsnets og Eflu. Opnir kynningarfundir á frummatsskýrslu - Hótel KEA Akureyri, miðvikudaginn 21. nóvember kl. 17:30-20:30 - Félagsheimilinu Breiðamýri í Reykjadal, fimmtudaginn 22. nóvember kl. 17:30-20:30 - Grand Hótel Reykjavík, þriðjudaginn 27. nóvember kl. 16:00-19:00 Verið velkom in HAFÐU ÁHRIF, TAKTU ÞÁTT Í SAMTALINU 2 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 Þ r I Ð J U D a G U r8 f r é t t I r ∙ f r é t t a b l a Ð I Ð 2 0 -1 1 -2 0 1 8 0 4 :3 3 F B 0 3 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 6 F -0 9 2 4 2 1 6 F -0 7 E 8 2 1 6 F -0 6 A C 2 1 6 F -0 5 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 3 2 s _ 1 9 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.