Fréttablaðið - 20.11.2018, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 20.11.2018, Blaðsíða 14
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveig@frettabladid.is s. 512 5351 | Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368 Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@frettabladid.is, s. 512 5347 | Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@ frettabladid.is, s. 512 5442, Atli Bergmann, atli@ frettabladid.is, s. 512 5457, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429, Elísabet er heilsumarkþjálfi og jógakennari. Síðustu þrjú og hálfa árið hefur hún kennt jóga í FÁ en það er valáfangi við skólann. „Þetta er ómetanlegt verk- efni enda er unga fólkið dásam- legt og kennir mér svo margt.“ Hún leiðir einnig jóga og hlaup í hlaupahópi Víkings. Sem heilsu- markþjálfi tekur hún fólk í viðtöl og heldur námskeið. Undanfarin ár hefur hún staðið fyrir rafrænum námskeiðum í febrúar og október fyrir konur á öllum aldri þar sem fókusinn er á hormónakerfið og létta tiltekt á sál og líkama. Elísabet á þrjú börn með manni sínum Guðmundi, á aldrinum 18, 21 og 23 ára, og á 28 ára stjúp- dóttur. Hluti fjölskyldunnar býr í Kópavogi og annar í Lúxemborg. „Maðurinn minn hefur starfað þar í 27 ár og þar eru börnin okkar fædd og uppalin. Fyrir fimm árum flutti ég mig um set með börn- unum til Íslands en þau sóttu stíft að fara í menntaskóla til Íslands,“ segir Elísabet. Ástfangin af jóga Elísabet er stödd í Ashram jóga- búðum í útlöndum þegar við náum sambandi við hana. „Ég er alger- lega ástfangin af jóga. Áhuginn kviknaði fyrst í sveitinni í gamla daga. Ég var um tíu eða tólf ára að fletta Vikunni og sá grein um jóga sem ég hef ekki gleymt síðan. Ég er frá Bolungarvík og Ísafirði og það var ekki stundað jóga þar á þessum árum. Síðan þá hef ég sogast að öllu sem heitir jóga, þó ég hafi ekki látið verða af því að verða jóga- kennari fyrr en 2005.“ Það var enda ekki hlaupið að því að fara í jóga- kennaranám en flestir möguleik- arnir snerust um að fara í mánuð eða lengur til Bandaríkjanna sem var illmögulegt með börn og heim- ili. „Ég lærði Rope yoga og kenndi til margra ára, hláturjóga lærði ég í Sviss, Yoga Nidra og síðan þegar ég flutti heim gat ég hellt mér í að læra hjá Kristbjörgu Kristmunds. Ég læri síðan og ástunda allt árið um kring undir handleiðslu bæði Kristbjargar og andlegs meistara okkar þar sem kafað er ofan í jóga- sútrur Patanjalis og Bhagavat Gita og önnur helg rit.“ Brann upp Elísabet segist alltaf hafa haft mikla hreyfiþörf. „Ég æfi hlaup með besta hlaupahóp landsins, Víkingi-Fossvogi. Ég elska að vera úti í náttúrunni, ganga á fjöll, synda og hjóla. Á veturna er skíðaiðkun aðalfjölskyldusportið og svo á ég lítið trampólín sem ég tek tarnir á inn á milli.“ Fyrir tæpum þremur árum veiktist Elísabet og hún upplifði „burnout“ eða kulnun. „Já, jógar geta líka brunnið upp. Þetta voru samlegðaráhrif margra ára, ég var stoppuð af náttúrunnar hendi þar sem ég hlustaði ekki á viðvörunarbjöllurnar, en líklega hefur jógaástundunin seinkað ferlinu eins og hægt var. Í dag æfi ég mig í að hlúa að mér, hvílist og legg ekki meira á mig en ég ræð við. Ég æfi mig í að forðast það sem étur upp lífsorkuna mína og geri meira af því sem nærir mig og styrkir. Ég æfi mig í að vera í núinu, velta mér ekki upp úr því liðna. Leitast við að taka einn dag í einu og legg framtíðina í hendur æðri máttar.“ Elísabet stundar jóga á hverjum degi, hugleiðir og gerir öndunaræfingar, hleypur þegar hún getur og fer nánast daglega í göngutúr auk þess að synda einu sinni til þrisvar í viku. „Ég hef alltaf leitast við að nýta heimilis- störf líka sem hreyfingu, geng alla stiga og bý mér til hreyfingu við öll tækifæri.“ Mataræðið mikilvægt Hollt mataræði er Elísabetu mikil- vægt. „Ég hef nördast í að huga að mataræði mínu frá því ég var tvítug. Það kom til af því að ég var með marga heilsukvilla sem barn og unglingur sem læknavísindin höfðu engin svör við. Innsæi mitt hrópaði á mig að skoða út fyrir rammann og brátt var ég komin á bólakaf í heilsufæði sem var ekki „inn“ á þessum árum. Það kom í ljós að ég var með mikið fæðuóþol og candida fungus.“ Í kjölfarið hætti Elísabet að borða mjólkur- mat, hveiti, ger, sykur, kaffi, kjöt og fisk. Ég þurfti að hafa fyrir þessu en heilsa mín batnaði skref fyrir skref. Fyrir mörgum árum féll ég endan- lega fyrir Ayurveda-fræðunum, ég leitast við að fylgja þeim fræðum eftir í mat og lifnaði almennt. Ayurveda er stór partur af jóga- náminu hjá meistaranum mínum.“ Elísabet lærði heilsumarkþjálfun og hormónaheilsufræði í Banda- ríkjunum og hefur í gegnum árin sótt ótalmörg námskeið og fyrir- lestra er lúta að bættri andlegri og líkamlegri heilsu. Í Lúxemborg vann Elísabet með stærstu heilsukeðjunni þar í Age rewind: Hylki til inntöku sem bæta ásýnd húðarinnar á náttúru- legan hátt Framhald af forsíðu ➛ Þessa mynd tók Steinunn Matthíasdóttir af Elísabetu þegar hún vann verkefnið „Maður og náttúra“, sem unnið var í náttúru Dalanna. Hugmyndin var að fanga upplifun módelanna af og tengslum þeirra við náttúruna. Í tilfelli Elísabetar var lögð áhersla á jóga sem er líf hennar og yndi. MynD/StEInUnn MAttHÍASDóttIr Amino Collagen: Minni verkir Meiri orka Heilbrigðari húð Heil naglabönd Joint rewind: Öll liðamót mýkri og hreyfanlegri landi og hélt reglulega námskeið í grænni matargerð, var með fyrir- lestra og síðan einkaráðgjöf. „Nær- ing er ekki bara það sem við setjum á diskinn, það er bara lítill partur af næringunni. Svefn, hreyfing og hvernig við nærum skynfærin, það að kunna að gefa og þiggja og með hvaða hugarfari við gerum þetta allt er einnig næring. Ástin þarf að vera til staðar í öllu. Ástin til okkar sjálfra og alls sem er.“ Ekki lengur ströng við sig Mataræði Elísabetar breyttist nokkuð þegar hún flutti aftur heim til Íslands fyrir fimm árum. „Ég entist ekki lengi á hráfæði enda mæli ég ekki með því fyrir nokkurn mann búandi hér á norður- hjara. Ég borða að mestu grænmetisfæði, stundum fisk. Það er mikilvægt fyrir mig að gæta þess að fá prótein, fitu og góð kolvetni í morgun- mat, hádegismat og kvöldmat. Ég reyni að forðast nart á milli mála og gæti þess að drekka vel.“ En hvernig er týpískur matseðill hjá henni? „Ég byrja daginn á hálfum lítra af volgu magnesíum- og sítrónuvatni og hveitigrasi og græni djúsinn er alltaf til. Þegar kalt er úti fæ ég mér heitan morgunverð, annars góðan þeyting. Í hádeginu langar mig alltaf í aðalmáltíð dagsins og á kvöldin vil ég helst súpu eða eitt- hvað létt. Þá daga sem ég er mikið að kenna eða hreyfa mig passa ég að næra mig mjög vel.“ notar Feel Iceland daglega Elísabet notar daglega vörurnar frá Feel Iceland. „Ég frétti fyrst af Feel Iceland þegar það kom á markað og keypti stundum krukku af kollageninu og tók með mér til Lúx. Fyrir fjórum árum fór ég að nota þær aðeins meira og síðustu þrjú árin daglega. Ég tek inn bæði kollagen í duft- og töfluformi. Þar sem ég er viðkvæm í liðamótum og stoðkerfi finn ég gríðarlegan mun á mér.“ Hún segist nota kollagenið til að hjálpa sér að byggja upp líkamann að nýju eftir veikindi. „Kollagenframleiðslan minnkar líka með aldrinum, bein og vefir líkamans veikjast og það fer að bera á ýmsum öldrunareinkenn- um. Kollagen er eitt helsta upp- byggingarprótein líkamans, það er að finna í öllum liðum, liðamótum, vöðvum, sinum, beinum og líf- færum mannslíkamans. Kollagen er líka mjög stór þáttur í að styrkja húð, hár og neglur.“ Hún tekur bæði Joint Therapy og Age Rewind til skiptis. „Eftir þrjár vikur á Joint Therapy voru liða- mótin kátari og verkur í annarri öxlinni sem ég var búin að eiga í lengi var horfinn. Serumið er síðan algert möst. Ég er nýbúin að fatta að ég sé kannski ekki 29 ára lengur og vil því hlúa vel að húðinni bæði að innan sem utan.“ Góðar vörur og falleg hugsjón Elísabet heillast ekki aðeins af virkni Feel Iceland vörunum heldur einnig hugsjóninni að baki þeim. „Þær eru góðar en líka fallegar og hreinar. Að baki þeim er heiðarlegt og fallegt teymi hugsjónakvenna. Ég mæli alltaf með Feel Iceland vörunum fyrir mína skjólstæðinga. Ég hef búið til helling af góðum uppskriftum sem innihalda kollagenið þeirra. Ég bara elska þeytinginn minn og heita drykki með kollagenduftinu út í, það gerir allt gott betra.“ Serumið inniheldur kollagen og ensím sem bæta ásýnd húðarinnar á náttúru- legan hátt. 2 KynnInGArBLAÐ FóLK 2 0 . n óV E M B E r 2 0 1 8 Þ R I ÐJ U DAG U R 2 0 -1 1 -2 0 1 8 0 4 :3 3 F B 0 3 2 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 6 F -2 6 C 4 2 1 6 F -2 5 8 8 2 1 6 F -2 4 4 C 2 1 6 F -2 3 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 3 2 s _ 1 9 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.