Fréttablaðið - 20.11.2018, Síða 15

Fréttablaðið - 20.11.2018, Síða 15
„Það má neyta hans á ýmsa vegu en við fáum sjaldnast nóg í matnum þrátt fyrir að hann gefi gott bragð. Það má þó bæta það upp með inntöku á honum einum og sér. Hann er góður rifinn í vatn/te, sem nýpressaður safi og það má taka hann sem bætiefni. Þessi magnaða rót hefur þó enn fleiri kosti en hún er talin sérlega góð fyrir meltinguna þar sem hún dregur úr meltingarónotum, örvar framleiðslu munnvatns og galls og hefur jákvæð áhrif á ákveðnar tegundir meltingar- ensíma með því að auka eða bæta flæðið gegnum meltingarveginn. Engifer hitar okkur innan frá og því gott að fá sér t.d. te þegar við fáum kvef og svo bendir ýmislegt til þess að hann hafi góð áhrif á vöðvaverki sem skýrist sennilega af bólgueyðandi áhrifum hans.“ Krónískar bólgur „Túrmerik (Curcuma longa) er eitt öflugasta andoxunarefnið á markaðnum og það er ekkert náttúrulegt efni sem hefur verið jafn mikið rannsakað. Það er gríðarlega bólgueyðandi en eins og bráðar (skammtíma) bólgur í líkamanum eru nauðsynlegar eru langvarandi/krónískar bólgur að sama skapi mjög slæmar. Krónískar bólgur eru rótin að mörgum lífsstílssjúkdómum og hafa rannsóknir sýnt að kúrkúmín geti dregið úr líkum á þessum bólgum. Nokkrar rannsóknir sýna meira að segja fram á að kúrkúmín standist samanburð við sum bólgueyðandi lyf, en er þó án allra aukaverkana.“ Bromelain fyrir ennis- og kinnholur „Bromelain er ensím úr ananas- plöntunni en þetta ensím brýtur niður prótein og getur því nýst fólki með meltingarvandamál, rétt eins og meltingarensím,“ segir Hrönn. „Einnig er bromelain notað til að draga úr bólgum en það hefur hjálpað fólki með lið- verki og liðagigt. Vísbendingar eru um að það hafi góð áhrif á frjókornaofnæmi, vandamál í ennis- og kinnholum, magabólgur eða magasár og niðurgang en það þarfnast þó fleiri rannsókna.“ Vinnur gegn bólgum og eykur blóðflæði „Erfitt er í stuttu máli að telja upp kosti þeirra efna sem þetta bæti- efni inniheldur. Kúrkúmín sem er virka efnið í túrmerik verndar liðina þar sem það eykur náttúru- lega framleiðslu kortisóns sem hefur bólgueyðandi áhrif. Engifer er blóðþynnandi og eykur blóð- flæði ásamt því að geta dregið úr bólgum, verið vatnslosandi, jafnað blóðsykur og minnkað ógleði. Einnig hafa báðar þessar rætur jákvæð áhrif á ónæmis- kerfið. Þriðja efnið í blöndunni er ensímið bromelain sem er m.a. græðandi, hefur góð áhrif á meltinguna og virðist geta unnið á ýmsum bólguvandamálum í ennis- og kinnholum.“ Sölustaðir: Flest apótek, heilsu- búðir og heilsuhillur verslana. Eftir að hafa notað Ginger, Turmeric & Bromelain í rúma viku fann ég greinilegan mun á mér og eftir mánuð var vandamálið horfið. Þrymur Sveinsson Engifer- og túrmerikrætur hafa í árþúsundir verið not-aðar í lækningaskyni. Þessar rætur eru náskyldar og eru enn þann dag í dag notaðar bæði í kín- verskum og indverskum náttúru- lækningum. Bromelain er ensím, unnið úr ananasplöntunni, sem hefur bæði góð áhrif á meltingu og bólgur og vísbendingar eru um mun víðtækari heilsufarsleg áhrif. Þessi þrjú efni eru saman komin í Ginger, Turmeric & Bromelain bætiefninu frá Natures Aid og eru vinsældir þess sífellt að aukast,“ segir Hrönn Hjálmarsdóttir, heilsumarkþjálfi hjá Artasan. Fann mun eftir viku Þrymur Sveinsson hefur notað Ginger, Turmeric & Bromelain um þó nokkurt skeið með ótrúlegum árangri. Hann hafði þetta að segja: „Fyrst þegar Ginger, Turmeric & Bromelain fékk umfjöllun í Fréttablaðinu fannst mér sam- setningin í bætiefninu vera áhugaverð. Ég las mér betur til á netinu og þar sem þær greinar sem ég fann um efnin gáfu sömu niðurstöðu ákvað ég að kaupa glas til reynslu. Ástæðan er sú að allt frá unga aldri hafði ég átt við vandamál í öndunarfærum að stríða sem lýsti sér meðal annars í stífluðu nefi. Engin lausn fannst þrátt fyrir heimsóknir til lækna og sérfræðinga sem skoðuðu mig vandlega, þeir fundu enga ástæðu. Vandamálið versnaði stöðugt og ég var farinn að nota nefúða allt að fjórum sinnum á dag þegar ég var sem verstur. Eftir að hafa notað Ginger, Turmeric & Bromelain í rúma viku fann ég greinilegan mun á mér og eftir mánuð var vandamálið horfið, ég gat dregið andann áreynslulaust, án hjálparefna í fyrsta skipti síðan á unglingsaldri. Ég hef notað Ginger, Turmeric & Bromelain að staðaldri síðan en gæði þessa náttúrulyfs eru ótvíræð.“ Bætir meltingu og minnkar bólgur „Engifer er afar vinsæll í bæði asískri og indverskri matargerð ásamt því að vera notað þar í lækningaskyni. Hann er talinn hafa góð áhrif gegn ógleði, verkj- um og bólgum, er vatnslosandi og jafnar blóðsykur,“ segir Hrönn. Nefstíflur loksins horfnar! Í náttúrunni er að finna magnaðar jurtir og rætur sem geta bætt heilsu okkar á ýmsan máta. Ginger, Turmeric & Bromelain blandan vinnur m.a. gegn bólgum og er góð fyrir meltinguna. Brom­ e lain er ensím, unnið úr ananas­ plöntunni, sem hefur bæði góð áhrif á meltingu og bólgur Hrönn Hjálmarsdóttir Vinsældir Ginger, Turmeric & Bromelain eru sífellt að aukast en bætiefnið hefur reynst vel við bólgum og meltingarvanda- málum. Engifer, túrmerik og bromelain eru saman komin í Ginger, Turmeric & Bromelain bætiefninu frá Natures Aid. Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana. Krill Oil - öflugustu Omega 3 fitusýrurnar Kristófer Fannar Stefánsson „Eftir að ég fór að taka Krill olíuna finn ég mjög mikinn mun á mér og þá sérstaklega húðinni“ Krill olía er omega 3 í sinni hreinustu og öflugustu mynd, sótt í Suðurskautshafið sem er hreinasta hafsvæði veraldar. Líkaminn á mjög auðvelt með að nýta sér fitukeðjurnar í krillinu og ekkert eftirbragð er eftir inntöku. Krill_Oil_5x10_20170825 copy.pdf 1 28/08/2017 09:58 FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 Þ R I ÐJ U DAG U R 2 0 . n óv e m B e r 2 0 1 8 2 0 -1 1 -2 0 1 8 0 4 :3 3 F B 0 3 2 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 6 F -1 7 F 4 2 1 6 F -1 6 B 8 2 1 6 F -1 5 7 C 2 1 6 F -1 4 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 3 2 s _ 1 9 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.