Fréttablaðið - 20.11.2018, Síða 18

Fréttablaðið - 20.11.2018, Síða 18
Áhugafólk um íþróttir man vel eftir handboltamann-inum Gunnari Beinteinssyni sem lék lengstum með liði FH hér á landi og um leið með íslenska landsliðinu á löngum og farsælum ferli. Í dag er Gunnar 52 ára gamall og búsettur í bænum Hünenberg í Sviss ásamt eiginkonu sinni og tólf ára dóttur og hefur sannarlega ekki lagt íþróttaskóna á hilluna því undanfarin ár hefur hann keppt í handbolta, stundað langhlaup, hjólreiðar og CrossFit auk þess sem fjölskyldan fer reglulega á skíði í Sviss og Austurríki. Hann er því sannarlega góð fyrirmynd þegar kemur að hreyfingu og holl- um lífsháttum en hann segist eyða 1-2 tímum á dag í einhvers konar hreyfingu. „Eins og alltaf er það félagskapurinn sem er lykilatriðið. Hann hefur meðal annars hjálpað mér að læra tungumálið og kynn- ast betur svissnesku samfélagi. Það er svo magnað hvað margt er líkt í dag og þegar ég spilaði með FH í gamla daga, það er helst tónlistin í búningsklefanum sem er breytt, mikið breytt!“ CrossFit í fyrsta sæti Í dag setur hann CrossFit í fyrsta sætið en er auk þess farinn að hjóla meira en áður. „Ég get stundað CrossFit með Þuru konunni minni en hún er CrossFit-þjálfari hjá CrossFit Zug. Fyrir vikið æfum við og hjólum talsvert saman. Það var í Sviss sem ég hóf fyrir alvöru að æfa CrossFit en segja má að undanfarin 5-6 ár hafi sú íþrótt verið aðallík- amsræktin mín, meðan handbolti og hlaup hafa skipað lægri sess.“ Það sem heillar hann mest við CrossFit er hvað æfingarnar eru fjölbreyttar sem um leið hafa aukið styrk hans og liðleika. „Dætur mínar eru reyndar ekki alveg sammála mér þegar kemur að liðleikanum. CrossFit-æfing- arnar hjálpuðu mér líka mikið þegar ég tókst á við Jungfrau-mara- þonhlaupið sem er fjallamaraþon í svissnesku Ölpunum. Hækkunin þar er 1.800 metrar, upp í 2.300 metra, og þá kom sér vel að hafa stundað CrossFit en ég tók þátt árin 2012 til 2017.“ Blandar öllu saman Fyrir Gunnar er lykillinn að góðri heilsu að stunda fjölbreytta hreyfingu. „Þess vegna blanda ég þessu öllu saman. Á veturna reynum við að fara um hverja helgi á skíði, enda bara 30 mínútna til þriggja klukkustunda akstur í algjörar skíðaparadísir í svissnesku og austurrísku Ölpunum. Ég er ekki að reyna að verða bestur í ein- hverri íþróttagrein, mér finnst bara of einhæft að stunda bara eina grein. Fjölbreytileiki er lykillinn fyrir mig og síðan verður jú líka að vera bolti til að elta.“ Aftur í handboltann Haustið 2015 var stofnuð ný hand- boltadeild fyrir karla í kantónunni Zug, þar sem fjölskyldan býr, sem ber heitið HSG Baar Super Bulls en svæðið er þekkt fyrir mjög sterkan kvennahandbolta. Sviss- neskur æfingafélagi Gunnars í CrossFit vissi um bakgrunn hans og bað hann að slást í hópinn. „Ég sló til en þá var ég 49 ára gamall að spila með strákum sem voru 20-30 ára gamlir. Við hófum leik í 4. deild fyrsta árið, unnum hana og 3. deildina ári síðar ásamt því að verða bikarmeistarar neðri deilda. Í fyrra og í ár erum við í 2. deild. Á þessum tíma er ég búinn að spila um 60 leiki en þetta er fjórða tímabilið mitt. Eins og alltaf er handbolti líkamlega erfið íþrótt þannig að ég er búinn að brjóta framtennur, slíta liðband í þumal- putta og lent í öðrum minni háttar pústrum.“ Alltaf eitthvað nýtt Hann leggur áherslu á mikilvægi þess að stunda hreyfingu þegar komið er á miðjan aldur. „Það sem gerir CrossFit svona skemmtilegt er að ég er alltaf að læra eitthvað nýtt og ná einhverjum nýjum markmiðum. Það þurfa allir að halda áfram að hreyfa sig, leika sér og vinna á móti vöðvarýrnun og stirðleika. Allt þetta hjálpar til þegar við verðum eldri, til dæmis við að standa upp úr stól, fara út úr bíl, labba upp stiga og önnur grunnatriði sem við tökum sem sjálfsögðum hlutum.“ Gott að búa í Sviss Í dag starfar Gunnar sem fram- kvæmdastjóri hjá svissneska lyfjafyrirtækinu Xantis Pharma en fjölskyldan hefur búið í Sviss í átta ár. „Sviss er mjög gott land til að búa í. Það er mun rólegra yfirbragð yfir öllu hér miðað við heima á Íslandi. Hér eru til dæmis allar búðir lokaðar á sunnu- dögum, það er minni atvinnu- þátttaka kvenna og nemendur fara heim milli kl. 12 og 13.30 alla daga. Yngsta dóttirin er tólf ára og er í svissneskum skóla og þar eru miklar kröfur gerðar. Hún æfir handbolta með LK Zug en það er oft talsvert púsl að láta skóla og æfingar ganga upp, vegna krefjandi heimanáms og tíðra prófa, eitthvað sem maður pældi aldrei í heima á Íslandi með eldri stelpurnar okkar. Héðan er stutt að fara til margra fallegra staða, bæði í Sviss og öðrum nálægum löndum eins og Ítalíu, Frakklandi, Þýskalandi og Austurríki. Það sem er talsvert betra hér er veðrið því hér eru góð sumur og alvöru snjór í fjöllunum á veturna.“ Fjölbreytileiki er lykillinn Gunnar Beinteinsson, fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta, segir lykilinn að góðri heilsu sinni vera fjölbreytta hreyfingu. Í dag býr hann í Sviss og keppir í handbolta, stundar langhlaup og hjólreiðar og fer með fjölskyldunni á skíði. CrossFit skipar þó fyrsta sætið á listanum. Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is Árin 2012-2017 tók Gunnar þátt í Jungfrau-maraþonhlaupinu sem er fjallamaraþon í svissnesku Ölpunum. Hækkunin þar er 1.800 metrar, upp í 2.300 metra, og þá kom sér vel að hafa stundað CrossFit um nokkurra ára skeið. Gunnar tók fram handboltaskóna árið 2015, þá 49 ára gamall. Gunnar Beinteinsson, ásamt eiginkonu sinni Þuríði Eddu Gunnarsdóttur, á CrossFit-æfingu. Þuríður er auk þess CrossFit-þjálfari hjá CrossFit Zug. Jólablað Fréttablaðsins Kemur út þriðjudaginn 27. nóvember. Viltu þú auglýsa í mest lesna jólablaði landsins? Hafðu þá samband við auglýsingadeild Fréttablaðsins. sími 550 5077 – serblod@frettabladid.is Skemmtilegt blað sem kemur inn á allar hliðar jólaundirbúningsins. Uppflettirit sem lesendur leita í aftur og aftur. FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt auk blað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 0 . N Óv E m B E R 2 0 1 8 Þ R I ÐJ U DAG U R 2 0 -1 1 -2 0 1 8 0 4 :3 3 F B 0 3 2 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 6 F -1 7 F 4 2 1 6 F -1 6 B 8 2 1 6 F -1 5 7 C 2 1 6 F -1 4 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 3 2 s _ 1 9 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.