Fréttablaðið - 20.11.2018, Page 25
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Þriðjudagur
hvar@frettabladid.is
20. nóvember 2018
Tónlist
Hvað? Kvartett Söru Mjallar á Kexi
Hvenær? 20.30
Hvar? Kex hostel, Skúlagötu
Á næsta Jazzkvöldi Kex Hostels,
þriðjudaginn 20. nóvember,
kemur fram kvartett píanóleikar-
ans Söru Magnúsdóttur. Kvartett-
inn skipa, auk hennar, þeir Óskar
Guðjónsson á saxófón, Þorgrímur
Jónsson á kontrabassa og Matthías
Hemstock á trommur. Þema tón-
leikanna verður skandinavískur
djass og mun kvartettinn spila
lög sem öll eiga uppruna sinn í
Skandinavíu, bæði þjóðlög í djass-
búningi en einnig nýrri tónlist
eftir djasstónlistarmenn eins og
Es björn Svenson, Hanna Paulsberg
og aðra. Einnig mun kvartettinn
flytja nokkur lög eftir Söru.
Hvað? DJ Daddy Issues
Hvenær? 19.30
Hvar? Iðnó
DJ Daddy Issues spilar í Iðnó.
Hvað? R6013: xGaddavírx, Snowed In,
Skerðing
Hvenær? 18.00
Hvar? Ingólfsstræti 20
Tónleikar í R6013. Opið öllum ald-
urshópum. Framlög eru frjáls en
vel þegin. Dýraafurðalaus matur
í boði.
Viðburðir
Hvað? Bókakvöld á Kaffi Laugalæk
Hvenær? 20.00
Hvar? Kaffi Laugalækur, Laugarnes-
vegi
Fram koma rithöfundar sem lesa
úr nýútgefnum bókum sínum:
Anna Ragna Fossberg, Eyrún Ósk
Jónsdóttir, Guðmundur Stein-
grímsson og Þórður Snær Júlíus-
son.
Hvað? Bókasúpa 2018
Hvenær? 18.00
Hvar? Landakotsskóla
Þeir höfundar sem munu kynna
bækur verða: Sigrún Eldjárn sem
kynnir nýjustu bók sína Silfur-
lykilinn, fyrstu bókina í nýjum
þríleik. Bergrún Íris Sævarsdóttir
kynnir nýjustu bók sína Langelstur
í leynifélaginu, sjálfstætt framhald
bókarinnar Langelstur í bekknum,
sem kom út í fyrra. Guðni Kol-
beinsson, þýðandi hinna stór-
skemmtilegu og vinsælu bóka
Davids Walliams, les úr nýjustu
bók hans, Miðnæturgenginu. Villi
vísindamaður, frábær að vanda,
kynnir nýjustu vísindabókina sína,
þá fimmtu í röðinni og mun sýna
nokkrar skemmtilegar tilraunir.
Gestum gefst tækifæri til að kaupa
bækur höfunda á tilboðsverði á
staðnum, bæði nýju bækurnar
sem verið er að kynna ásamt fyrri
bókum.
Hvað? Ritgerð mín um sársaukann
Hvenær? 17.00
Hvar? Gröndalshús, Fischersundi
Ástarsaga um fölar minningar, um
kynslóðir sem bugast og neyðast
til að játa uppgjöf sína, harmleikur
sem ekki verður færður í orð.
Sársauki sem er rýtingur í hjarta
okkar allra. En þessi ritgerð er líka
ein lítil, græn rós. Fögnum útgáfu
skáldsögunnar Ritgerð mín um
sársaukann eftir Eirík Guðmunds-
son í Gröndalshúsi á þriðjudaginn
klukkan fimm.
Hvað? Minningardagur trans fólks
Hvenær? 17.00
Hvar? Samtökin ´78, Suðurgötu
Á hverju ári er minningardagur
trans fólks haldinn hátíðlegur um
heim allan, en á þeim degi minn-
umst við þess trans fólks sem hefur
verið myrt fyrir að vera trans.
Trans Ísland býður vinum, vanda-
mönnum og meðlimum í athöfn
í húsnæði Samtakanna '78 þar
sem við munum koma saman og
minnast þeirra sem fallið hafa frá
Eiríkur Guðmundsson fagnar útgáfu skáldsögu sinnar Ritgerð mín um
sársaukann í Gröndalshúsi í Fischersundi í kvöld. FRéttablaðið/DaníEl
Guðrún Eva Mínervudóttir og fleiri höfundar lesa upp á rithöfundakvöldi bókasafns Seltjarnarness. FRéttablaðið/ERniR
um leið og við stöndum við bakið
á hvert öðru. Þau sem vilja koma
fram með ræðu, ljóð, tónlistarat-
riði eða annað í tilefni dagsins
mega endilega hafa samband á
Facebook-síðu okkar.
Hvað? Tæknikaffi | Gerðu þitt eigið
hlaðvarp
Hvenær? 17.30
Hvar? Borgarbókasafnið Grófinni
Hefur þú eitthvað að segja sem
þú vilt deila með umheiminum?
Gerðu þá þinn eigin hlaðvarps-
þátt! Í fyrsta Tæknikaffi Borgar-
bókasafnsins fara tækniséníin
okkar, þeir Ingi Þórisson hljóð-
maður og Björn Unnar Valsson
vefstjóri, yfir öll helstu tæknilegu
atriðin sem þarf að huga að áður
en hlaðvarpsþáttur er tekinn upp
og settur á netið.
Hvað? Loftslagsbreytingar og hafið
Hvenær? 16.00
Hvar? Nauthólsvík
Dr. Hrönn Egilsdóttir kynnir
hvaða áhrif loftslagsbreytingar
munu hafa á hafið og lífríki þess.
Rannsóknir Hrannar hafa m.a.
beinst að þeirri ógn sem kalk-
myndandi lífverum stafar af þeim
umhverfisbreytingum sem eru að
verða í hafinu vegna stórtækrar
losunar mannkyns á koldíoxíði
(CO₂), sem leiðir síðan til súrnunar
sjávarins og lækkunar á kalk-
mettun í sjó. Erindið er hluti af
umhverfisfræðslu í tengslum við
Bláfánavottun Ylstrandarinnar í
Nauthólsvík. Það er haldið í Siglu-
nesi í Nauthólsvík. Öll velkomin.
Hvað? FFF – Fashion Film Festival
2018
Hvenær? 20.00
Hvar? Bíó Paradís, Hverfisgötu
Á hátíðinni Fashion Film Festival
eru sýndar tískumiðaðar heim-
ildarmyndir. Haldnir verða við-
burðir með sýningum og með því
stefnt að því að auðga fagsamhengi
tísku hérlendis og gefa nemendum
í faginu tækifæri til að koma sér
á framfæri og hitta aðra innan
fagsins.
Hvað? Rithöfundakvöld í Bókasafni
Seltjarnarness
Hvenær? 20.00
Hvar? Bókasafn Seltjarnarness
Höfundakvöldið er einn af okkar
stærstu viðburðum haustsins.
Lilja Sigurðardóttir með nýja bók
sína Svik. Sigursteinn Másson
með ævisögu sína Geðveikt með
köflum. Gerður Kristný með
ljóðabók sína Sálumessu og Guð-
rún Eva Mínervudóttir með skáld-
söguna Ástin, Texas – sögur.
Lof mér að falla (eng sub) ................ 17:30
Litla Moskva (icelandic - no sub) .. 18:00
Hinn seki // The Guilty (eng sub) ... 18:00
Kalt stríð // Cold War (eng sub) .... 20:00
Mæri // Border (ice sub) .................... 20:00
Fashion Film Festival 2018 - OPNUN
FFF: We Margiela (eng sub) 20:00
Hinn seki // Den skyldige (ice sub) 22:00
Blindspotting (ice sub) ........................ 22:00
Juliusz (polish with english sub) ..... 22:00
HARK KVIKMYNDAGERÐ KYNNIR:
HEIMILDARMYND EFTIR grím hákonarson
LITLA
MOSKVA
LEIKSTJÓRI/HÖFUNDUR: GrÍmur HÁkonarson FRAMLEIÐANDI: GrÍmur HÁkonarson, Hark Films MEÐFRAMLEIÐANDI Á ÍSLANDI: GrÍmar JÓnsson, Netop Films MEÐFRAMLEIÐANDI
Í SLÓVAKÍU: Ivan Ostrochovský, Punkchart Films MEÐFRAMLEIÐANDI Í TÉKKLANDI: Albert Malinovský & Martin Šmok, ŠkolFilm KVIKMYNDATAKA: MargrÉt Seema Takyar,
TÓmas TÓmasson KLIPPING: Janus Bragi Jakobsson TÓNLIST: Valgeir Sigurðsson HLJÓÐVINNSLA: Huldar Freyr Arnarson FRAM KOMA: GuÐmundur Sigurjónsson,
Stella SteinÞÓrsdÓttir, Ingibjörg ÞÓrÐardÓttir, Kristinn V. Jóhannsson, Smári Geirsson, Guðmundur Bjarnason OG HÁkon Hildibrand
SAMVINNUFÉLAG ÚTGERÐARMANNA
NESKAUPSTAÐ
Eftir langa valdatíð sósíalista í Neskaupsstað
standa bæjarbúar frammi fyrir breyttum Veruleika.
HAPPY HOUR Á BARNUM 17-19 NÁNAR Á BIOPARADIS.IS
Varmadælur &
loftkæling
Verð frá aðeins
kr. 155.000 m.vsk
Midea MOB12
Max 4,92 kW
2,19 kW við -7° úti og
20° inni hita (COP 2,44)
f. íbúð ca 60m2.
• Kyndir húsið á veturna
og kælir á sumrin
• Fyrir norðlægar slóðir
• Fjarstýring fylgir
Uppsetningaaðilar og
umboðsmenn um allt
land
Suðurhöfn og Fornubúðir 5
Kynningarfundur - skipulagsbreyting
Fundur haldinn mmtudaginn 22. nóvember
næstkomandi kl. 17:00 – 18:30, Norðurhellu 2.
Kynning á breytingu er varðar greinargerð aðalskipulags
Hafnarfjarðar 2013-2025 og tekur til landnotkunar-
flokks og deiliskipulags Suðurhafnar vegna lóðarinnar
að Fornubúðum 5.
Nánar á hafnar
ordur.is
585 5500
HAFNARFJARÐARBÆR
hafnarfjordur.is
m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 17Þ R i ð J U D A g U R 2 0 . n ó V e m B e R 2 0 1 8
2
0
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:3
3
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
6
F
-0
9
2
4
2
1
6
F
-0
7
E
8
2
1
6
F
-0
6
A
C
2
1
6
F
-0
5
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
3
2
s
_
1
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K