Fréttablaðið - 20.11.2018, Síða 32

Fréttablaðið - 20.11.2018, Síða 32
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000 Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Jóns Sigurðar Eyjólfssonar BAkþAnkAR 19. til 25. nóv. Allir 12 tommu bátar af matseðli og miðstærð af gosi á Stjörnudagar 1099kr. Árið 2015 gerðust þau óvæntu tíðindi að Manuela Carmena var kosin borgar- stýra í Madríd. Hún þótti ekki beint borgarstýruleg þegar hún hélt til vinnu í neðanjarðarlest þar sem hún las bók eftir Jón Gnarr. Síðan hún komst til valda hafa menn og konur úr Lýðflokknum leitað logandi ljósi að einhverri óhæfu úr lífsleið hennar sem nota mætti til að þyrla upp gjörninga- veðri. Ekki hefur þeim orðið kápan úr klæðinu nema hvað að sumir urðu alveg æfir yfir því að hún væri hætt að taka neðan- jarðarlestina. Reyndar hefur ekki gengið vel að núa einhverri óhæfu um nasir nýju stjórnmálamann- anna sem vilja skera upp herör gegn spillingunni. En hvað hafa þeir verið að aðhafast sem velta við hverjum steini til að finna einhver ósköp úr ævi Carmenu og félaga? Jú, þeir höfðu Madríd á sínu valdi og seldu þá félagsíbúðir á slikk sem hræ- gammasjóðir hafa nú margfaldað í verði, þeir seldu vopn til Sádi- Arabíu, hringdu í dómara til að fá hann til að finna skít á mótherja sína og það væri síðan of langt mál að fara yfir alla þá spillingu sem þeir voru að dunda sér við og hefur nú kostað ófáa frelsið. Carmena hefði örugglega gaman af sögunni um það hvað sumir eru ákafir í að finna for í fari Jóns Gnarr. Meira að segja svo að þeir pönkuðust yfir álplötu líkt og Panamasjóður væri. En kannski er þetta engin gamansaga heldur áminning um það að sú iðja að rýna í allar mögulegar reglur í þeirri von að einhver rekist þar illilega á getur verið óheilsusam- leg. Og það að kannski er ekki til meira flekkleysi en einmitt það að velta sér ekki upp úr forinni. Að pönkast á álplötu 2 0 -1 1 -2 0 1 8 0 4 :3 3 F B 0 3 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 6 F -0 9 2 4 2 1 6 F -0 7 E 8 2 1 6 F -0 6 A C 2 1 6 F -0 5 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 3 2 s _ 1 9 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.