Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.11.2018, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 22.11.2018, Blaðsíða 1
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M fimmtudagskvöld kl. 20:30 á Hringbraut og vf.is S U Ð U R N E S J A MAGASÍN AÐAL S ÍMANÚMER 421 0000 ■ AUGLÝS INGAS ÍM INN 421 0001 ■ FRÉTTAS ÍM INN 421 0002 Háhraða internet og hágæða sjónvarp EKKERT LÍNUGJALD, FRÍR ROUTER ENGIR AUKAREIKNINGAR Kapalvæðing • Hafnargata 21 • 421 4688 • kv@kv.is www.kv.is • www.facebook.com/kapalvaeding frá 6.560 Kr/mán. Krossmóa 4 | Reykjanesbæ Opnunartími mán.–fös. frá 9–20 lau.–sun. frá 11–18 HRINGBRAUT REYKJANESBÆ VIRKA DAGA HELGAR ALLTAF OPIÐ ALLTAF OPIÐ AFGREIÐSLUTÍMAR: FRÁBÆR NÓVEMBERTILBOÐ Croissant hreint Verð áður: 299 kr. 150 KR/STK 50% 398 KR 26% Dagný & Co hot wings með sósu Verð áður: 1.298 kr. 896 KR 31% Samloka með skinku og osti - 2 stk + gos BARN BEINDI LEISERGEISLA AÐ UMFERÐ Sterkum grænum leisergeisla var beint að umferð í Reykjanesbæ um helgina. Geislanum var meðal annars beint að bifreið lögreglu- manns sem var á ferðinni og lék enginn vafi á hvaðan geislinn kom. Lögregla ræddi við húsráðendur í viðkomandi húsi og kom þá í ljós að fjögurra ára sonur þeirra hafði verið að leika sér með leiserbendil- inn í glugganum um kvöldið. Fólk- inu var tjáð að styrkur bendilsins væri það mikil að geislinn gæti beinlínis verið hættulegur. Fólkið bað lögreglu að taka hann og farga honum. Lögreglan á Suðurnesjum ítrekar varnaðarorð sín vegna þeirrar hættu sem skapast getur ef leiser- geislum er beint að umferð á landi eða í lofti. SAUTJÁN ÁRA Í HRAÐAKSTRI Nokkrir ökumenn hafa verið kærðir fyrir hraðakstur í um- dæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók mældist á tæplega 140 km hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Ökumaðurinn um- ræddi var aðeins sautján ára gam- all og var forráðamönnum hans gert viðvart um hraðaksturinn. Þá hafa fáeinir ökumenn verið teknir úr umferð vegna gruns um fíkniefna- eða ölvunarakstur og reyndist einn þeirra vera sviptur ökuréttindum. Nokkur umferðaróhöpp hafa orðið í umdæminu á síðustu dögum en þau voru öll minni háttar. Sossa lendir Súlunni og heldur jólaboð Áætla að fjár- festa fyrir 4,5 milljarða í kísilverinu Félagið Stakksberg áætlar að fjárfesta fyrir um 4,5 milljarða króna í úrbótum á kísilverksmiðju fé- lagsins í Helguvík. Úrbæturnar miða að því að gera verksmiðj- una fullbúna til fram- leiðslu, koma til móts við athugasemdir íbúa í Reykjanesbæ og uppfylla skilyrði Umhverfisstofnunar fyrir starfsemi verk- smiðjunnar. Tillaga að matsáætlun fyrir nýtt umhverfismat verksmiðjunnar var birt á vef Skipulagsstofnunar í dag en frestur til að skila inn athugasemdum við hana er til 5. desember 2018. Úrbætur sem vinna gegn lyktar- og loftmengun Umhverfisstofnun stöðvaði rekstur kísil- verksmiðjunnar í Helgvík í september 2017 og setti þá ákveðin skilyrði fyrir því að hún yrði gangsett á ný. Í kjölfarið var unnin úrbótaáætlun sem Umhverfisstofnun hefur samþykkt og felur í sér aðgerðir sem miða að því að bæta rekstur verksmiðjunnar og vinna gegn lyktar- og loftmengun. Meðal þess sem stofnunin gerir kröfu um er að komið verði upp sérstökum skorsteini til að draga úr lyktarmengun og að hreinsun á út- blæstri og meðhöndlun á ryki verði bætt. Að auki felur úrbótaáætlun Stakksbergs í sér að allur frágangur á lóð verksmiðjunnar verði bættur sem og aðstaða fyrir starfsfólk. Þá verður sérstakt umhverfisstjórnunarkerfi innleitt og þjálfun starfsfólks bætt. Áætlanir Stakksbergs gera ráð fyrir að fjárfesta þurfi 4,5 milljörðum króna í úrbótum til að gera verksmiðjuna fullbúna til framleiðslu. Tillaga að matsáætlun kynnt á vef Skipulagsstofnunar Skipulagsstofnun samþykkti í apríl á þessu ári ósk Stakksbergs um að framkvæmt verði nýtt umhverfismat á kísilverksmiðjunni í Helguvík. Með nýju umhverfismati vill Stakksbergs sérstaklega skoða hvaða áhrif starfsemi verksmiðjunnar hefur á loftgæði, meðal annars með nýjum útreikningum á dreifingu útblásturs. Nánar er fjallað um málið og íbúafund um kísilverið á vef Víkurfrétta, vf.is. Myndlistakonan Sossa Björnsdóttir er handhafi Súlunnar, menningarverðlauna Reykjanesbæjar árið 2018. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Duus safnahúsum á föstudag. Þetta var í 22. skiptið sem menningarverðlaun bæjarins voru afhent. Á myndinni hér að ofan má sjá Sossu taka við verðlaunagripnum, Súlunni, úr hendi Kjartans Más Kjartanssonar, bæjarstjóra Reykjanesbæjar. Sossa mun venju samkvæmt halda jólaboð á vinnu- stofu sinni á aðventunni. Opnunarboð verður laugar- daginn 1. desember kl. 14:00 til 20:00. Anton Helgi Jónsson flytur ljóð og Klassart verður með tón- list. Að auki verður Sossa með opið sunnudaginn 2. desember á sama tíma. Nánar má lesa um af- hendingu Súlunnar á síðum 16-17 í blaðinu í dag. Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi Bárðarson fimmtudagur 22. nóvember 2018 // 45. tbl. // 39. árg.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.