Víkurfréttir - 22.11.2018, Síða 1
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
fimmtudagskvöld kl. 20:30
á Hringbraut og vf.is
S U Ð U R N E S J A
MAGASÍN
AÐAL S ÍMANÚMER 421 0000 ■ AUGLÝS INGAS ÍM INN 421 0001 ■ FRÉTTAS ÍM INN 421 0002
Háhraða internet og hágæða sjónvarp
EKKERT LÍNUGJALD, FRÍR ROUTER
ENGIR AUKAREIKNINGAR
Kapalvæðing • Hafnargata 21 • 421 4688 • kv@kv.is
www.kv.is • www.facebook.com/kapalvaeding
frá 6.560 Kr/mán.
Krossmóa 4 | Reykjanesbæ
Opnunartími
mán.–fös. frá 9–20
lau.–sun. frá 11–18
HRINGBRAUT
REYKJANESBÆ
VIRKA DAGA
HELGAR
ALLTAF OPIÐ
ALLTAF OPIÐ
AFGREIÐSLUTÍMAR:
FRÁBÆR NÓVEMBERTILBOÐ
Croissant
hreint
Verð áður: 299 kr.
150
KR/STK
50%
398
KR
26%
Dagný & Co
hot wings með sósu
Verð áður: 1.298 kr.
896
KR
31%
Samloka með
skinku og osti - 2 stk + gos
BARN BEINDI
LEISERGEISLA
AÐ UMFERÐ
Sterkum grænum leisergeisla var
beint að umferð í Reykjanesbæ
um helgina. Geislanum var meðal
annars beint að bifreið lögreglu-
manns sem var á ferðinni og lék
enginn vafi á hvaðan geislinn kom.
Lögregla ræddi við húsráðendur í
viðkomandi húsi og kom þá í ljós
að fjögurra ára sonur þeirra hafði
verið að leika sér með leiserbendil-
inn í glugganum um kvöldið. Fólk-
inu var tjáð að styrkur bendilsins
væri það mikil að geislinn gæti
beinlínis verið hættulegur. Fólkið
bað lögreglu að taka hann og farga
honum.
Lögreglan á Suðurnesjum ítrekar
varnaðarorð sín vegna þeirrar
hættu sem skapast getur ef leiser-
geislum er beint að umferð á landi
eða í lofti.
SAUTJÁN ÁRA
Í HRAÐAKSTRI
Nokkrir ökumenn hafa verið
kærðir fyrir hraðakstur í um-
dæmi lögreglunnar á Suðurnesjum
á undanförnum dögum. Sá sem
hraðast ók mældist á tæplega 140
km hraða á Reykjanesbraut þar
sem hámarkshraði er 90 km á
klukkustund. Ökumaðurinn um-
ræddi var aðeins sautján ára gam-
all og var forráðamönnum hans
gert viðvart um hraðaksturinn.
Þá hafa fáeinir ökumenn verið
teknir úr umferð vegna gruns um
fíkniefna- eða ölvunarakstur og
reyndist einn þeirra vera sviptur
ökuréttindum.
Nokkur umferðaróhöpp hafa orðið
í umdæminu á síðustu dögum en
þau voru öll minni háttar.
Sossa lendir Súlunni og heldur jólaboð
Áætla að fjár-
festa fyrir
4,5 milljarða
í kísilverinu
Félagið Stakksberg
áætlar að fjárfesta
fyrir um 4,5 milljarða
króna í úrbótum á
kísilverksmiðju fé-
lagsins í Helguvík.
Úrbæturnar miða að
því að gera verksmiðj-
una fullbúna til fram-
leiðslu, koma til móts við athugasemdir
íbúa í Reykjanesbæ og uppfylla skilyrði
Umhverfisstofnunar fyrir starfsemi verk-
smiðjunnar. Tillaga að matsáætlun fyrir
nýtt umhverfismat verksmiðjunnar var
birt á vef Skipulagsstofnunar í dag en
frestur til að skila inn athugasemdum
við hana er til 5. desember 2018.
Úrbætur sem vinna gegn
lyktar- og loftmengun
Umhverfisstofnun stöðvaði rekstur kísil-
verksmiðjunnar í Helgvík í september 2017
og setti þá ákveðin skilyrði fyrir því að hún
yrði gangsett á ný. Í kjölfarið var unnin
úrbótaáætlun sem Umhverfisstofnun hefur
samþykkt og felur í sér aðgerðir sem miða
að því að bæta rekstur verksmiðjunnar og
vinna gegn lyktar- og loftmengun. Meðal
þess sem stofnunin gerir kröfu um er að
komið verði upp sérstökum skorsteini til að
draga úr lyktarmengun og að hreinsun á út-
blæstri og meðhöndlun á ryki verði bætt. Að
auki felur úrbótaáætlun Stakksbergs í sér að
allur frágangur á lóð verksmiðjunnar verði
bættur sem og aðstaða fyrir starfsfólk. Þá
verður sérstakt umhverfisstjórnunarkerfi
innleitt og þjálfun starfsfólks bætt. Áætlanir
Stakksbergs gera ráð fyrir að fjárfesta þurfi
4,5 milljörðum króna í úrbótum til að gera
verksmiðjuna fullbúna til framleiðslu.
Tillaga að matsáætlun kynnt
á vef Skipulagsstofnunar
Skipulagsstofnun samþykkti í apríl á þessu
ári ósk Stakksbergs um að framkvæmt verði
nýtt umhverfismat á kísilverksmiðjunni
í Helguvík. Með nýju umhverfismati vill
Stakksbergs sérstaklega skoða hvaða áhrif
starfsemi verksmiðjunnar hefur á loftgæði,
meðal annars með nýjum útreikningum á
dreifingu útblásturs.
Nánar er fjallað um málið og íbúafund um
kísilverið á vef Víkurfrétta, vf.is.
Myndlistakonan Sossa Björnsdóttir er handhafi
Súlunnar, menningarverðlauna Reykjanesbæjar
árið 2018. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega
athöfn í Duus safnahúsum á föstudag. Þetta var í
22. skiptið sem menningarverðlaun bæjarins voru
afhent. Á myndinni hér að ofan má sjá Sossu taka
við verðlaunagripnum, Súlunni, úr hendi Kjartans
Más Kjartanssonar, bæjarstjóra Reykjanesbæjar.
Sossa mun venju samkvæmt halda jólaboð á vinnu-
stofu sinni á aðventunni. Opnunarboð verður laugar-
daginn 1. desember kl. 14:00 til 20:00. Anton Helgi
Jónsson flytur ljóð og Klassart verður með tón-
list. Að auki verður Sossa með opið sunnudaginn
2. desember á sama tíma. Nánar má lesa um af-
hendingu Súlunnar á síðum 16-17 í blaðinu í dag.
Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi Bárðarson
fimmtudagur 22. nóvember 2018 // 45. tbl. // 39. árg.