Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.11.2018, Blaðsíða 18

Víkurfréttir - 22.11.2018, Blaðsíða 18
18 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM Tímabundið leyfi til sölu skotelda í smásölu og leyfi til skoteldasýninga Lögreglustjórinn á Suðurnesjum Upplýsingar til umsækjanda tímabundins leyfis fyrir sölu skotelda í smásölu og leyfis til skoteldasýninga frá og með 28. desember 2018 til og með 6. janúar 2019. Þeir aðilar sem hyggjast sækja um leyfi fyrir sölu skotelda í smásölu í Reykjanesbæ, Garði, Grindavík, Sandgerði og Vogum fyrir og eftir áramót 2018-2019, ber að sækja um slíkt leyfi til lögreglustjórans á Suðurnesjum í síðasta lagi föstudaginn 30. nóvember 2018 fyrir kl. 15:00. Hægt er að nálgast umsóknirnar á logreglan.is og á lögreglustöðinni í Reykjanesbæ að Hringbraut 130. Einnig á lögreglustöðinni í Grindavík, Víkurbraut 25. Leyfi eru veitt að fullnægðum skilyrðum vopnalaga nr. 16/1998 og gildandi reglugerðar um skotelda. Athugið: • Umsóknaraðilar skila inn umsókn fyrir 30. nóvember 2018, í þjónustuver lögreglu að Brekkustíg 39, 260 Reykjanesbæ. • Fylgigögn umsókna skulu berast slökkviliði viðkomandi sveitarfélags. • Umsóknir um sölustaði sem berast eftir 30. nóvember 2018 verða ekki teknar til afgreiðslu. • Umsóknaraðilar skulu vera komnir með leyfin í hendur föstudaginn 21. desember 2018. • Óheimilt er að hefja sölu, nema söluaðilar hafi í höndum leyfisbréf frá lögreglu. • Söluaðilar sæki leyfisbréf á lögreglustöðina við Hringbraut föstudaginn 21. desember 2018, kl. 09:00. Sérstök athygli er vakin á eftirfarandi: 1. Leyfi eru aðeins veitt fyrir sölu skotelda að fyrir liggi umsögn viðkomandi slökkviliðs til aðstöðu og sölu skotelda, pökkunar- og geymslustaði. Einnig liggi fyrir leyfi lóðareiganda, húseiganda eða húsfélags ef umsækjandi er ekki umráðamaður lóðar eða húsnæðis þar sem sala á að fara fram og staðfesting tryggingafélags vegna sölu, geymslu og notkun skotelda. 2. Ef fyrirhugað er að selja úr skúrum eða gámum, skal vera búið að ganga frá slíkum sölustöðum fyrir kl. 16:00, föstudaginn 14. desember 2018 svo lokaúttekt geti farið fram á aðstöðu og öryggisþáttum. Sölustaðir skulu vera minnst 25 fermetrar og búnir samkvæmt kröfum slökkviliðs viðkomandi sveitarfélags. Tilgreina þarf ábyrgðarmann fyrir sölustað, sem hefur sérþekkingu á skoteldum og hefur náð 18 ára aldri. Að gefnu tilefni skal vakin athygli á að sala og meðferð skotelda er einungis heimil á tímabilinu frá og með 28. desember 2018 til og með 6. janúar 2019. Gjald fyrir sölustað er kr. 5.000, skoteldasýningar er kr. 8.300 og greiðist við innlögn umsóknar hjá lögreglu. Athugið: Kynningarfundur með væntanlegum umsækjendum verður haldinn þriðju- daginn 27. nóvember 2018, kl. 18:00 í húsakynnum Brunavarna Suðurnesja að Hringbraut 125, Reykjanesbæ. Reykjanesbær 20. nóvember 2018. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum. Veitingastaðurinn Moss á Retreat, í Bláa lóninu, er á lista ferðavefsins Lonely Planet yfir bestu nýju matarupplifunina fyrir ferðamenn árið 2019. Í umfjöllun Lonely Planet segir að Bláa Lónið sé nú þegar vinsæll staður meðal ferðamanna sem sækist eftir því að baða sig upp úr heitu lóninu en nú hafi annar heitur reitur fyrir matarunnendur bæst við á svæðinu með opnun veitingastaðarins Moss, inn af nýja Retreat-hótelinu. Frá opnun staðarins í apríl hafi verið boðið upp á hefðbundinn íslenskan mat og mælir Lonely Planet með því að fólk splæsi á sig sjö rétta smakk- matseðlinum á tíu sæta borði mat- reiðslumeistarans, með einstöku út- sýni yfir hraunið og víni úr einstökum hraunkjallaranum, sem hafði verið í frosti síðan 1226. Í umfjöllun Lonely Planet segir að matarferðamennska verði vinsælli með hverju árinu þar sem fólk leiti uppi hverja matarupplifunina á fætur annarri á spennandi stöðum. Á lista Lonely Planet yfir bestu nýju matar- upplifunina eru staðir út um allan heim, þar á meðal í Ástralíu, Perú, Tælandi sem og veitingastaðurinn Noma í Kaupmannahöfn, sem hefur opnað aftur eftir endurbætur, en hann hefur verið álitinn einn besti veitinga- staður heims. Moss í Bláa lóninu á lista Lonely Planet yfir bestu nýju matarupplifunina Sex bónorð á dag í Bláa lóninu – Huffington Post í heimsókn á Reykjanesi Reykjanesið er sérstaklega tekið fyrir í nýrri grein sem birtist á vef fjölmiðlarisans Huffington Post. Í greininni, sem Markaðs- stofa Reykjaness vekur athygli á, er spjallað við Suðurnesjamanninn Atla Sigurð Kristjánsson, markaðs- stjóra Bláa lónsins, auk þess sem forsetafrúin Eliza Reid ræðir um sundlaugamenningu Íslendinga. Að sögn Atla má gera ráð fyrir um sex bónorðum á dag í Bláa lóninu, en þessi perla Reykjaness er fyrir löngu orðin heimsfrægur áningar- staður. „Ef þig langar að fá kraft náttúr- unnar beint í æð þá er tilvalið að fara í útsýnisferð um Reykjanesið, sem er í bakgarði Keflavíkurflugvallar,“ segir í grein Huffington post. Þar segir einnig að svæðið sé UNESCO Geopark og því suðupottur jarðhita og jarðfræði, auk þess sem finna má þar svartar strendur og frekari fegurð. Hvatt er til þess að heimsækja Brúna milli heimsálfa þar sem hægt er standa milli Evrópu- og Ameríkuf- lekanna. Greinarhöfundur heimsótti einnig Gunnuhver og Reykjanes- vita. Steinsnar frá er svo veitinga- staðurinn Hjá Höllu í Grindavík, sem höfundur gefur góð meðmæli. Barði í Bang Gang orðinn safngripur í Reykjanesbæ

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.