Víkurfréttir - 22.11.2018, Page 14
14 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 22. nóvember 2018 // 45. tbl. // 39. árg.
Nýtt líf segja þeir sem byrja að
hreyfa sig reglulega. Það er aldrei of
seint að byrja. Í Sandgerði er hópur
eldri borgara sem hittist nokkrum
sinnum í viku og hreyfir sig saman,
karlarnir mæta í einhverja tíma
en konur í þá alla. Sumir hafa svo
gaman af þessari heilsurækt og
mæta í alla tímana á meðan aðrir
velja það sem hentar þeim. Boðið
er upp á stafgöngu utandyra, rólega
leikfimi með teygjuæfingum innan-
dyra, stóla-Zumba og einnig æfingar
með lóð í tækjasal íþróttahússins.
Það er ekki síður þetta félagslega
sem rekur fólk út úr húsi, það er svo
gaman að hitta annað fólk.
Frábært framtak
bæjaryfirvalda
Regluleg hreyfing hægir á öldrun
og getur haft góð áhrif á bæði and-
lega og líkamlega líðan á efri árum.
Bæjaryfirvöld nýs sameinaðs sveitar-
félags styðja við heilsueflingu íbúa
bæjarins. Það er frítt í sund fyrir alla
aldurshópa, þá sem eru skráðir með
lögheimili í Garði og Sandgerði. Frítt
í leikfimi fyrir eldri borgara einnig í
íþróttamiðstöðvum bæjarins.
Björgvin Jensson, 72 ára:
„Ég geng með félögum mínum fimm
daga vikunnar og tek aukalega á því
miðvikudagsmorgna eftir gönguna
með þeim. Við erum að ganga svona
sjö til átta kílómetra hvern dag.
Hingað kem ég svo til að lyfta lóðum,
maður er að fara í þessi tæki. Ég finn
mikinn mun á sjálfum mér eftir að
ég byrjaði í þessu reglulega. Þegar ég
var ennþá að vinna þá hreyfði ég mig
um helgar en núna hreyfi ég mig alla
daga. Já ég er orðinn háður þessu og
finnst þetta mjög gott, líður vel.
RAGNHEIÐUR ÁSTA MAGNÚSDÓTTIR,
ÞJÁLFARI HÓPSINS, 69 ÁRA:
„Ég byrjaði hérna fyrst með staf-
göngu árið 2014, var beðin að
koma hingað fyrst í heilsuviku
með fyrirlestur og ræða um þriðja
æviskeiðið sem byrjar þegar við
hættum að vinna. Hvað ætlarðu
að gera við tímann þinn? Hvern-
ig viltu nýta allan þennan tíma?
Fólkið sem mætti á fyrirlesturinn
vildi prófa stafgöngurnar áfram
og svona þróaðist þetta heilsu-
eflandi starf. Nú hefur þetta verið
í boði í Miðhúsum í nokkur ár.
Fólkið vildi halda áfram að hreyfa
sig. Ég hef farið á námskeið til
þess að styðja mig sem leið-
beinanda. Bæjaryfirvöld styrkja
þetta starf eldri borgara svo allir
eldri borgarar bæjarins Garðs og
Sandgerðis, geti mætt ókeypis. Ég
starfa eingöngu við þetta í dag en
var áður grunnskólakennari. Bara
svo gaman að vinna við að efla
fólkið. Þegar við hættum að vinna
þurfum við að ákveða hvernig við
viljum verja tíma okkar. Ætlum
við að vera í náttfötunum fram
að hádegi eða mæta í morgun-
hreyfingu og hressa okkur við? Að
koma saman, hreyfa okkur, mýkja
okkur og styrkja. Mér finnst dá-
samlegt að finna kraftinn í þessu
fólki sem er ennþá að lifa lífinu
lifandi. Þú hættir ekkert að lifa
þegar þú ert komin á eftirlaun.
Karlarnir sem mæta hafa sumir
aldrei prófað að teygja vöðvana
og verða svo ánægðir þegar þeir
finna hvað það gerir þeim gott.
Já það eru allir velkomnir með
okkur, bara mæta.“
Þau búa í heilsueflandi bæ
Mar ta Eiríksdóttir
marta@vf.is
VIÐTAL
Hrefna Magnúsdóttir, 71 árs:
„Ég byrjaði í hópnum í fyrra og líkar
mjög vel. Það var tekið hlýlega á móti
mér, allir eru velkomnir. Aldrei of
seint að byrja. Ég hef alla ævi verið að
hreyfa mig eitthvað en langaði í félags-
skap sem væri að hreyfa sig saman
eftir að ég hætti að vinna. Það breytist
svo margt þegar maður hættir að
vinna. Mér finnst gott að finna hvað
ég styrkist í skrokknum við þessar
æfingar. Skilar sér einnig andlega.“
Lilja Karlsdóttir, 70 ára:
„Ég er í Zumba á mánudögum, staf-
göngu á þriðjudögum og fimmtu-
dögum og lyfti lóðum á miðviku-
dögum. Um helgar fer ég í sund eða
út að ganga, eða bæði. Svo hvíli ég
mig einnig. Það breytir svo miklu
að taka þátt. Vellíðan og miklu betri
heilsa. Við erum líka með svo góðan
þjálfara hana Ragnheiði Ástu sem er
svo ofboðslega dugleg. Þetta er bara
svo skemmtilegur félagsskapur líka.
Svo gaman að hittast og stundum
höfum við gert eitthvað annað saman,
farið eitthvert saman.“
Sigurlína Sveinsdóttir, 71 árs:
„Ég var að ganga með hópnum, fór í
mjaðmaaðgerð og fékk nýjan lið og
er að bíða með hinn, er á biðlista. Ég
var hjá sjúkraþjálfara eftir aðgerð en
svo var það búið og þá kom ég hingað.
Mér finnst mjög gott að koma og vera
með hópnum og æfa saman. Það er
ekki spurning að allir eigi að hreyfa
sig reglulega. Þetta hefur hjálpað mér
mjög mikið. Líka svo góður félags-
skapur. Ég var lengi að fara af stað,
að byrja en svo var tekið mjög vel á
móti mér þegar ég mætti.“
Kristín Kristjánsdóttir, 76 ára:
„Ég er nýbyrjuð með hópnum, er
búin að mæta fjórum sinnum. Ég
finn mikinn mun hvað ég er hressari
strax og andlega líka. Ég er búin að
prófa Zumba og leikfimi með teygjum
og svo þetta hér að lyfta lóðum í rækt-
inni. Ég er ekki með í stafgöngunni
því ég er að byggja mig upp en hnéð
og mjaðmir eru ekki ennþá alveg
tilbúin í göngur en ég er að stefna í
gönguhópinn þegar ég verð tilbúin.
Þjálfarinn okkar hún Ragnheiður Ásta
er frábær og hugar svo vel að manni,
mér líður eins og ég sé í einkaþjálfun
hjá henni.“
Kolbrún Leifsdóttir, 69 ára:
„Ég byrjaði 66 ára í hópnum. Alltaf
þegar ég er búin að æfa þá er ég svo
miklu orkumeiri og svo ofboðslega
ánægð, ég endurnærist á sál og lík-
ama. Viltu láta það koma fram að
við erum ótrúlega þakklát bæjaryfir-
völdum fyrir að hugsa svona vel um
okkur. Það er svo frábært hvað bærinn
gerir til þess að efla heilsu bæjarbúa.
Stundum hef ég verið köflótt í mæt-
ingu. Maður er stundum að ammast
eða upptekin við eitthvað annað. Þetta
á að vera gaman en ekki kvöð, þess
vegna mæti ég eins oft og ég get og
langar til að hreyfa mig. Þetta er ekki
síður félagslegt, það er svo gaman
að hitta fólkið í hópnum. Ég mæti
í göngur, leikfimina og teygjur hjá
Ragnheiði Ástu. Við viljum bara eiga
hana, hún er svo frábær.”
Fanney Ingibjörg Sæbjörnsdóttir, 95 ára:
„Ég fer í teygjuæfingarnar tvisvar í„viku í Miðhúsum því mér finnst það gera
mér gott. Ég mæti yfirleitt í þessa tíma þriðjudaga og fimmtudaga klukkan
10:30. Ég reyni svo sjálf að teygja mig heima og beygja mig. Leikfimin er góð
og svo er félagsskapurinn frábær. Hefur svo mikið að segja að hitta fólk.“