Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.11.2018, Qupperneq 17

Víkurfréttir - 22.11.2018, Qupperneq 17
17MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 22. nóvember 2018 // 45. tbl. // 39. árg.MANNLÍF Á SUÐURNESJUM www.dattacalabs.com contact@dattacalabs.com Til að lágmarka kostnað fólum við Dattaca Labs hlutverk persónuverndarfulltrúa. Ég mæli hiklaust með þjónustu þeirra. Aldís Hafsteinsdóttir Bæjarstjóri Hveragerðisbæjar Einföld og örugg þjónusta á verði sem kemur á óvart Dattaca Labs hefur aðstoðað tugi sveitarfélaga, stofnana og fyrirtækja við innleiðingu á nýju persónuverndarlögunum. Listakonan Sossa fékk Súluna, menningarverðlaun Reykjanesbæjar, fyrir árið 2018. Afhending verðlaunanna fór fram við hátíðlega athöfn í Duus Safnahúsum sl. föstudag. Verðlaunin eru veitt þeim sem stutt hafa vel við menningarlíf sveitarfélagsins og var þetta í tuttugasta og annað sinn sem Súlan var afhent. Verðlaunagripurinn er silfursúla eftir listakonuna Elísabetu Ásberg. Sossa Björnsdóttir er fædd 9. febrúar árið 1954 og uppalin í Keflavík. Hún lærði myndlist í Myndlista- og hand- íðaskóla Íslands, fór í framhaldsnám í listaháskóla í Kaupmannahöfn og lauk svo mastersgráðu við lista- háskóla í Boston árið 1993. Hún hefur í áraraðir unnið við list sína og haldið sýningar víða um heim, s.s. í Danmörku, Bandaríkjunum, Portúgal og Kína. Sossa hefur lengi verið öflug í menningarlífi Reykjanesbæjar og leyft bæjar- búum að njóta með margvíslegum hætti. Hún hefur sýnt í Listasafni Reykjanesbæjar, bæði ein og með öðrum, hún hefur haldið sýningar á vinnustofu sinni tvisvar á hverju ári, á Ljósanótt og fyrir jólin, og einnig tekið þátt í alls kyns menn- ingarverkefnum í bæjarfélaginu, m.a. tónleikaröðinni Heimatónleikar og List án landamæra. Hún hefur kennt myndlist í skólum og á opinberum námskeiðum og tekið nemendur til sín á vinnustofuna og það oft án greiðslu. Hún hefur einnig tekið á móti fjölda hópa á vinnustofuna, sýnt verkin og sagt frá starfi sínu. Sossa hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir list sína, m.a. var hún útnefnd sem Listamaður Reykjanesbæjar árið 1997 og hún fékk Fullbright-styrk til að vinna við og kenna myndlist í Seattle árið 2013. Verk eftir hana má sjá í flestum opinberum byggingum og fjölda heimila í bæjarfélaginu. Bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Kjartan Már Kjartansson, afhenti Sossu verð- launin og sagði við það tilefni: „Sossa er fyrsta flokks listamaður sem Reykjanesbær getur verið stoltur af. Aldrei verður metið að fullu hve mikilvægt það er fyrir hvert bæjarfélag að hafa svona lifandi lista- mann innan sinna vébanda. Bæjarstjórn og menningarráð vilja þakka henni fyrir áralanga vinnu og stuðning við menningarlíf bæjarins og hlýtur hún Súluna, menn- ingarverðlaun Reykjanesbæjar, fyrir árið 2018.“ Við sama tækifæri var styrktar- og stuðningsaðilum Ljósanætur, menn- ingar- og fjölskylduhátíðar Reykja- nesbæjar, sem nú var haldin í nítjánda sinn, þakkaður stuðningurinn. Fram kom í máli Kjartans Más að bæjarbúar sjálfir yrðu virkari í viðburðahaldinu með hverju árinu sem liði og þeirra framlag, ásamt fjárhagslegum stuðn- ingi, gerði það að verkum að Ljósa- nótt væri í hópi helstu menningarhá- tíða landsins. Helstu styrktaraðilar Ljósanætur í ár, bæði fjárhagslegir og þeir sem studdu við hátíðina með öðru móti, voru 95 og þeir stærstu voru Isavia, Landsbankinn, Lagar- dére, Toyota Reykjanesbær, Securitas, Nettó og Skólamatur og voru þeim öllum færðar bestu þakkir.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.