Víkurfréttir - 22.11.2018, Page 24
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00
facebook.com/vikurfrettirehf
twitter.com/vikurfrettir
instagram.com/vikurfrettir
MUNDI
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
Mennta-
sóða-
skapur
og sóun
Í fréttum RÚV í vikunni var viðtal við
áfangastjóra Menntaskólans á Ísafirði.
Skólinn vill einbeita sér að því að gera
betur fyrir þau ungmenni sem voru
í hópi kvótaflóttamanna sem settust
að á Ísafirði í mars síðastliðnum. Ég
er að flestu leyti sammála þessu og
vildi óska að við gætum gert svo mikið
meira fyrir þá flóttamenn sem setjast
hér að. Ég er hins vegar mjög hugsi
yfir stefnunni í menntamálum á Ís-
landi í þessu samhengi.
Glöggt er gests augað og heimskt er
heimaalið barn. Ég á talsvert af vinum
sem hafa búið erlendis með sínar
fjölskyldur og verið hluti af skóla-
samfélagi barna sinna. Við flutning
aftur heim til Íslands er mesta sjokkið
fólgið í skólakerfinu okkar, hversu
aftarlega við erum á merinni miðað
við skóla í öðrum vestrænum þjóð-
félögum. Niðurstöður PISA-kannana
2012 og 2015 staðfesta þetta. Þar eru
íslenskir nemendur töluvert á eftir
jafnöldrum sínum í OECD-ríkjunum í
öllum þremur prófgreinunum; lestri,
stærðfræði og náttúruvísindum.
Aftur að fréttinni á RÚV. Áfangastjóri
skólans vill bjóða upp á móðurmáls-
kennslu á tungumáli þeirra flótta-
manna sem setjast að í bænum. Ofsa-
lega hljótum við að vera vel í stakk
búin fyrst við gætum nýtt peninginn
í menntakerfinu til að þjóna þessum
hópi á þennan hátt. Nú eru eflaust
einhverjir búnir að setja mig í flokk
með þeim sem eru á móti innflytj-
endum. Ég er bara alls ekki þar. Ég
er að setja út á það í hvað er verið að
verja sköttunum okkur.
Þetta sýnir ákveðinn skort á mark-
vissri stefnu í menntamálum á Ís-
landi. Það er umhugsunarvert að hver
og einn menntaskóli virðist vinna að
sinni stefnumótun, án samræmis við
það fjármagn sem í boði er eða í takti
við aðra skóla.
Varðandi þetta tiltekna dæmi, af
hverju viljum við að flóttamenn fái
kennslu í sínu móðurmáli ef við-
komandi aðilar eru komnir með fasta
búsetu á Íslandi? Af hverju eiga þeir
peningar að koma úr vasa okkar skatt-
greiðenda? Við erum með mikið af
stærri vandamálum í skólakerfinu
okkar. Væri ekki betra ef fjármagnið
nýttist til þess að koma til móts við
alla í skólanum en ekki bara þann
fámenna hóp sem telja flóttamenn
og vilja halda móðurmálinu sínu við?
Svo maður tali ekki um kjör kennara,
sem er annar kapítuli út af fyrir sig.
Hvernig væri svo að halda upp á 100
ára fullveldisafmælið með því að
hætta að kenna dönsku á Íslandi?
Stórsnjallt ef þú spyrð mig.
Hvað næst – ættum við
kannski að hætta að tala
dØnsku á sunnudøgum?
STÓRA
SERÍU
HELGIN 20-50%afsláttur
Heldur áfram
Allar seríur og jólaljós,
okkar mesta úrval frá upphafi
Fimmtudag til sunnudags
KOLSVARTUR
FÖSTUDAGUR
2 3 . n óve m b e r I F y l g i s t m e ð á h u s a . i s
LOKAORÐ
INGU BIRNU RAGNARSDÓTTUR
Munir og myndir vekja athygli
– á 40 ára sögusýningu Byggðasafns Reykjanesbæjar
Um þessar mundir eru 40 ár liðin frá stofnun Byggðasafns Reykja-
nesbæjar. Af því tilefni hefur verið opnuð sýning í Gryfjunni í Duus
Safnahúsum. Sýningin er sett upp til að minnast þess að nú eru 40
ár liðin frá því að bæjarstjórnir Njarðvíkur og Keflavíkur ákváðu
að setja sameiginlega á stofn byggðasafn.
Á sýningunni er farið yfir tildrög og
sögu safnsins, en ekki síður er vakin
athygli á mikilvægu starfi Byggða-
safnsins í veröld og samfélagi sem
breytist ört. Það fennir fljótt í sporin,
en hlutverk Byggðasafnsins er að
muna tímana tvenna, halda utan
um söguna og fræða nútímann og
komandi kynslóðir um fortíðina.
Reykjanesbær býr yfir sérstæðri sögu,
þar sem einmitt má greina afar skörp
skil á milli tveggja tíma; annars vegar
höfum við fiskibæina sem byggðu
allt sitt á fangbrögðum við hafið og
hins vegar langa sögu varnarliðs
sem nágranna innan girðingar og
uppbyggingu alþjóðaflugvallar. Inn
á þessa sögu er komið á sýningunni í
Gryfjunni sem er sú fyrsta af þremur
í tengslum við 40 ára afmælið en tvær
aðrar sýningar verða á nýju ári í til-
efni tímamótanna.
Meðfylgjandi myndir voru teknar við
opnun sýningarinnar en sýningar-
gestir sýndu munum og myndum á
sýningunni mikinn áhuga.
VF-myndir: Hilmar Bragi