Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2018, Blaðsíða 34
Hreyfing og námskeið 24. águst 2018KYNNINGARBLAÐ
MIÐSTÖÐ SÍMENNTUNAR Á SUÐURNESJUM:
Starfstengt nám á þínum forsendum
Sí- og endurmenntun er orðin sífellt mikilvægari í atvinnulífi nútímans þar sem starfsþró-
un og fagleg efling í starfi skipar
stóran sess. Miðstöð símenntun-
ar á Suðurnesjum (MSS) hefur
unnið markvisst að því að bjóða
starfstengt nám með það að mark-
miði að efla atvinnulíf og samfélag á
Suðurnesjum.
Á undanförnum árum hefur
þróun og tækni í námi og kennslu
tekið mikinn kipp hjá MSS. Stefnan
í kennslufræði fullorðinna miðar að
frekari þróun og auknum gæðum og
að miðstöðin verði framúrskarandi á
sviði fjarkennslu og fjarnáms.
Leikskóla- og stuðningsfulltrúa-
brú er tveggja ára námsleið fyrir þá
sem starfa í leik- og grunnskólum og
hafa ekki lokið formlegri menntun.
Kennsla og verkefnavinna miða
mjög að því að nýta starfsreynslu
og tengjast veruleikanum á starfs-
vettvangi. Markmið með náminu er
m.a. það að efla fagvitund og færni
í starfi en námið getur einnig verið
hvatning og fyrsta skref að frekara
námi.
Sölu-, markaðs- og rekstrarnám
er tveggja anna nám og hentar sér-
staklega vel fyrir þá sem ganga með
viðskiptahugmynd í maganum og
langar að láta drauminn um eigin
rekstur rætast. Námsleiðin er einnig
frábær styrkur fyrir þá sem eru nú
þegar í rekstri en vantar að skerpa
á hugmyndum og aðferðum t.d. í
markaðssetningu á samfélagsmiðl-
um. Hagnýtt nám sem skilar beinni
afurð í formi viðskiptaáætlunar og
plani um markaðsaðgerðir.
Skrifstofuskólinn, grunn- og
framhaldsnám, er sérhæft nám
fyrir fólk sem hefur áhuga á að ná
sér í góðan undirbúning fyrir skrif-
stofustörf eða hugar að frekara
námi á því sviði. Að námi loknu eiga
námsmenn að hafa öðlast færni í
skrifstofustörfum, hafa góða innsýn
í rekstur fyrirtækja og góða bók-
haldsþekkingu. Kennt er á bókhalds-
forritið Navision.
Skráning er hafin á allar
námsleiðir MSS. Nánari upplýsingar
á www.mss.is.
Útskriftarhópur síðustu annar en þá
útskrifuðust rúmlega 70 manns frá
ýmsum námsleiðum MSS
Þekking í þína þágu
Starfstengt nám
á þínum forsendum
Skráning og nánari upplýsingar á mss.is
MSS býður margvíslegt starfstengt og hagnýtt nám sem auðvelt er að stunda
með vinnu. Kennt er eftir skipulagi og hugmyndum dreifináms og vendikennslu þar
sem hluti af náminu fer fram á netinu og viðvera í skólastofu er minni fyrir vikið.
Skrifstofuskólinn
Frábær leið fyrir fólk sem vill efla færni sína í skrifstofustörfum, kynnast bókhaldi
og fá innsýn í rekstur fyrirtækja.
Leikskóla- og stuðningsfulltrúabrú
Kjörið nám fyrir starfsfólk leik- og grunnskóla sem vill efla fagvitund og færni
í starfi en námið getur einnig verið hvatning og fyrsta skref að frekara námi.
Sölu-, markaðs- og rekstrarnám
Tilvalið fyrir fólk sem vill stofna eigin rekstur eða gera enn betur í núverandi rekstri,
kynnast gerð viðskiptaáætlana og markaðssetningu á samfélagsmiðlum.