Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2018, Blaðsíða 42
42 LÍFSSTÍLL 24. águst 2018
Umboðsaðilar: Húsgagnaval - Höfn / Bara snilld ehf. - Egilsstöðum
Mikið úrval af
stillanlegum
rúmum
Gerið gæða- og verðsamanbuð
Ragnheiður Eiríksdóttir
er hjúkrunarfræðingur
og kynlífsráðgjafi.
raggaeiriks.com
raggaeiriks@gmail.com
Sæl
Ég er ógeðslega fúll út í stelpu sem
ég svaf hjá fyrir mánuði síðan. Við
hittumst á djamminu og vorum
saman eina nótt. Hún sagðist vera
á pillunni. Hún hringdi í mig og
sagðist vera með klamydíu og að
ég gæti verið smitaður. Nú þarf ég
að fara í tékk á „Húð- og kyn“ og
sitja þar eins og aumingi á öm-
urlegri biðstofu.
Ég hef verið að spá í að vara
félaga mína við þessari stelpu
því hún er víst algjör dræsa. Ég
vildi að ég hefði verið varaður við
henni. Mig langar ekki að upplifa
þessa „Húð- og kyn“ niðurlægingu
þannig að ég er að spá í hvort ég
geti ekki bara sleppt því. Ég hef
heyrt að klamydía sé mjög hættu-
leg fyrir konur en er þetta ekki allt í
lagi fyrir stráka? Ég mundi auðvit-
að nota smokka á hösslinu þangað
til þetta er búið.
Takk fyrir mig, Bjarni
Sæll Bjarni
Stoppa hér! Hvar er eiginlega þín
ábyrgð í þessu máli? Klamydían
gæti allt eins verið komin frá þér.
Þú gætir hafa smitað stelpuna en
ekki öfugt eins og þú virðist bú-
inn að ákveða. Klamydía hoppar
á milli fólks á hraða ljóssins og í
Reykjavík er engin leið að rekja
smit nema með meiriháttar
kortlagningu samfaranets næt-
urlífsins. Vertu heldur þakklátur
fyrir ábyrgðina sem stelpan sýn-
ir með því að hringja í þig – það
sýnir að henni stendur ekki á
sama þó að þú hafir aðeins verið
einnarnæturgaman.
Þú neyðist víst til að fara í tékk
því að þótt að klamminn smitist
álíka hratt og kvef er aðeins erf-
iðara að losna við hann. Bakter-
íuna þarf að drepa með sýkla-
lyfi. Ef þú gerir þetta ekki gæti
sýkingin grasserað í sáðrásinni
þinni og mögulega valdið var-
anlegum skemmdum. Það er al-
veg rétt að klamydía getur ver-
ið mjög hættuleg fyrir konur og
jafnvel valdið ófrjósemi ef látið
er hjá líða að meðhöndla sjúk-
dóminn með réttum lyfjum.
Við verðum að lokum að taka
fyrir þetta dræsutal. Mér heyr-
ist þú sjálfur vera passlega lau-
slátur hösslari. Og þú ert ekkert
sérstaklega að spá í smokkana,
nema auðvitað núna þegar þig
grunar að þú gætir verið með
klamma frænda í nærbuxunum.
Pillan er ágætis getnaðarvörn
en engin sjúkdómavörn og það
er á þína ábyrgð að verja þig og
þína rekkjunauta með því að
nota smokk. Þú ættir að minnsta
kosti að gera það um ókomna
framtíð á hösslinu ef þér finnst
biðstofan á „Húð- og kyn“ svona
hrikalega pínleg.
Jæja, drífðu þig nú af stað
drengur og hrós til stelpunnar
sem hringdi! n
Gamla fréttin:
Hitti mömmu sína í
BDSM-partíi á Akureyri
Þ
að var í febrúar árið 2015
sem DV var á staðnum
þegar BDSM-námskeið
og leikpartí fór fram á
Akureyri. Á annan tug tók þátt
í viðburðinum, meðal annars
mæðgur. Kom það báðum á
óvart að hittast á þessum vett-
vangi. Blaðamaður ræddi við
mæðgurnar og sagði móðirin:
„Við erum tvær fullorðnar mann-
eskjur og við lítum báðar á þetta
eins og hvaða áhugamál sem er.
Báðar vorum við mættar til að
sækja okkur upplýsingar. Þó að
við séum nánar förum við nú
ekkert út í smáatriði í kynlífi eða
skyldum hlutum. Við getum rætt
ýmislegt sem tengist BDSM án
þess að fara út í mjög persónu-
lega hluti eða smáatriði um hvað
við fílum.“
Það er því óhætt að segja
að fólksfæðin á okkar ástkæru
fósturjörð skapi oft skemmti-
legar aðstæður. Fæst okkar eiga
þó líklega eftir að upplifa að hitta
mömmu í BDSM-partíi! n
Það er heilmikil vinna að viðhalda neistanum en
margir eru tilbúnir að leggja hana á sig í stað þess að
rifta samningnum og snúa sér annað. Hér eru fimm
ráð.
Er svefnherbergið orðið ósexí?
Þú hefur örugglega oft heyrt og lesið að svefnherbergið eigi bara að
vera fyrir svefn og kynlíf. Samt eru flestir með alls konar tækni-
græjur uppi í rúmi og margir horfa á sjónvarp fyrir svefninn. Það er
erfiðara að stinga upp á kynlífi ef makinn er límdur við tölvuskjá
horfandi á Game of Thrones. Prófaðu að gera svefnherbergið að
tæknilausu svæði, fáðu þér gamaldags vekjaraklukku, loftaðu út
daglega og haltu rúmfötunum ferskum og hreinum. Prófaðu svo
að skipuleggja stefnumót við makann inni í rúmi – já skipuleggja,
þú gætir meira að segja búið til viðburð á Facebook fyrir ykkur tvö/
tvær/tvo.
Er lífið að sliga þig?
Skyldur í vinnu og á heimili geta verið sligandi – sérstaklega ef
þú ert í krefjandi starfi og kannski með nokkur börn á heimilinu.
Stöðugt áreiti gegnum samfélagsmiðla, tölvupóst, skilaboð, börn,
maka sem heimtar mat á borðið, þvottavél sem malar gerir það að
verkum að lítil orka er eftir til að njóta ásta. Ef líf þitt er svona getur
verið alveg nauðsynlegt að bóka tíma til að rækta kynlífssam-
bandið við makann.
Ertu kannski lasin/n?
Ýmsir sjúkdómar geta haft áhrif á kynlöngun og kynhvöt. Sumir þeirra
eru þess eðlis að fólk getur gengið með þá ógreinda langtímum saman.
Sjúkdómar eins og þunglyndi, járnskortur, síþreyta, vefjagigt, sykursýki og
háþrýstingur eru meðal þeirra sem geta haft áhrif á líðan, orku og ekki síst
kynhvöt. Ef þú hefur einhvern tíma upplifað langvarandi verki veistu líklega
að verkir stroka út allt sem heitir gredda. Ef þú þjáist af óútskýrðri þreytu
eða verkjum gæti verið sniðugt að kíkja í heimsókn til heimilislæknisins.
Þrjú ráð sem gætu
bjargað kynlífinu
„HÚN HRINGDI Í MIG OG SAGÐIST
VERA MEÐ KLAMYDÍU“