Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2018, Blaðsíða 62
62 FÓLK 24. ágúst 2018
Er fyrirtækið þitt
tilbúið fyrir nýju
persónuverndarlögin?
Hafðu samband við okkur í
gegnum DattacaLabs.com
„Við viljum
ekkert VIP-
kjaftæði“
Áttaði sig á ættartengslum við átrúnaðargoð sitt
„Ég er svolítill
hippi í mér
B
andaríski leikarinn og tón-
listarmaðurinn Seth Sharp
hyggst skapa ákveðna
„rave“ stemningu á laugar-
daginn í Iðnó með hópnum Plur
Iceland. Um er að ræða svokallaða
EDM-hátíð sem leggur áherslu
á rafræna danstónlist. Seth er
einn af þremur meðlimum hóps-
ins ásamt þeim Júníusi Þorsteins-
syni og Hirti Andra Hjartarsyni.
„Plur er alþjóðlegt lífsstílshugtak
fyrir rave-menningu og er þetta
skammstöfun fyrir Peace, Love,
Unity, Respect,“ segir Seth og tekur
fram að markmiðið með hópnum
sé að koma EDM almennilega til
Íslands í von um að styrkja hana.
Seth segir hvatann að samsetn-
ingu hópsins, fyrir utan sameigin-
legan tónlistarsmekk, hafa orðið
til á skemmtistaðnum Glaumbar.
„Þegar ég aðstoðaði við reksturinn
á Glaumbar tókst okkur að skapa
andrúmsloft sem mig langaði til
þess að endurskapa með klúbbi.
Ég vildi huggulegt andrúmsloft þar
sem allir væru velkomnir, sama
hvaða stétt eða bakgrunni við-
komandi tilheyrði. Við viljum ekk-
ert VIP-kjaftæði,“ segir Seth. „Með
Plur Iceland vildi ég einhvern veg-
inn binda saman þessi hugtök um
frið, ást, sameiningu og virðingu.
Ég er svolítill hippi í mér, en þetta
eru gildin sem ég trúi almennt á.“
Klikkaði draumurinn sem varð
að veruleika
Seth hefur aldeilis farið um víð-
an völl. Hann hefur komið að
fjöldamörgum tónlistarsýning-
um, leiksýningum og sjónvarps-
þáttum. Einnig hefur hann sinnt
störfum sem raddþjálfari, þar á
meðal fyrir popphljómsveitina Sc-
issor Sisters. Þar að auki var hann
yngsta manneskjan í Connecticut-
fylki í Bandaríkjunum til þess að
stýra sínum eigin útvarpsþætti
sem plötusnúður, en þá var hann
aðeins þrettán ára gamall. Seth
hefur jafnframt hlotið verðlaun
frá NAACP, hagsmunasamtökum
þeldökkra í Bandaríkjunum, fyrir
afrek sín í tónlistinni.
Að sögn tónlistarmannsins
var hann haldinn þráhyggju fyrir
Íslandi í æsku, sem hófst einn
daginn þegar hann las um landið
í alfræðiorðabók. Einnig spilar
sú staðreynd inn í að hann hrífst
gífu lega af kulda. „Ég ákvað að ég
þyrfti að flytja þangað einhvern
daginn, enda ákveður maður hina
klikkuðustu hluti þegar maður er
krakki,“ segir Seth. „Málið er ein-
faldlega þannig að ég elska kulda
og ein ástæðan fyrir því að ég flutti
til Íslands var sú að mig langaði
til þess að vera í miklum kulda.
Ég hefði í rauninni flust á norð-
urskautið ef móðir mín hefði ekki
mælt gegn því.“
Lítill heimur minnkaði
Seth segir að fjölskylda hans hafi
alið hann upp á jákvæðum gildum
og leit hann mikið upp til aðgerða-
sinna sem börðust fyrir mann-
réttindum og afnámi aðskilnað-
ar á milli svartra og hvítra, til að
mynda Martins Luthers King og
Rosu Parks. Hann rifjar upp undr-
unarsvip sinn þegar hann komst
að því að hann væri skyldur öðru
þeirra.
„Fjölskylda mín hefur alltaf
verið á fullu í mannréttindabar-
áttu. Þegar ég var í gagnfræðaskóla
fékk ég tækifæri til þess að hitta
Rosu Parks, eitt af átrúnaðargoð-
um mínum. Mér hafði alltaf fund-
ist hún æðisleg og svo kom í ljós í
miðju
spjalli að hún væri á leiðinni á eitt-
hvert ættarmót þá helgi. Ég man
ekki hvernig umræðan kom upp,
en sjálfur var ég á leiðinni á ættar-
mót og spurði hana: „Bíddu, hvar
eiginlega?“ Þá nefndi hún stað-
setninguna og kom þá í ljós að
hún og amma mín voru frænkur,“
segir Seth og bætir við: „Og ég hélt
að Ísland væri lítill heimur!”
Sonur forsetans gríðarlegur
áhrifavaldur
Seth tekur fram að Rosa Parks og
Martin Luther King hafi verið þeir
áhrifavaldar sem hvöttu hann og
fjölskyldu hans til þess að vera
opin gagnvart öllu fólki. „Þau
kenndu okkur að fólk í réttinda-
stöðu ætti að nota þá aðstöðu til
þess að hjálpa öðrum og opna dyr
fyrir öðrum, frekar en að halla sér
aftur og njóta hennar sjálf,“ segir
Seth.
Bætir hann þá við að annar
frægur einstaklingur hafi eflt
þetta hugarfar. „Móðir mín starf-
aði eitt sinn sem leikhússtýra í
búðum fyrir forréttindalaus börn.
Aðstoðarmaður hennar þar var
enginn annar en John F. Kenn-
edy yngri, sonur forsetans,“ segir
hann.
„Hann var önnur fígúra sem ég
kynntist sem hafði gríðarleg áhrif
á mig. Hér var maður sem fólk sá
sem einhvern „Bandaríkjaprins,“
með allan þennan pening, og kon-
ur flykktust að honum. Hins vegar
hann eyddi hann sumrum sínum
sem aðstoðarmaður mömmu
minnar, í fátæklegum búðum sem
kenndu börnum leiklist. Þetta
þótti mér alveg magnað og finnst
að fleiri ættu að taka sér svona
hugarfar til fyrirmyndar.“ n
Seth Sharp vill efla
raftónlistarmenningu á Íslandi:
Tómas Valgeirsson
tomas@dv.is
Rosa Parks er
þekkt fyrir að
neita að standa
upp fyrir hvítum
manni í strætis-
vagni.
Strákarnir á bakvið Plur Iceland.