Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2018, Qupperneq 62

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2018, Qupperneq 62
62 FÓLK 24. ágúst 2018 Er fyrirtækið þitt tilbúið fyrir nýju persónuverndarlögin? Hafðu samband við okkur í gegnum DattacaLabs.com „Við viljum ekkert VIP- kjaftæði“ Áttaði sig á ættartengslum við átrúnaðargoð sitt „Ég er svolítill hippi í mér B andaríski leikarinn og tón- listarmaðurinn Seth Sharp hyggst skapa ákveðna „rave“ stemningu á laugar- daginn í Iðnó með hópnum Plur Iceland. Um er að ræða svokallaða EDM-hátíð sem leggur áherslu á rafræna danstónlist. Seth er einn af þremur meðlimum hóps- ins ásamt þeim Júníusi Þorsteins- syni og Hirti Andra Hjartarsyni. „Plur er alþjóðlegt lífsstílshugtak fyrir rave-menningu og er þetta skammstöfun fyrir Peace, Love, Unity, Respect,“ segir Seth og tekur fram að markmiðið með hópnum sé að koma EDM almennilega til Íslands í von um að styrkja hana. Seth segir hvatann að samsetn- ingu hópsins, fyrir utan sameigin- legan tónlistarsmekk, hafa orðið til á skemmtistaðnum Glaumbar. „Þegar ég aðstoðaði við reksturinn á Glaumbar tókst okkur að skapa andrúmsloft sem mig langaði til þess að endurskapa með klúbbi. Ég vildi huggulegt andrúmsloft þar sem allir væru velkomnir, sama hvaða stétt eða bakgrunni við- komandi tilheyrði. Við viljum ekk- ert VIP-kjaftæði,“ segir Seth. „Með Plur Iceland vildi ég einhvern veg- inn binda saman þessi hugtök um frið, ást, sameiningu og virðingu. Ég er svolítill hippi í mér, en þetta eru gildin sem ég trúi almennt á.“ Klikkaði draumurinn sem varð að veruleika Seth hefur aldeilis farið um víð- an völl. Hann hefur komið að fjöldamörgum tónlistarsýning- um, leiksýningum og sjónvarps- þáttum. Einnig hefur hann sinnt störfum sem raddþjálfari, þar á meðal fyrir popphljómsveitina Sc- issor Sisters. Þar að auki var hann yngsta manneskjan í Connecticut- fylki í Bandaríkjunum til þess að stýra sínum eigin útvarpsþætti sem plötusnúður, en þá var hann aðeins þrettán ára gamall. Seth hefur jafnframt hlotið verðlaun frá NAACP, hagsmunasamtökum þeldökkra í Bandaríkjunum, fyrir afrek sín í tónlistinni. Að sögn tónlistarmannsins var hann haldinn þráhyggju fyrir Íslandi í æsku, sem hófst einn daginn þegar hann las um landið í alfræðiorðabók. Einnig spilar sú staðreynd inn í að hann hrífst gífu lega af kulda. „Ég ákvað að ég þyrfti að flytja þangað einhvern daginn, enda ákveður maður hina klikkuðustu hluti þegar maður er krakki,“ segir Seth. „Málið er ein- faldlega þannig að ég elska kulda og ein ástæðan fyrir því að ég flutti til Íslands var sú að mig langaði til þess að vera í miklum kulda. Ég hefði í rauninni flust á norð- urskautið ef móðir mín hefði ekki mælt gegn því.“ Lítill heimur minnkaði Seth segir að fjölskylda hans hafi alið hann upp á jákvæðum gildum og leit hann mikið upp til aðgerða- sinna sem börðust fyrir mann- réttindum og afnámi aðskilnað- ar á milli svartra og hvítra, til að mynda Martins Luthers King og Rosu Parks. Hann rifjar upp undr- unarsvip sinn þegar hann komst að því að hann væri skyldur öðru þeirra. „Fjölskylda mín hefur alltaf verið á fullu í mannréttindabar- áttu. Þegar ég var í gagnfræðaskóla fékk ég tækifæri til þess að hitta Rosu Parks, eitt af átrúnaðargoð- um mínum. Mér hafði alltaf fund- ist hún æðisleg og svo kom í ljós í miðju spjalli að hún væri á leiðinni á eitt- hvert ættarmót þá helgi. Ég man ekki hvernig umræðan kom upp, en sjálfur var ég á leiðinni á ættar- mót og spurði hana: „Bíddu, hvar eiginlega?“ Þá nefndi hún stað- setninguna og kom þá í ljós að hún og amma mín voru frænkur,“ segir Seth og bætir við: „Og ég hélt að Ísland væri lítill heimur!” Sonur forsetans gríðarlegur áhrifavaldur Seth tekur fram að Rosa Parks og Martin Luther King hafi verið þeir áhrifavaldar sem hvöttu hann og fjölskyldu hans til þess að vera opin gagnvart öllu fólki. „Þau kenndu okkur að fólk í réttinda- stöðu ætti að nota þá aðstöðu til þess að hjálpa öðrum og opna dyr fyrir öðrum, frekar en að halla sér aftur og njóta hennar sjálf,“ segir Seth. Bætir hann þá við að annar frægur einstaklingur hafi eflt þetta hugarfar. „Móðir mín starf- aði eitt sinn sem leikhússtýra í búðum fyrir forréttindalaus börn. Aðstoðarmaður hennar þar var enginn annar en John F. Kenn- edy yngri, sonur forsetans,“ segir hann. „Hann var önnur fígúra sem ég kynntist sem hafði gríðarleg áhrif á mig. Hér var maður sem fólk sá sem einhvern „Bandaríkjaprins,“ með allan þennan pening, og kon- ur flykktust að honum. Hins vegar hann eyddi hann sumrum sínum sem aðstoðarmaður mömmu minnar, í fátæklegum búðum sem kenndu börnum leiklist. Þetta þótti mér alveg magnað og finnst að fleiri ættu að taka sér svona hugarfar til fyrirmyndar.“ n Seth Sharp vill efla raftónlistarmenningu á Íslandi: Tómas Valgeirsson tomas@dv.is Rosa Parks er þekkt fyrir að neita að standa upp fyrir hvítum manni í strætis- vagni. Strákarnir á bakvið Plur Iceland.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.