Fréttablaðið - 05.12.2018, Page 30

Fréttablaðið - 05.12.2018, Page 30
Greinendur spá því að verslunarhúsnæði í Bretlandi falli um tugi prósenta í verði á næstu misserum. Verðfallið endurspeglar erfitt ár- ferði í breskri smásölu. Virði fasteignasjóða rýrnar verulega. Fimm stærstu fasteigna-sjóðir Bretlands hafa fjár-fest fyrir meira en fjóra milljarða punda, jafnvirði tæplega 630 milljarða króna, í bresku verslunarhúsnæði sem greinendur telja að muni falla um tugi prósenta í verði á næstu misserum. Verslunarhúsnæði myndar stóran hluta af eignasafni stærstu fjárfest- ingasjóða Bretlands sem sérhæfa sig í kaupum og rekstri fasteigna. Sjóðstjórar umræddra sjóða segja í samtali við Financial Times að verð á slíku húsnæði fari nú hratt lækkandi vegna versnandi horfa á breskum smásölumarkaði. Um 40 prósent af eignum M&G Property Portfolio, stærsta fast- eignasjóðs Bretlands, er í verslunar- húsnæði og er samsvarandi hlutfall um 20 prósent hjá næststærsta sjóðnum, L&G UK Property, að því er segir í fréttaskýringu Financial Times um málið. Þrátt fyrir að ýmis merki séu um að breski fasteignamarkaðurinn hafi náð toppi og miklar verð- lækkanir séu yfirvofandi – en sumir greinendur tala um verðhrun í því sambandi – hafa fjárfestar haldið áfram að leggja fé í þarlenda fast- eignasjóði. Þannig var innflæði frá breskum einkafjárfestum í slíka sjóði um 402 milljónir punda, sem jafngildir um 63 milljörðum króna, umfram útflæði á fyrstu níu mán- uðum þessa árs, samkvæmt upplýs- ingum frá Investment Association. Sérfræðingar eignastýringarfyrir- tækisins Fidelity International gáfu í síðustu viku út svarta skýrslu um breska verslunarhúsnæðismarkað- inn þar sem því er spáð að verð á markaðinum falli um á bilinu 20 til 70 prósent á næstu misserum. Búast þeir jafnframt við því að leigu- verð á verslunarhúsnæði lækki um 10 til 40 prósent. Var tekið fram í skýrslunni að núverandi erfið- leikar í rekstri breskra smásala væru „aðeins upphafið“. Erfiðari tímar væru fram undan. Spá sérfræðinga Fidelity er umtalsvert svartsýnni en spá ann- arra greinenda sem gera þó ráð fyrir talsverðum verðlækkunum á næstu mánuðum. Mike Prew, greinandi hjá fjárfestingarbankanum Jefferies, býst til að mynda við því að verð á verslunarhúsnæði lækki um 20,4 prósent á næstu þrettán mánuðum og þá spá sérfræðingar Barclays- bankans 11,4 prósenta verðlækkun á næsta ári og 10,8 prósenta lækkun árið 2020. „Við erum að horfa upp á mikla og varanlega leiðréttingu á verði í verslunargeiranum,“ segir Prew. Einkafjárfestar eiga mikið undir Sérfræðingar Fidelity áætla að verslunarhúsnæði myndi að með- altali um 41 prósent af eignasafni breskra óskráðra fasteignasjóða en sambærilegt hlutfall er að jafnaði á bilinu 20 til 25 prósent á meðal fasteignasjóða í öðrum ríkjum. Í fréttaskýringu Financial Times er jafnframt bent á að einkafjár- festar eigi mikið undir því að mark- aðurinn fyrir verslunarhúsnæði haldist stöðugur enda fari þeir með stóran eignarhlut í stærstu fasteignasjóðum Bretlands. David Wies, sem stýrir fasteigna- sjóðnum Kames Property Income, segir að það verði að viðurkennast hve „slæmar“ sumar eignir í söfnum fasteignasjóða séu. Fjárfestar verði einfaldlega að horfast í augu við raunveruleikann. Margir breskir smásalar og verslanakeðjur hafa sem kunnugt er átt erfitt uppdráttar undanfarin misseri. Gjörbreytt samkeppnis- umhverfi, með stóraukinni net- verslun, minna trausti neytenda og breyttri hegðun nýrrar kynslóðar, hefur valdið því að ýmsar rót- grónar verslanir hafa þurft að leita leiða til þess að hagræða í rekstri og ná kostnaði niður. Til marks um árferðið var yfir 24.200 versl- unum lokað í Bretlandi á fyrstu sex mánuðum ársins. Hefur fleiri versl- unum ekki verið lokað á jafn stuttu tímabili í að minnsta kosti fimm ár. Sjóðstjórar sem Financial Times ræddi við segja að lækkanir á leiguverði sem og hrina gjaldþrota í breskri smásölu hafi þegar ýtt undir verðlækkanir á verslunar- húsnæði sem rýri aftur virði fast- eignasjóða. Engu að síður hafa breskir fast- eignasjóðir enn sem komið er skilað jákvæðri ávöxtun. Sé litið til síðustu tólf mánaða hefur ávöxtun slíkra sjóða verið jákvæð um tæp- lega sex prósent að meðaltali. Ávöxtun stærsta sjóðsins, M&G Property Portfolio, sem er 3,6 milljarðar punda að stærð, nemur um sex prósentum undanfarið ár og á sama tíma hefur næststærsti sjóðurinn, L&G UK Property, skilað átta prósenta ávöxtun, samkvæmt gögnum frá Morningstar. Blikur á lofti Greinendur og sjóðstjórar telja samt sem áður að blikur séu á lofti. „Við erum mjög varfærnir þegar kemur að breskum verslunareignum,“ segir til dæmis Ryan Hughes, fram- kvæmdastjóri hjá eignastýringar- fyrirtækinu AJ Bell. Virði verslunareigna í eignasafni M&G Property Portfolio rýrnaði um tvö prósent á fyrstu níu mánuðum ársins, að sögn sjóðstjórans Justins Upton, en ástæðurnar eru fyrst og fremst fleiri gjaldþrot á smásölu- markaðinum og minnkandi tekju- streymi eignanna. Fastlega má gera ráð fyrir að virði eigna sjóðsins minnki enn frekar á næstunni enda er sjóðurinn á meðal stærstu leigusala verslunar- keðjunnar Debenhams sem áformar að loka allt að fimmtíu af 165 versl- unum sínum á næstu þremur til fimm árum. kristinningi@frettabladid.is Spá verðfalli á bresku verslunarhúsnæði Margar breskar verslanakeðjur hafa átt erfitt uppdráttar undanfarna mánuði. Breytt samkeppnisumhverfi, með aukinni netverslun, minna trausti neytenda og breyttri hegðun nýrrar kynslóðar, hefur valdið því að ýmsar rótgrónar verslanir hafa þurft að leita leiða til þess að hagræða í rekstri. Nordicphotos/GEtty 4 milljarðar punda er fjárfest- ing fimm stærstu fasteigna- sjóða Bretlands í verslunar- húsnæði. 18% er meðaltalslækkun á hluta- bréfaverði breskra smásala frá því í byrjun árs 2015. Bandaríska dómsmálaráðu-neytið hefur ákært Mike Lynch, fyrrverandi forstjóra Autonomy, í tengslum við 11 milljarða dala sölu á hugbúnaðar- fyrirtækinu til tölvurisans Hewlett- Packard fyrir sjö árum. Lynch, sem er ákærður í fjórtán liðum fyrir svik og samsæri, gæti átt yfir höfði sér allt að tuttugu ára fangelsisdóm verði hann fundinn sekur. Bandarísk yfirvöld hafa jafn- framt krafist þess að hann greiði um 815 milljónir dala í sekt en sú fjárhæð jafngildir hagnaði hans af sölu Autonomy, félagsins sem Lynch stofnaði og rak. Stephen Chamberlain, fyrrver- andi yfirstjórnandi hjá Autonomy, var jafnframt ákærður í málinu. Sushovan Hussain, fyrrverandi fjármálastjóri hugbúnaðarfyrirtæk- isins, var fyrr á árinu sakfelldur fyrir svipuð brot og Lynch er sakaður um, að því er segir í frétt Financial Times um málið. Bandaríska dómsmálaráðuneytið sakar þá Lynch og Chamberlain um að hafa falsað fjárhagstölur Auto- nomy frá því í byrjun árs 2009 þar til í október 2011, þegar tilkynnt var um yfirtöku HP á fyrirtækinu. Í ákæru ráðuneytisins eru tiltekin 28 tilvik þar sem stjórnendurnir fyrrverandi eru sagðir hafa gefið út ósannar yfirlýsingar um fjárhags- stöðu Autonomy. Lynch seldi HP félagið árið 2011 fyrir 11 milljarða dala sem jafngildir um 1.350 milljörðum króna miðað við núverandi gengi. Ári eftir söluna sakaði Meg Whitman, þáverandi forstjóri HP, hann og aðra stjórn- endur Autonomy um að hafa fegrað vísvitandi fjárhagstölur fyrirtækis- ins. Þurfti HP að færa niður eignir í bókum sínum að virði 8,8 milljarða dala. Lögmenn Lynch kölluðu ákæruna „skrípaleik“ og sögðu að skjólstæð- ingur sinn hygðist verjast ásökun- unum af fullum krafti. – kij  Sakaður um að falsa fjárhagstölur Svissneski bankinn UBS hefur fengið leyfi frá kínverskum stjórnvöldum til þess að eign- ast 51 prósents hlut í verðbréfa- fyrirtækinu UBS Securities í Pek- ing. Bankinn verður þar með fyrsti erlendi bankinn til þess að eignast meira en helmingshlut í kínversku verðbréfafyrirtæki. Bankinn fer nú með 24,99 pró- senta hlut í umræddu fyrirtæki en aðrir hluthafar eru kínverskir. Öðlast þarf samþykki frá kínverska verðbréfaeftirlitinu til þess að eign- ast meira en helmingshlut í þar- lendu fjármálafyrirtæki. Erlendir bankar og aðrar fjár- málastofnanir hafa um langt skeið leitast við að styrkja stöðu sína á kínverskum fjármálamarkaði en mætt nokkurri mótstöðu af hálfu stjórnvalda í Kína. Breytingar hafa hins vegar orðið á því undanfarna mánuði, eftir því sem fram kemur í frétt Financial Times. Hafa kínversk yfirvöld heitið því að auka aðgang erlendra banka að kínverskum markaði gegn því að kínverskir bankar fái að fjárfesta í auknum mæli á erlendri grundu. – kij UBS fær grænt ljós frá kínverskum yfirvöldum UBs hyggst efla starfsemi sína í Kína. Nordicphotos/GEtty Mike Lynch, fyrrverandi forstjóri Autonomy. Nordicphotos/GEtty Eiga erfitt með að losa sig við verslunarhúsnæði Gengi hlutabréfa í breskum fasteignafélögum sem sérhæfa sig í rekstri verslunarhúsnæðis gefur til kynna að fjárfestar búist við því að eignir félaganna falli um 16 til 19 prósent í verði. Þetta er mat greinenda ráð- gjafarfyrirtækisins KPMG. Í greiningu KPMG er til samanburðar bent á að verð á verslunarhús- næði í eigu breskra félaga hafi lækkað um 20 prósent í fjármálakreppunni á árunum 2007 til 2009. Í fréttaskýringu Financial Times kemur enn fremur fram að eigendur bresks verslunarhúsnæðis eigi í erfiðleikum með að selja það á viðunandi verði. Mikill munur sé á verðhugmyndum kaupenda og seljenda. Er í því sambandi bent á að virði verslunarmiðstöðva sem skiptu um eigendur á þriðja fjórðungi ársins hafi ekki verið lægra í að minnsta kosti 23 ár. 5 . d e s e m b e r 2 0 1 8 m I Ð V I K U d A G U r10 markaðurinn 0 5 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :2 3 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 A 2 -F 4 E 4 2 1 A 2 -F 3 A 8 2 1 A 2 -F 2 6 C 2 1 A 2 -F 1 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 4 _ 1 2 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.