Fréttablaðið - 02.01.2019, Page 4
STJÓRNANDI & KYNNIR:
Sigurður Flosason
Friðrik Ómar Hansa Jógvan Katrín Halldóra
NÝÁRSTÓNLEIKAR 6. JANÚAR ELDBORG
MARKAÐSMÁL Tryggvi Axelsson, for-
stjóri Neytendastofu, telur að við
fyrstu sýn sé uppstilling á drykkjun-
um Bola og Kristal, sem stóðu á borð-
inu undir umræðum forystumanna
stjórnmálaflokkanna á Alþingi í
Kryddsíld Stöðvar 2 á gamlársdag sé
svokölluð innsetning.
Í Kryddsíldinni var nokkrum
flöskum af bjórnum Bola og sóda-
vatnsdrykknum Kristal stillt upp á
borðinu svo greinilega sást í vöru-
merkin.
„Ég tók sjálfur eftir þessu en ég
get ekki sagt hvort þetta sé brot á
reglum eða ekki án þess að hafa rætt
við framleiðendur og fengið alla sög-
una,“ sagði Tryggvi við Fréttablaðið í
gær. Málið verði tekið til skoðunar
hjá Neytendastofu
Í Kryddsíldinni var aldrei tekið
fram að veitingarnar væru í boði
Ölgerðarinnar eða sagt að um aug-
lýsingu væri að ræða. Hins vegar
voru Ölgerðinni færðar þakkir í lok
þáttarins, í svokölluðum kredit-lista.
Svanur Valgeirsson, auglýsinga-
stjóri Stöðvar 2, sagði alveg ljóst að
ekki væri verið að rukka fyrir mark-
aðssetningu á áfengi. „Við höfum
fundað ítrekað með fjölmiðlanefnd
eftir að hafa brennt okkur nokkrum
sinnum á þessum reglum áður og
lögin eru alveg skýr,“ sagði Svanur.
„Þessu er ekki stillt svona upp að
okkar ósk, heldur eru það þjónarnir
sem stilla þessu svona upp,“ bætti
Svanur við. Rekstaraðili salarins þar
sem Kryddsíldin var tekin upp sé
með samning við Ölgerðina.
Spurður að því hvers vegna
Ölgerðinni eru færðar þakkir í lok
þáttarins kvaðst Svanur ekki vita
það. „Þetta kom mér á óvart,“ sagði
auglýsingastjórinn. „Við erum ekki
að þakka fyrir þessar veitingar.“
Þórir Guðmundsson, ritstjóri
fréttastofu, sagði áfengi hafa verið
haft um hönd í Kryddsíldinni að
venju. „Hann er á borðinu af því að
menn eru að drekka,“ sagði Þórir. – jt
Neytendastofa mun skoða hvort áfengi var auglýst í Kryddsíldinni
Bjór frá Ölgerðinni var sýnilegur í Kryddsíldinni og fyrirtækið fékk þakkir í
lokin. Auglýsingastjóri Stöðvar 2 segir það hafa komið sér á óvart. MYND/STÖÐ 2
STJÓRNMÁL „Fátæktar og misréttis
gætti hér lengi og gætir enn; goð-
sagnir um annað þarf að varast,“
sagði forseti Íslands, Guðni Th.
Jóhannesson, í nýársávarpi í gær.
„Nú eiga mun fleiri þess kost að
mennta sig og ferðast, vinna við
og sinna því sem hugurinn girnist,
elska, trúa og tjá sig um hvaðeina,
ráða eigin lífi í samfélagi frelsis og
jafnréttis, fjölbreytni og mildi. Í gleði
yfir þessu og öðru á framfarabraut
skulum við samt ekki gleyma hinu
sem miður fór,“ sagði Guðni.
Að sögn forsetans er nauðsyn-
legt að fela ekki það sem aflaga fór.
„Hugsum til þeirra sem mættu mót-
byr á árinu, þeirra sem búa við sorg
og missi, þeirra sem þurfa stuðning
okkar og samkennd,“ brýndi hann
fyrir þjóðinni.
„Fatlaðir og þroskahamlaðir voru
að mestu utangarðs, þeir sem helst
þurftu aukið atlæti. Í fyrra urðu
þau ánægjulegu tíðindi að lög um
notendastýrða persónulega aðstoð
gengu í gildi og ný lög voru sett um
þjónustu við fatlað fólk með lang-
varandi stuðningsþarfir,“ sagði for-
setinn og minnti á erfitt hlutskipti
þroskahamlaðra og fólks með geð-
rænar raskanir á vistheimilum.
„Fagnaðarefni er að fórnarlömb
þeirrar rangsleitni hafa hlotið sann-
girnisbætur þótt áfram megi huga að
stöðu þeirra sem brotið var á.“
Forsetinn sagði sjálfsvíg helsta
dánarorsök ungra karlmanna.
„Í þessu landi frelsis og framfara
verða of mörg ungmenni háð fíkni-
efnum og ávanalyfjum. Við megum
ekki bara leyfa þeim að falla, æsku-
fólk sem á skilið aðstoð og von,“
sagði forseti Íslands. – gar
Goðsögn að ekki gæti fátæktar á Íslandi
Guðni Th. Jóhannesson forseti tók á móti gestum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
LEIÐRÉTTING
Í Fréttablaðinu á gamlársdag
var mynd af Dr. Birni Karlssyni,
forstjóra Mannvirkjastofnunar,
ásamt tveimur stúlkubörnum
að kaupa flugelda. Björn er faðir
stúlknanna en ekki afi þeirra eins og
ranglega sagði í myndatexta.
STJÓRNMÁL „Við verðum ekki öll
friðarverðlaunahafar Nóbels en við,
sem eigum því láni að fagna að búa í
einu friðsælasta landi heims, getum
öll lagt okkar af mörkum, munað
hvert eftir öðru, hlúð hvert að öðru
og lagt okkar lóð á vogarskálarnar
til að gera samfélagið aðeins betra;
heiminn aðeins fallegri,“ sagði Katr-
ín Jakobsdóttir forsætisráðherra í
áramótaávarpi sínu.
Katrín sagði blikur á lofti í heims-
málum. „Nýjar áskoranir á alþjóða-
sviðinu krefjast þess að við stöndum
styrkari vörð um mannréttindi en
nokkru sinni fyrr,“ sagði hún.
Þá sagði forsætisráðherra að vegna
þess að sala náttúruauðlinda sé
hverful atvinnugrein hafi aldrei verið
mikilvægara að horfa til hugvits og
nýsköpunar. „Við lifum þá tíma að
öllu skiptir að við horfum til lengri
tíma en ekki einungis umræðna
augnabliksins og líðandi stundar,“
sagði Katrín.
Forsætisráðherra sagði ríkisstjórn-
ina mundu leggja sitt af mörkum til
að greiða fyrir kjarasamningum. „Við
verðum öll að nálgast viðfangsefnið
af virðingu fyrir þeirri ábyrgð sem
við berum,“ sagði Katrín Jakobs-
dóttir. – gar
Íslendingar geri
heiminn fallegri
Katrín Jakobs-
dóttir forsætis-
ráðherra.
LÖGREGLUMÁL Verkefnum lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu
fjölgaði í fyrra, samanborið við árin
þar á undan.
Skráð voru sextán prósent fleiri
mál hjá lögreglunni árið 2018 en að
meðaltali árin 2015 til 2017. Einnig
voru afskipti höfð af fjórðungi fleiri
einstaklingum í fyrra og lögreglan
sinnti 27 prósent fleiri verkefnum.
Á hverjum einasta degi voru að jafn-
aði skráð um 350 verkefni í málaskrá
lögreglunnar en þau voru um 280 að
meðaltali hin þrjú árin á undan.
Þetta kemur fram í bráðabirgða-
niðurstöðum lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu um afbrotatölfræði
ársins 2018.
Til að mynda var tilkynnt um
9.762 hegningarlagabrot til lögregl-
unnar sem er fimm prósent fjölgun
milli ára. Umferðarlagabrotum
fjölgaði mikið á árinu sem leið og
voru um 45 þúsund brot skráð á
höfuðborgarsvæðinu sem er fimm-
tán prósent fjölgun milli ára.
„Hegningarlagabrotum fjölgar
og þar er það aðallega heimilisof-
beldismálum sem fjölgar. Einnig er
aukning í kynferðisbrotum með
aukinni tiltrú á kerfinu og meiri
umræðu í samfélaginu með tilkomu
Me too hreyfingarinnar. Allt slíkt
umtal hjálpar,“ segir Sigríður Björk
Guðjónsdóttir, lögreglustjóri lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinuþ
Þá segir Sigríður Björk fleiri mál
koma inn til lögreglu frá Bjarka-
hlíð sem hún telji að að hefðu ekki
að öðrum kosti komið inn á borð
lögreglu.
„Brotaþolar eiga kannski auð-
veldara með að koma þangað en
inn á lögreglustöð til okkar beint.
Við auðvitað viljum að öll lögbrot
komi á borð lögreglunnar.“
Að mati Sigríðar Bjarkar hafa
lögreglumenn unnið afar gott starf
á árinu og mikill kraftur sé í starfi
þeirra. Markmiðið sé að veita lands-
mönnum góða þjónustu og auka
öryggið.
Við sjáum hins vegar núna að
innbrotum fjölgar og þar eru oft
skipulagðir erlendir hópar að verki
sem koma inn þegar velmegun hér
er mikil. Við höfum á árinu upprætt
nokkra slíka hópa en svo virðist sem
nýir hópar komi inn í staðinn,“ segir
Sigríður Björk Guðjónsdóttir.
sveinn@frettabladid.is
Mikil fjölgun skráðra afbrota á
höfuðborgarsvæðinu árið 2018
Bráðabirgðaniðurstöður benda til þess að afbrotum hafi fjölgað umtalsvert í fyrra hjá lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu. Innbrotum fjölgaði um tæp 60 prósent. Umferðarlagabrot voru um 45 þúsund. Tilkynnt
var um 9.762 hegninarlagabrot. Í heild voru skráð 16 prósent fleiri mál en var að meðaltali 2015 til 2017.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu skráði um 350 mál hvern dag. Lögreglustjóri þakkar öflugu liði. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Afbrot árið 2018
44.984 umferðarlagabrot voru
skráð árið 2018.
34% fjölgun tilkynntra nauðgana
í fyrra miðað við árið 2017.
59% fjölgun tilkynntra innbrota í
fyrra miðað við árið 2017.
2 . J A N Ú A R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
2
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:5
5
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
E
D
-3
8
B
C
2
1
E
D
-3
7
8
0
2
1
E
D
-3
6
4
4
2
1
E
D
-3
5
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
1
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K