Fréttablaðið - 02.01.2019, Side 30
Járn & Gler ehf. • Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin
104 Reykjavík • S. 58 58 900 • www.jarngler.is
Bjóðum upp á sjálfvirkan
hurðaopnunarbúnað,
hurðir og gluggakerfi
ásamt uppsetningu
og viðhaldi á búnaði.
Áratuga reynsla.
Símaveski,
heyrnartól, snúrur
og allt fyrir
símann.
Símaveski.is, S. 517 0150 – 2. hæð Smáralind
First Reformed (english-no sub) .... 17:40
Roma (spanish w/eng sub) ................... 18:00
Plagi Breslau (polish w/eng sub) .... 18:00
Kalt stríð // Cold War (ice sub) ...... 20:00
First Reformed (english-no sub) ... 20:00
Suspiria (ice sub) ..................................... 21:00
Milosc jest wszystkim(pol. w/eng sub) .22:00
Erfingjarnir//The Heiresses (ice sub) ..22:20
HAPPY HOUR Á BARNUM 17-19 NÁNAR Á BIOPARADIS.IS
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Miðvikudagur
hvar@frettabladid.is
2. JANÚAR 2019
Viðburðir
Hvað? SalsaIceland Glitter & glamour
danskvöld 2. jan. á Iðnó
Hvenær? 19.30
Hvar? Iðnó
Við hefjum árið með hvelli og
bjóðum í „Glitter & glamour“
danskvöld á Iðnó þar sem öll
dansflóran fær að njóta sín. Við
hvetjum alla til að mæta í sínu
fínasta pússi og bjóðum upp á
geggjaðar danssýningar í fallegasta
umhverfi Reykjavíkurborgar á 1.
hæð Iðnó. Ókeypis prufutíminn
fyrir byrjendur í salsa er á sínum
stað kl. 19.30 og eftir það fær salsa,
bachata og kizomba að njóta sín,
í takt við vinsældir á dansgólfinu.
Showtime er kl. 22.00 og kvöldinu
lýkur kl. 23.30, svo við hvetjum alla
til að mæta tímanlega.
Hvað? Sagatid - Nutid
Hvenær? 11.00
Hvar? Veröld – Hús Vigdísar
Íslendingasögurnar komu út árið
2014 í nýrri danskri þýðingu, með
myndskreytingum myndlistarkon-
unnar Karin Birgitte Lund. Sýning
á verkum hennar fyrir útgáfuna er
nú haldin í tilefni af 100 ára afmæli
fullveldis Íslands. Teikningarnar
byggja á myndskreytingum og
fagurfræði víkingatímans og
miðalda, og Karin sækir innblástur
í norræna myndlist þess tímabils.
Verkin eru meðal annars undir
áhrifum af íslenskum miðalda-
handritum, veggmyndum í
dönskum kirkjum, höggmyndum á
Gotlandi og norskum stafkirkjum.
Á sýningunni eru einnig nokkrar
glænýjar teikningar sem innblásn-
ar eru af Íslendingasögunum.
Sýningar
Hvað? Innrás IV: Margrét Helga Sess-
eljudóttir
Hvenær? 13.00
Hvar? Ásmundarsafn
Margrét Helga Sesseljudóttir nýtir
sér ýmsa miðla og efni í marglaga
skúlptúrum sínum. Náttúruleg og
persónuleg nálgun hennar er hríf-
andi og býður samtal hennar og
verka Ásmundar áhugavert sjónar-
horn. Árið 2018 eru fyrirhugaðar
fjórar innrásir inn í sýninguna List
fyrir fólkið í Ásmundarsafni, þar
sem völdum verkum Ásmundar
Sveinssonar er skipt út fyrir verk
starfandi listamanna.
Hvað? Ingólfur Arnarson: Jarðhæð
Hvenær? 10.00
Hvar? Hafnarhúsið
Sýnd eru ný verk eftir myndlistar-
manninn Ingólf Arnarson í A-sal
Hafnarhúss. Ingólfur hefur verið
áhrifamikill í íslensku listalífi allt
frá því að hann lauk listnámi í Hol-
landi snemma á níunda áratugn-
um. Teikning hefur ætíð skipað
veigamikinn sess í listsköpun hans
en teikningar Ingólfs einkennast
af fíngerðum línum, nákvæmni
og tíma. Hann hefur jafnframt
unnið verk á steinsteypu þar sem
þyngd iðnaðarframleiddra eininga
myndar undirlag næmra litatóna.
Hvað? Jóhannes S. Kjarval: … lífgjafi
stórra vona
Hvenær? 10.00
Hvar? Kjarvalsstaðir
Jóhannes Sveinsson Kjarval (1885-
1972) er einn ástsælasti listamaður
þjóðarinnar og arfleifð hans lifir í
fjölbreyttu lífsverki sem nær yfir
fjölda málverka af náttúru lands-
ins, kynjaverum sem þar leynast
og fólkinu í landinu. Þannig má
skipta myndefni Kjarvals gróf-
lega í þrjá hluta; landslagsmyndir,
fantasíur og mannamyndir. Þó
skarast þetta oft þannig að í sömu
myndinni getur verið að finna
allar myndgerðirnar.
Hvað? Véfréttir - Karl Einarsson
Dunganon
Hvenær? 10.00
Hvar? Listasafn Íslands
Listasafn Íslands efnir til sýningar
á úrvali verka Karls Einarssonar
Dunganons sem er ætlað að varpa
ljósi á líf og list þessa einstaka
listamanns sem hafði alla tíð
sterkar taugar til Íslands og arf-
leiddi íslensku þjóðina að verkum
sínum. Varðveitir Listasafn Íslands
rúmlega tvö hundruð myndverk,
en ljóð hans, úrklippubækur og
önnur gögn eru geymd í Þjóð-
skjalasafni Íslands. Karl Kerúlf Ein-
arsson fæddist á Íslandi árið 1897
en flutti barnungur til Færeyja og
síðar til Danmerkur þar sem hann
bjó lengst af ævinnar og lést þar
árið 1972. Hann tók sér ungur
nafnið Dunganon en gekk undir
öðrum nöfnum sem þjónuðu því
hlutverki sem hann lék hverju
sinni. Líklegast er hertoginn af St.
Kildu þekktasti titillinn sem Karl
tók sér. Þó hann kæmi aldrei til
þessa skoska eyjaklasa, sló hann
eign sinni á hann og lýsti sig æðsta
stjórnanda, útbjó sér vegabréf, rík-
isstimpil, póststimpil og útdeildi
riddaraskjölum.
Kjarvalsstaðir eru fullir af fallegri list og fátt betra að gera en kíkja þangað í dag.
Listasafn Íslands er opið, þannig er það nú bara.
2 . J A N Ú A R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R26 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
2
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:5
5
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
E
D
-2
9
E
C
2
1
E
D
-2
8
B
0
2
1
E
D
-2
7
7
4
2
1
E
D
-2
6
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
1
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K