Fréttablaðið - 17.01.2019, Blaðsíða 33
TIL HAMINGJU!
FÍASÓL GEFST ALDREI UPP eftir Kristínu Helgu
Gunnarsdóttur
„Ærslabelgurinn Fíasól er flestum kunn enda er
hér um að ræða sjöttu bókina í bókaflokknum
um þessa úrræðagóðu stelpu. Söguþráðurinn
fléttast um hugmyndaauðgi Fíusólar sem vekur
lesandann til umhugsunar og samræðna um ýmis
alvarleg málefni sem tengjast réttindum barna ...
Persónur bókarinnar eru ekki byggðar upp af
staðalímyndum heldur eru þær lifandi og marg-
ræðar rétt eins og heimur Fíusólar.“
Úr áliti dómnefndar
ÞJÁNINGARFRELSIÐ eftir Auði Jónsdóttur,
Báru Huld Beck og Steinunni Stefánsdóttur
„Öllu máli skiptir að standa vörð um tjáningarfrelsið,
og útgáfa bókarinnar Þjáningarfrelsið er liður í þeirri
vöktun hérlendis. Í bókinni fáum við að kynnast
heiminum að baki fréttaflutningnum. Fjallað er um
raunveruleg dæmi sem gefa innsýn í aðstæður sem
blaðamenn geta átt við að etja í störfum sínum og
áleitnar spurningar, hugmyndir og vangaveltur sem
varða grunngildi fjölmiðlunar og stöðu fjölmiðla og
tjáningarfrelsis á Íslandi í upphafi 21. aldarinnar.“
Úr áliti dómnefndar
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla virka daga 10–18 | Laugardaga 11–16 | www.forlagid.is
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
HANDBOLTI Það verða hreinir
úrslitaleikir í öllum þremur leikjun-
um í B-riðli sem Ísland er í á Heims-
meistaramótinu í handbolta í dag.
Fyrir lokaumferðina eru Króatía og
Spánn með fullt hús stiga og mætast
þau í kvöld í leik um efsta sætið og
um leið að fara með fullt hús stiga
í milliriðlana. Íslensku þjálfar-
arnir Aron Kristjánsson og Dagur
Sigurðsson leiða saman hesta sína
í fyrsta leik dagsins þar sem fimmta
sæti riðilsins verður í boði en augu
Íslendinga verða á leik Íslands og
Makedóníu í Ólympíuhöllinni í
München í dag.
Eftir torsóttan sigur Íslands á
Japan í gær og tap Makedóníu
gegn Spáni eru liðin jöfn að stigum.
Bæði hafa unnið tvo leiki og tapað
tveimur fyrir leikinn en Ísland er í
vænlegri stöðu. Stórsigur Íslands
gegn Barein á mánudaginn gerir
það að verkum að íslenska liðið er
með mun betri markatölu en Make-
dónía fyrir leik liðanna síðar í dag
sem þýðir að Íslandi dugar jafntefli
í kvöld. Makedónía vann níu marka
sigur á Japan í fyrsta leik liðanna á
HM og fylgdi því eftir með fimm
marka sigri á Barein en eftir tapleiki
gegn Spáni og Króatíu er markatala
þeirra sex mörk í mínus á meðan
Ísland er með ellefu mörk í plús.
Þetta verður sextánda viðureign
Íslands og Makedóníu og hefur
Ísland átt góðu gengi að fagna gegn
andstæðingum dagsins. Í fimmtán
leikjum hefur Ísland unnið ellefu
sinnum, Makedónía þrisvar og einu
sinni skildu liðin jöfn, á síðasta HM
sem fór fram í Frakklandi. – kpt
Jafntefli dugar íslenska liðinu í dag
Akureyringurinn Arnór Þór Gunnarsson var markahæstur í íslenska liðinu
ásamt Stefáni Rafni Sigurmannssyni í leiknum gegn Japan. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
SKÍÐI Hilmar Snær Örvarsson varð
í gær fyrstur Íslendinga til þess að
fagna sigri á heimsbikarmótaröð
fatlaðra í alpagreinum þegar hann
bar sigur úr býtum í svigi.
Hilmar, sem keppir fyrir hönd
Víkings í flokki LW2 hreyfihaml-
aðra, kláraði ferðirnar tvær á 2:01,71
og kom í mark 1,2 sekúndum á
undan Bandaríkjamanninum
Thomas Walsh sem lenti í öðru sæti.
Í fyrri ferð dagsins var Hilmar
Snær í öðru sæti þegar hann kom
í mark á 1:00,27, rúmri sekúndu á
eftir Walsh en í seinni ferð dagsins
var brautin orðin mýkri og nýtti
Hilmar sér það til að koma tæpum
þremur sekúndum á undan næsta
manni í mark. – kpt
Hilmar sá fyrsti
sem vinnur IPC
heimsbikarmót
Hilmar á Vetrarólympíuleikunum í
Suður-Kóreu. NORDICPHOTOS/GETTY
UFC Staðfest var í gærkvöldi að
bardagakappinn Gunnar Nelson
mætir Bretanum Leon Edwards
þann 16. mars næstkomandi. Dana
White, forseti UFC, staðfesti það í
gærkvöldi. Bardaginn fer fram í
London og verður einn af aðalbar-
dögum kvöldsins ásamt bardaga
Darrens Till og Jorge Masvidal.
Gunnar sneri aftur inn í búrið
með látum þegar hann vann sann-
færandi sigur á brasilíska bardaga-
kappanum Alex Oliveira í desem-
ber. Var það fyrsti bardagi Gunnars
í átján mánuði en það var ekki að
sjá að Gunnar væri neitt ryðgaður
þar sem hann kláraði bardagann
með uppgjafartaki.
Eftir þann bardaga
er Gunnar í tólfta
sæti styrkleika-
lista UFC í velti-
vigt en Edwards,
sem mætir Gunn-
ari í heima-
landi sínu,
er í tíunda
sæti list-
ans. – kpt
Gunnar berst í
London í mars
Gunnar
Nelson.
S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21F I M M T U D A G U R 1 7 . J A N Ú A R 2 0 1 9
1
7
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:2
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
0
D
-9
8
5
4
2
2
0
D
-9
7
1
8
2
2
0
D
-9
5
D
C
2
2
0
D
-9
4
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
1
6
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K