Ljósmæðrablaðið - 01.12.2012, Side 4
4 Ljósmæðrablaðið - desember 2012
Það er mikilvægt fyrir okkur að líta
á fræðslu- og upplýsingaþátt út frá því
umhverfi dómsmála sem við lifum við í dag.
Þannig skiptir miklu máli að einstaklingar
hafi fengið fullnægjandi upplýsingar þegar
þeir taka ákvörðun um að þiggja meðferð.
Sem fagaðilum ber okkur að hlusta á og
virða skoðanir þeirra sem þjónustuna fá, en
hvað vilja verðandi foreldrar?
Skipulag barneignarþjónustunnar er skýrt
og vel samræmt um allt land og stöðug þróun
á sér þar stað. Fæðingastöðum á landinu
hefur fækkað mjög á undanförnum áratugum
og hafa ákvarðanir þar um oftast verið
teknar í samræmi við bættar samgöngur og
til að spara fé. Árið 1972 fæddu konur á 30
stöðum, svo sem fæðingadeildum sjúkra-
húsa, sjúkraskýlum og fæðingaheimilum,
en árið 2010 voru skilgreindir fæðingastaðir
á landinu 11 talsins. Þjónusta í sængurlegu
hefur einnig breyst á síðustu áratugum og
flust af sjúkrahúsum í heimahús. Rann-
sókninni ,,Barneign og heilsa“, er ætlað að
varpa ljósi á reynslu kvenna af barneignar-
þjónustunni, heilsu þeirra, væntingum um
og líðan á meðgöngu og eftir fæðingu.
Niðurstöður rannsóknarinnar eru kynntar
í blaðinu í ritrýndri grein, þær gefa glögga
mynd af reynslu kvenna af barneignar-
þjónustu og barneignarferli hér á landi. Þær
ættu að nýtast fagfólki og stjórnendum heil-
brigðismála við frekari þróun og skipulag
þjónustunnar.
Miklar framfarir hafa verið á sviði fóstur-
greininga á síðustu áratugum og framboð
á aðferðum til að greina frávik hjá fóstrum
hefur aukist. Fjölmargir þættir hafa áhrif
á hvort verðandi foreldrar taka upplýsta
ákvörðun um að þiggja eða hafna slíkum
skimunum en þekking og viðhorf þeirra sem
koma að upplýsingagjöf um fósturskimun
skiptir þar máli. Um þetta efni birtist ritrýnd
grein í blaðinu og er hún um þekkingu og
viðhorf ljósmæðra til fósturskimunar. Þar
kemur fram að almennt var viðhorf ljós-
mæðranna til fósturskimana jákvætt og töldu
þær að upplýsa ætti allar barnshafandi konur
um möguleikann á fósturskimun snemma á
meðgöngu. Fram kom að langflestar ljós-
mæðranna myndu þiggja meiri fræðslu um
fósturskimun stæði hún til boða. Niður-
stöðurnar benda til mikilvægi þess að bjóða
fagfólki frekari fræðslu um fósturskimun.
Síðustu tvo áratugi hefur sængurlega á
sjúkrastofnunum verið að styttast til muna
vegna krafna um aukið hagræði í heil-
brigðisþjónustu. Með sívaxandi kröfum
um hagkvæmni og skilvirkni heilbrigðis-
þjónustu er kostnaðargreining þjónustunnar
nauðsynleg, samfara faglegri þróun hennar.
Í blaðinu er grein sem varpar ljósi á þróun
sængurlegu í hinum mismunandi OECD
löndum, einkum með kostnað og fyrir-
komulag þjónustunnar í huga. Tilgangurinn
var að skoða kostnaðaráhrif þess ef Ísland
hefði fylgt nágrannalöndum í þróun
þjónustunnar.
Töluverð umræða hefur verið undan-
farin ár um þriðja stig fæðingar og þá meðal
annars hvenær skuli skilja á milli móður
og barns. Margt í barneignarferlinu viðist
ganga í bylgjum öfganna á milli og er þetta
efni eitt af því. Í blaðinu birtist fræðslugrein
um það.
Framundan er hátíð ljóss og friðar. Ég
óska ljósmæðrum og öðrum lesendum Ljós-
mæðrablaðsins gleðilegra jóla og farsældar
á komandi ári.
Hrafnhildur Ólafsdóttir
Hrafnhildur Ólafsdóttir
ritstjóri Ljósmæðrablaðsins
Ritstjórapistill
Ljósmæðrafélag Íslands óskar öllum ljósmæðrum og fjöskyldum
þeirra, gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum þeim fjölmörgu
ljósmæðrum sem unnið hafa óeigingjarnt starf fyrir félagið.
Með kærri kveðju - Stjórn Ljósmæðrafélags Íslands