Ljósmæðrablaðið - 01.12.2012, Qupperneq 16
16 Ljósmæðrablaðið - desember 2012
til nóvember 2010. Yfirlit yfir fjölda þátt-
takenda, frum-/fjölbyrjur aldursdreifingu,
menntun og búsetu þeirra má finna í töflu 2.
Mælitækin (spurningalistarnir)
Eins og áður hefur komið fram er fyrir-
mynd rannsóknarinnar sænsk, svonefnd
KUB-rannsókn, (Waldenström, 2008b) og
er gögnum í þessari rannsókn safnað með
þremur spurningalistum sambærilegum
þeim sem lagðir voru fyrir í sænsku rann-
sókninni (Hildingsson o.fl., 2002).
Spurningalistar KUB-rannsóknarinnar
voru hannaðir með hliðsjón af sænskum
og áströlskum rannsóknum (Lumley
og Brown, 1993; Waldenström, Brown,
McLachlan, Forster og Brennecke,
2000; Waldenström og Nilsson, 1993)
og innihéldu nokkur sértæk mælitæki.
Sænsku spurningalistarnir voru þýddir
á íslensku og báru rannsakendur saman
þýðingu sína við upphaflegu spurninga-
listana og unnið var úr athugasemdum.
Nokkrar spurningar voru staðfærðar
og lagaðar að íslenskum aðstæðum.
Stuðst var við aðferð í þessu ferli sem
Brynja Örlygsdóttir og Erla Kolbrún
Svavarsdóttir (2005) lýsa og byggir
meðal annars á aðferð sem kennd er við
MAPI-rannsóknarstofnunina (MAPI
Research Institute, Linguistic Validation
and Introducton ártal óþekkt; MAPI
Research Institute Methodology, ártal
óþekkt). Greinarhöfundar bættu einnig
við nokkrum spurningum sérstaklega fyrir
rannsóknina.
Allir spurningalistarnir voru forpróf-
aðir með fyrirlögn og viðtölum, sá fyrsti
meðal 31 konu og með viðtölum við
fjórar þeirra (Embla Ýr Guðmunds-
dóttir, 2008), annar listinn með fyrirlögn
tvisvar sinnum og viðtölum við átta konur
(Berglind Skúladóttir, Björg Alexanders-
dóttir, Guðfinna Eðvarðsdóttir og Kristín
Guðmundsdóttir, 2009). Þriðji og síðasti
spurningalistinn var forprófaður meðal
tólf kvenna með fyrirlögn spurningalista
og viðtölum við þær (Anna Eyjólfs-
dóttir, 2011, munnleg heimild). Við allar
forprófanirnar var lagt mat á viðbrögð og
tímasetningar sem og orðalag og skýrleika.
Allmargar spurningar tóku breytingum eftir
forprófanirnar og ákveðið var að sleppa
sumum þeirra. Við forprófun kom í ljós
að 30–40 mínútur tók að svara hverjum
spurningalista. Í töflu 3 er gerð grein fyrir
megin innihaldi spurningalistanna.
Framkvæmd
Rannsakendur sendu bréf til allra
heilsugæslustöðva þar sem rannsóknin
var kynnt, auk þess sem þeir kynntu rann-
sóknina munnlega fyrir starfsfólki þeirra.
Ljósmæður á 13 heilsugæslustöðvum
á höfuðborgarsvæðinu og 13 á lands-
byggðinni tóku að sér að kynna rann-
sóknina fyrir barnshafandi konum. Þetta
Tafla 2. Fjöldi þátttakenda í 1., 2. og 3ja hluta rannsóknarinnar Barneign og heilsa flokkað
eftir frum- og fjölbyrjum, aldursdreifingu, menntun og búsetu. Til samanburðar eru
tölur fyrir Ísland í heild árið 2009 og 2010.
Tafla 3. Helstu efnisatriði sem aflað er upplýsinga um í spurningalistum rannsóknarinnar
Barneign og heilsa.