Ljósmæðrablaðið - 01.12.2012, Side 18
18 Ljósmæðrablaðið - desember 2012
Þriðji spurningalistinn var sendur til
sömu kvenna einu til tveimur árum eftir
fæðingu á tímabilinu janúar til október
2011. Tímasetning útsendingar listanna
var miðuð við væntanlegan fæðingardag
samkvæmt fyrsta lista. Starfsmenn Félags-
vísindastofnunar HÍ slógu inn niðurstöður
og mynduðu rafrænan gagnagrunn.
Meðferð persónuupplýsinga og
siðfræðileg atriði
Leitað var eftir skriflegu samþykki
yfirlækna eða annarra stjórnenda
heilsugæslustöðva eins og við átti hverju
sinni og var það í öllum tilvikum veitt.
Fyrir lá samþykki Vísindasiðanefndar
(VSNb2008010023/03-1) og rannsóknin
hafði verið tilkynnt til Persónuverndar
(S3695/2008 LSL).
Þátttakendur fengu upplýsingar um
tilgang og markmið rannsóknarinnar bæði
skriflega og munnlega. Þátttakendur voru
upplýstir um að þeir gætu hvenær sem er
hætt í rannsókninni og að ekki þyrfti að
svara öllum spurningum. Gögnum um þátt-
takendur sem drógu sig til baka úr rann-
sókninni var eytt úr gagnasafninu.
Persónuauðkenni voru dulkóðuð.
Gagnasafnið og lykillisti dulkóðans eru
í umsjá umsjónarmanna rannsóknarinnar
og varðveitt á stofnunum sem þeir
einstaklingar starfa við.
Tölfræðilegar aðferðir
Lýsandi tölfræði og ályktunartölfræði var
reiknuð með forritinu SPSS, útgáfa 20
(IBM corp., 2011). Reiknuð er „hlutfallsleg
áhætta“, (Relative Risk, hér eftir skamm-
stafað RR) miðað við tiltekin viðmið, með
95% öryggisbili (Confidence Interval, hér
eftir skammstafað 95% CI), með aðferð
Tafla 6. Hlutfall (%) og „hlutfallsleg áhætta“ (Relative Risk = RR; viðmið =vm; öryggisbil = CI) ýmissa þátta í barneignarferli með tilliti
til búsetu, menntunar og aldurs byggt á svörum við spurningalista 2 á árunum 2010 -2011.
Tafla 7. Samanburður á svörum þátttakenda í rannsókninni Barneign og heilsa við tölur úr
fæðingarskrá 2009 og 2010.