Ljósmæðrablaðið - 01.12.2012, Qupperneq 38
38 Ljósmæðrablaðið - desember 2012
Stjórnarfundur Norðurlanda-
samtaka ljósmæðra (NJF)
Stjórnarfundur NJF var haldinn í Þórs-
höfn í Færeyjum dagana 11. og 12. maí
2012. Fundinn sátu að þessu sinni full-
trúar allra Norðurlandanna og var hann
haldinn í húsnæði ljósmæðrafélags
Færeyja. Esther Ármannsdóttir og Hildur
Kristjánsdóttir sóttu fundinn fyrir Íslands
hönd. Farið var í félagslega dagskrá
fundarins og reyndist það vera sigling
á skútu í hella á Hestey þar sem haldnir
voru tónleikar. Á leiðinni þangað voru
bornir fram ýmsir færeyskir þjóðarréttir
sem allir urðu að smakka á og sýndist
sitt hverjum eins og gefur að skilja! Eftir
tónleikana var borin fram heit súpa og
brauð sem var gott enda áliðið kvölds og
ekki laust við að aðeins kulaði á okkur.
Þetta var í hæsta máta óvenjuleg og
áhrifarík ferð sem öllum þótti mikið til
koma.
Fundurinn hófst á hefðbundnum
fundarstörfum. Anna Christianssen,
fulltrúi færeyskra ljósmæðra í stjórn
Norðurlandasamtaka ljósmæðra, bauð
gesti velkomna og skilaði kveðju frá
Anniku Höydal, formanni félagsins, sem
því miður gat ekki setið fundinn. Gengið
var til hefðbundinnar dagskrár sem hófst
á því að fundarmenn kynntu sig stutt-
lega, fundarboðun var samþykkt, valinn
var fundarritari, fundargerð síðasta
fundar frá Stokkhólmi 2011 yfirfarin og
samþykkt með undirskriftum, skýrsla
forseta samtakanna var kynnt og póst-
listar félaganna og stjórnarmeðlima var
uppfærðir.
Að venju kynntu fulltrúar hvers lands
það helsta sem er að gerast hjá þeim og
var í fundarboði kynntar óskir landanna
um sérstaka umfjöllun ákveðinna atriða
en þau voru eftirfarandi:
• Finnland óskaði eftir upplýsingum
um hvort til séu hjá hinum löndunum
leiðbeiningar um útreikninga á
mönnunarþörf ljósmæðra í barneignar-
þjónustu, t.d. í meðgönguvernd,
fæðingarþjónustu og sængurlegu. Þetta
efni fékk nokkra umfjöllun og voru allir
sammála um að ekki væri heppilegt
að gera slík módel. Upplýst var að
fyrir löngu síðan hefði verið mælt
með 70─100 fæðingum pr. stöðugildi
á fæðingadeild í Svíþjóð. Þessu hefur
reynst erfitt að framfylgja. Í Danmörku
og Noregi eru ekki notuð slík módel og
frekar hugað að gæðakröfum og t.d. er
markmið í Danmörku að 95% kvenna
fái ,,one to one“ þjónustu. Einnig hefur
verið rætt um í sumum löndunum
að þegar kona sé komin með 4 cm í
útvíkkun sé ljósmóðir stöðugt hjá henni.
Um þetta efni spunnust mjög fjörugar
umræður, en niðurstaða þeirra sem hafa
reynslu af slíkum módelum er, eins og
áður segir, ekki góð og finnska ljós-
mæðrafélaginu var ráðlagt að skoða
vandlega hvaða kostir eru í stöðunni.
• Ísland óskaði eftir umfjöllun um
möguleika íslenskra ljósmæðranema til
starfsþjálfunar í hinum löndunum og
hvort félögin gætu liðkað til með starfs-
þjálfun og/eða námsheimsóknum ljós-
mæðra. Fram kom að þessi samvinna
er nú þegar fyrir hendi. Þar sem sjúkra-
húsin fá greiðslur frá háskólunum fyrir
að taka nemendur í nám eiga þeir erfitt
með að taka nemendur án greiðslu
nema í gegnum Norræn samvinnu-
verkefni og slík samvinna er nú þegar
til staðar á vegum háskóla landanna.
Varðandi það að taka á móti ljós-
mæðrum til náms í lengri eða styttri
tíma þarf að semja um það sérstaklega
við viðkomandi sjúkrahús eða yfir-
ljósmóður og geta félögin verið ljós-
mæðrum sem óska eftir slíku hjálpleg
með að útvega nöfn og staði þar sem
námstækifæri eru til staðar.
• Noregur óskaði eftir áframhaldandi
umræðu um menntunarmál sem fram-
hald af fundi þeim sem haldinn var í
Reykjavík í mars sl. Nokkur umræða
varð um þetta mál sem var góð og
ákveðið að formenn ljósmæðra-
félaganna í Noregi og Svíþjóð myndu
halda áfram vinnu við þetta mál.
• Danmörk óskar eftir umræðu um hvort
samtökin eigi að snúa sér til Norrænu
ráðherranefndarinnar og kynna
menntun ljósmæðra í löndunum og
stefna að sameiginlegri stefnu varðandi
þennan málalið. Þetta munu þær stöllur
frá Noregi og Svíþjóð einnig taka
lengra og verður umræðum haldið
áfram.
Öll löndin höfðu sent skýrslu um helstu
starfsemi sína á liðnu ári fyrirfram og
kynnti fulltrúi hvers lands skýrslu sína og
svaraði fyrirspurnum. Við kynningu var
farið eftir stafrófsröð landanna og byrjað
aftast að þessu sinni. Ingela Wiklund og
Gunilla Banke kynntu skýrslu Svíþjóðar.
Hér á eftir verður stiklað á stóru úr
skýrslum landanna og umræðum um
þær og bent á að skýrslurnar eru til á
skrifstofu félagsins og félagsmenn geta
nálgast þær þar.
Danmörk
Töluverð vinna er hjá félaginu í
samningsmálum og eru væntingar
ekkert sérstakar. Stöðum ljósmæðra
hefur fjölgað um 200 stöðugildi hjá hinu
opinbera og eru aðallega við ómskoðanir,
á sængurlegudeildum og við umönnun
kvenna með meðgöngutengda sjúkdóma.
Ennfremur eru margir læknar sem ráða
ljósmæður til starfa á sjálfstætt starfandi
Stjórn NJF