Fréttablaðið

Dagsetning
  • fyrri mánuðurjanúar 2019næsti mánuður
    SuÞrMiFiLa
    303112345
    6789101112
    13141516171819
    20212223242526
    272829303112
    3456789

Fréttablaðið - 24.01.2019, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 24.01.2019, Blaðsíða 32
Slakaðu á með Slökun g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, kippir og spenna g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartsláttur g Kvíði g Streita g Pirringur Einkenni magnesíum- skorts www.mammaveitbest.is Slakaðu á með Slökun g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, kippir og spenna g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartsláttur g Kvíði g Streita g Pirringur Einkenni magnesíum- skorts www.mammaveitbest.is Slakaðu á með Slökun g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, kippir og spenna g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartsláttur g Kvíði g Streita g Pirringur Einkenni magnesíum- skorts www.mammaveitbest.is lakaðu á eð lö g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, ki pir og spe na g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartslá tur g Kvíði g Streita g Pi ringur Einke i agnesí skorts i t.i 2 4 . J A N Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R20 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT Hættulegustu mennirnir Mörk + stoðsendingar 22 prósent var hlutfalls-markvarsla Íslands í leiknum. 5 Lína 7 1 0 2 Gegnumbrot 5 Víti Hraðaupphlaup 5 Markvarsla 9/41 Mörk úr leikstöðum 1 3Elvar Örn Jónsson 7+3 Ómar Ingi Magnússon 6+2 Gísli Þorgeir Kristjánsson 2+3 Bjarki Már Elísson 3+1 Sigvaldi Guðjónsson 3+0 Ólafur Guðmundsson 2+1 Arnar Freyr Arnarsson 2+0 Maður leiksins Elvar Örn Jónsson var markahæst- ur í íslenska liðinu með sjö mörk. Gaf einnig þrjár stoð- sendingar, tvær vítasendingar og fiskaði eitt víti sjálfur. 29-32 (15-15)ÍSLAND - BRASILÍA 8 sinnum stálu Brasilíumenn boltanum af Íslendingum. 17 mörk skoruðu skytturnar Langaro og Toledo samtals. Stefán Rafn Sigurmannsson klúðraði síðustu 3 vítum sem hann tók á HM. HM í handbolta Milliriðill 1 Ísland - Brasilía 29-32 Mörk Íslands (Skot): Elvar Örn Jónsson 7 (10), Ómar Ingi Magnússon 6/5 (8/6), Bjarki Már Elísson 3 (5), Sigvaldi Guðjónsson 3 (6), Arnar Freyr Arnarsson 2 (2), Gísli Þorgeir Kristjánsson 2 (2), Stefán Rafn Sigurmanns- son 2 (3/1), Ólafur Guðmundsson 2 (5), Ólafur Gústafsson 1 (2). Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 8 (33/1, 24%), Ágúst Elí Björgvinsson 1 (8, 13%). Mörk Brasilíu: Haniel Langaro 9, José Toledo 8, Felipe Borges 4, Alexander Pozzer 4, Henrique Teixeira 2, Rudolph Hackbarth 2, Fábio Chiuffa 2, Vinícius Teixeira 1. Frakkland - Króatía 20-22 Þýskaland - Spánn 31-30 Stig þjóða: Þýskaland 9, Frakkland 7, Króatía 6, Spánn 4, Brasilía 4, Ísland 0. Milliriðill 2 Túnis - Egyptaland 23-30 Noregur - Ungverjaland 35-26 Danmörk - Svíþjóð 30-26 Stig þjóða: Danmörk 10, Noregur 8, Svíþjóð 6, Egyptaland 3, Ungverjaland 3, Túnis 0. Breiðablik - Haukar 70-90 Stigahæstar: Sanja Orazovic 18, Ivory Crawford 18, Maria Palacios 10 - LeLe Hardy 19, Þóra Kristín Jónsdóttir 17, Eva Margrét Kristjánsdóttir 16, Klaziena Guijt 16. Keflavík - Skallagr. 61-54 Stigahæstar: Brittanny Dinkins 22, Birna Benónýsdóttir 15, Salbjörg Ragna Sævars- dóttir 10 - Shequila Joseph 25, Brianna Banks 11, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 8. Stjarnan - Snæfell 88-87 Stigahæstar: Danielle Rodriguez 25, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 15, Auður Íris Ólafs- dóttir 14 - Kristen McCarthy 37, Angelika Kowalska 14, Gunnhildur Gunnarsdóttir 13. Valur - KR 82-70 Stigahæstar: Helena Sverrisdóttir 33, Heather Butler 17, Simona Podesvova 8, Hallveig Jónsdóttir 7 - Kiana Johnson 21, Orla O’Reilly 13, Ástrós Lena Ægisdóttir 12. Efri Keflavík 26 KR 24 Snæfell 22 Valur 22 Neðri Stjarnan 20 Skallagr. 10 Haukar 10 Breiðablik 2 Domino’s-deild kvenna Burton - Man. City 0-1 0-1 Sergio Agüero (26.). Man. City vann einvígið samanlagt 10-0 og mætir annaðhvort Chelsea eða Tottenham í úrslitaleiknum 24. febrúar. Enski deildabikarinn HANDBOLTI Byrjunin á lokaleik Íslands á HM var eins og endur- sýning á fyrstu mínútunum gegn Frökkum á sunnudaginn. Íslend- ingar voru heillum horfnir, Bras- ilíumenn gengu á lagið og skoruðu fimm fyrstu mörkin. Það birti til eftir því sem leið á fyrri hálfleikinn og íslenska liðið jafnaði metin fyrir hálfleik, 15-15. Ísland byrjaði seinni hálfleikinn á því að færa Brasilíu boltann tvívegis á silfurfati og það gaf tóninn. Íslend- ingar áttu ágætis kafla en voru alltaf Svekkjandi leiðarlok á HM Ísland tapaði með þriggja marka mun, 29-32, fyrir Brasilíu í síðasta leik sínum á HM í handbolta. Ellefta sætið varð niðurstaðan. Byrjunin á leiknum var afleit og vörn og markvörslu íslenska liðsins var ábótavant. í eltingarleik. Á endanum munaði þremur mörkum á liðunum, 29-32. Ísland tapaði því öllum þremur leikjum sínum í milliriðli og endaði í 11. sæti. Brasilía endaði hins vegar í 9. sæti sem er besti árangur þjóðar- innar á heimsmeistaramóti. Vörn og markvarsla Íslands var slök. Uppstilltur sóknarleikur var misjafn en hraðaupphlaupin gengu vel. Elvar Örn Jónsson var öfl- ugur í seinni bylgjunni og var besti sóknarmaður Íslands líkt og gegn Frökkum. Hann var markahæstur í íslenska liðinu með sjö mörk. „Það vantaði þónokkuð upp á. Það sást í byrjun leiks í hvað stefndi. Þótt við næðum að jafna fyrir hálf- leik voru Brassarnir miklu sprækari og okkar menn gerðu mjög ein- föld mistök,“ sagði Stefán Árnason, þjálfari KA og sérfræðingur Frétta- blaðsins um HM, um leikinn. „Við náðum aldrei að spila eins og við viljum. Vörnin komst aldrei í gang og við vorum alltaf 1-2 skrefum á eftir. Það var líka þannig í sókn- inni. Allt frumkvæði í leiknum var Brasilíumegin. Svo var markvarslan engan veginn nægilega góð.“ Framliggjandi vörn Íslands var oftsinnis leikin grátt í leiknum í gær. „Vörnin okkar krefst þess að allir séu klárir og fótavinnan sé upp á tíu. Þegar við höfum náð því á HM hefur varnarleikurinn gengið mjög vel á köflum,“ sagði Stefán. „Guðmundur hefur unnið lengi með þessa vörn og hefur trú á henni. Ég held að hann meti það þannig að Ísland eigi ekki möguleika gegn þessum allra bestu skyttum nema að spila þessa tegund af vörn.“ Uppstilltur sóknarleikur Íslands gekk brösuglega á HM. „Þetta varð svolítið stirt eftir að Aron Pálmars- son datt út og líka á köflum meðan hans naut við. Þetta snerist mikið um hann og eðlilega var okkar besti maður í stóru hlutverki. Þegar Aron er ekki með vantar okkur leiðtoga, einhverja sem stilla upp og taka af skarið. Þessir strákar eru kannski ekki enn komnir þangað. Það er talsvert um óðagot og árásir.“ Stefán segir að heilt yfir geti Íslendingar gengið nokkuð sáttir frá HM. „Það sjá allir á hvaða veg- ferð við erum en það var svekkjandi að ná ekki að enda mótið með sigri. Það hefði verið skemmtilegra en þessir leikir í milliriðlinum muni gefa okkar mjög mikið í framtíð- inni.“ ingvithor@frettabladid.is Gísli Þorgeir Kristjánsson fær óblíðar móttökur frá José Toledo í leik Íslands og Brasilíu í Köln í gær. Hafnfirðingurinn skoraði tvö mörk. NORDICPHOTOS/GETTY Við náðum aldrei að spila eins og við viljum. Vörnin komst aldrei í gang og við vorum alltaf 1-2 skrefum á eftir. Stefán Árnason Sátu eftir með sárt ennið HANDBOLTI Draumur Svía um að leika um verðlaun á öðru stórmótinu í röð rættist ekki. Sænska liðið tapaði fyrir því danska, 30-26, í milliriðli 2 á HM í gær. Strákarnir hans Kristjáns Andréssonar enduðu í 3. sæti milli- riðils 2 og mæta Króatíu í leiknum um 5. sætið á laugardaginn. Svíþjóð endaði í 2. sæti á EM í fyrra og í 6. sæti á HM 2017. Danir unnu milliriðil 2 með fullu húsi og mæta Frökkum í undanúr- slitunum á morgun. Í hinum undan- úrslitaleiknum mætast Þjóðverjar og Norðmenn. Bæði lið unnu sína leiki í gær. Þýskaland vann Spán, 31-30, og Noregur rúllaði yfir Ung- verjaland, 35-26. – iþs 2 4 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :4 5 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 1 F -4 E 3 0 2 2 1 F -4 C F 4 2 2 1 F -4 B B 8 2 2 1 F -4 A 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Gerð af titli:
Flokkur:
Gegnir:
ISSN:
1670-3871
Tungumál:
Árgangar:
23
Fjöldi tölublaða/hefta:
7021
Gefið út:
2001-2023
Myndað til:
31.03.2023
Útgáfustaðir:
Efnisorð:
Lýsing:
Dagblað
Styrktaraðili:

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað: 20. tölublað (24.01.2019)
https://timarit.is/issue/399818

Tengja á þessa síðu: 32
https://timarit.is/page/7038705

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

20. tölublað (24.01.2019)

Aðgerðir: