Fréttablaðið - 24.01.2019, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 24.01.2019, Blaðsíða 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti kl. 5.00 á morgnana. Skráðu þig á póstlista Frétta- blaðsins á www.frettabladid.is/ nyskraning. Það kostar ekkert. Vertu fyrst/ur að lesa blaðið UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 jeep.isJEEP® ALVÖRU JEPPAR - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF FRUMSÝNING LAUGARDAGINN 26. JANÚAR JEEP® GRAND CHEROKEE 35” BREYTING FRÁ ARCTIC TRUCKS – NÝR JEEP® CHEROKEE Ranghermt var í blaðinu í gær að Boeing 737 MAX 8 þota flugfélagsins Lion Air hefði hrapað í Indónesíu vegna bilunar í hreyfli. Orsökin er rakin til bilunar í skynjara. LEIÐRÉTTING KJARAMÁL „Ríkissáttasemjari er búinn að boða þrjá fundi í næstu viku. Það er kominn nýr taktur í samningaviðræðurnar og ég met það svo að hver fundur færi okkur nær lausn,“ sagði Halldór Benja- mín Þorbergsson, framkvæmda- stjóri Samtaka atvinnulífsins, eftir samningafund með Eflingu, Verka- lýðsfélagi Akraness, Verkalýðsfélagi Grindavíkur og VR sem fór fram í gær. Á fundinum var meðal annars rætt um tillögur átakshóps um aðgerðir á húsnæðismarkaði. „Það er mitt mat að þetta útspil í hús- næðismálum hafi verið mikilvægt og sé til þess fallið að koma skriði á viðræður við alla hópa. Þetta ávarpar hinn raunverulega vanda sem er að hluti samfélagsins býr við framboðsskort á fasteignamarkaði. Ef það er ráðist að rótum þess vanda þá er það í mínum huga lykillinn að farsælli lausn kjarasamninga,“ segir Halldór Benjamín. Dagur B. Eggertsson, borgar- stjóri, lýsir einnig yfir ánægju með húsnæðistillögurnar frá hópnum og fagnar því að húsnæðismálin séu nú eitt aðalmálanna við kjara- samningaborðið. „Sagan hefur kennt okkur að ein- mitt í tengslum við kjarasamninga hafa stærstu umbæturnar í hús- næðismálum á Íslandi náð fram að ganga,“ segir Dagur. Reykjavíkurborg og verkalýðs- hreyfingin hafi gengið í takt og talað fyrir svipuðum hugmyndum en mikilvægt sé að hafa náð sam- hljómi við borð þar sem ríkisstjórn og aðrir aðilar vinnumarkaðarins eigi líka sæti. „Ég legg áherslu á að sem flestar og helst allar tillögurnar fari nú í markvissa vinnslu og mér fyndist eðlilegt að aðilar vinnumarkaðarins Segir nýjan takt í viðræðunum Framkvæmdastjóri SA segir nýjan takt kominn í kjaraviðræður en fyrirhugaðir eru þrír samningafundir milli deiluaðila hjá ríkissáttasemjara í næstu viku. Borgarstjóri fagnar því að húsnæðismál séu í forgrunni. Fjörutíu tillögur voru settar fram af átakshópi til að bregðast við húsnæðisvandanum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK ASÍ kynnir skattatillögur Miðstjórn ASÍ samþykkti í gær tillögur um róttækar breytingar á skattkerfinu. Er þar meðal annars lagt til að tekið verði upp fjögurra þrepa skattkerfi með sérstöku hátekjuþrepi. Þá vill ASÍ hækka skattleysismörk og að þau fylgi launaþróun. Einnig er lagt til að húsnæðis- stuðningskerfin verði endur- reist og að barnabætur nái til þorra barnafjölskyldna með því að draga verulega úr tekju- skerðingum. Í tilkynningu segir að markmið breytinganna sé að létta byrðum af lág- og milli- tekjuhópum og koma á réttlátari skattheimtu. Bent er á að ríkissjóður gæti fjármagnað þessar aðgerðir til dæmis með hækkun fjármagns- tekjuskatts, upptöku auðlegðar- skatts og auknu skatteftirliti. Hall- dór Benjamín sagðist aðspurður ekki geta tjáð sig um tillögurnar að svo stöddu. og ríkisstjórnin klári fjármögnun á lykiltillögum til þess að heilbrigðari húsnæðismarkaður verði að veru- leika,“ segir Dagur en tillögurnar verða ræddar á fundi borgarráðs í dag. Dagur bætir því við að mjög ánægjulegt sé að sjá að hópurinn hafi áttað sig á samspili góðra sam- gangna og húsnæðismála. „Það eru beinlínis tímamót að svona breiður hópur sem er að fjalla um húsnæðismál kalli sérstaklega eftir að framkvæmdum við borgar- línu verði hraðað,“ útskýrir borgar- stjórinn. sighvatur@frettabladid.is INDLAND Flokksmenn Congress, stærsta stjórnarandstöðuflokks Indlands, sögðust í gær eiga í vand- ræðum með að finna þyrlur til að ferja leiðtoga flokksins á milli staða í aðdraganda þingkosninga sem fara fram í vor. Narendra Modi forsætis- ráðherra og BJP-flokkur hans eru sagðir sökudólgarnir og kennt um að einoka þyrlur landsins. Indland er stórt og fjölmennt með 1,3 milljarða íbúa. Frambjóðendur þurfa því að ferðast mikið. Anand Sharma, fyrrverandi iðn- aðarráðherra og háttsettur innan Congress, sagði BJP hafa bókað stóran hluta indverska þyrluflotans níutíu daga fram í tímann. Venjan sé að slíkar bókanir séu með 45 daga fyrirvara. „BJP hefur tryggt sér flest- ar þyrlurnar enda á flokkurinn digra sjóði. Ef við hugsum okkur að auði flokkanna tveggja sé skipt í hundrað hluta ættu þau níutíu, við tíu,“ sagði Sharma. BJP-liðar þvertaka fyrir að flokkurinn einoki þyrluflotann. Kosið er um 543 sæti í neðri deild þingsins í hollum í apríl og maí. Alls eru 545 sæti í boði en forseti skipar þau tvö sem eftir standa út frá til- nefningum ensk-indverska sam- félagsins þar í landi. Skoðanakönnun frá því fyrr í janúar sýnir að stefni í að bandalag BJP fái 245 þingsæti, bandalag Con- gress 146 og aðrir flokkar 152. Verði þetta raunin hefur hvorugt banda- lagið meirihluta. – þea Kvarta yfir þyrlueinokun á Indlandi Narendra Modi þykir einoka þyrlur í kosningabaráttunni. NORDICPHOTOS/AFP KJARAMÁL „Það er rétt að það hefur verið leitað til mín um að bjóða mig aftur fram til formennsku í VR, en ég var búin að taka þá skýru afstöðu að það myndi ég ekki gera og hún stendur, segir Ólafía B. Rafnsdóttir, fyrrverandi formaður VR. Hún tapaði fyrir Ragnari Þór Ingólfssyni sem bauð sig fram gegn henni í for- mannskjöri 2017. Búist er við að stjórnarkjör fari fram í mars en ekki hefur enn verið auglýst eftir framboðum og fram- boðsfrestur ekki kynntur.  Ólafía segir að þrátt fyrir að mikið hafi verið þrýst á sig sé hún ekki tilbúin að fórna öðrum fjórum árum í þetta verkefni. „Ég skilaði mínum fjórum árum og er stolt af þeim. – aá Ólafía fer ekki aftur fram í VR 2 4 . J A N Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 4 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :4 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 1 F -3 5 8 0 2 2 1 F -3 4 4 4 2 2 1 F -3 3 0 8 2 2 1 F -3 1 C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.