Fréttablaðið - 24.01.2019, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 24.01.2019, Blaðsíða 24
Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Virgil fékk mikið hrós fyrir frumleika á herra-sýningunni sem fram fór í París í síðustu viku. Að þessu sinni sótti Virgil hugmyndir sínar til poppkóngsins Michaels Jackson. Umhverfi sýningarpallanna var sótt í myndband við lagið Billie Jean. Sumir voru áhyggjufullir þegar upplýst var að hinn ameríski Virgil væri að taka við herra- hönnun hjá Louis Vuitton. Nú sjá menn að þær áhyggjur voru óþarfar. Herralínan er afskaplega Flott herratíska hjá Vuitton Tískuhönnuðurinn Virgil Abloh vakti mikla athygli í fyrra þegar hann sýndi fyrstu línuna sína fyrir Louis Vuitton. Ekki síður var spenningur núna fyrir herratískunni haust-vetur 2019-2020. Virgil Abloh, tísku- hönnuður hjá Louis Vuitton, hefur vakið mikla athygli fyrir frumlegan stíl. Tímaritið Time út- nefndi hann í fyrra einn af eitt hundrað manneskjum sem hafa mest áhrif í heiminum. Louis Vuitton herratíska fyrir haust og vetur 2019-2020 var sýnd í París í síðustu viku. Grár litur var áberandi. Smá Michael Jackson stíll á þessum vetrarfatnaði Louis Vuitton. Þessi er hipp og kúl í hvítu. Haust- og vetrartíska frá Louis Vuitton 2019- 2020. Takið eftir hettupeysunni. Það virðist vera sem þessi úlpa kæmi sér vel í vetrarkulda hér á landi. Það eru skemmtilegar ermar á þessum frakka frá Louis Vuitton. Flott jakkaföt með frumlegu sniði. Þessi föt eiga örugglega eftir að verða vinsæl hjá aðdáendum Virgils. NÝ SENDING AF VORVÖRUM ÚTSALA ENN MEIRI AFSLÁTTUR Holtasmára 1 201 Kópavogur (Hjartaverndarhúsið) Sími 571 5464 Stærðir 38-52 SMART BUXUR, FYRIR SMART KONUR skemmtilega hönnuð, þægileg, víð og jakkarnir frumlegir. Jarðlitir voru áberandi, sérstaklega grár og brúnn en fjólublár og rauður litur sáust inn á milli. Virgil. sem er fæddur árið 1980 í Bandaríkjunum. hefur starfað sem plötusnúður og tónlistarfram- leiðandi. Hann hóf störf hjá Louis Vuitton í mars 2018 en einnig hefur hann hannað fyrir Off- White sem er eitt heitasta merkið í dag. Virgil hefur starfað mikið með Kanye West. Virgil kynntist eiginkonu sinni í menntaskóla og þau giftu sig árið 2009. Þau eiga tvö börn og búa í Chicago. Virgil ferðast 560 þúsund kílómetra á ári vegna starfa sinna. 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 4 . JA N ÚA R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R 2 4 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :4 5 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 1 F -2 6 B 0 2 2 1 F -2 5 7 4 2 2 1 F -2 4 3 8 2 2 1 F -2 2 F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.