Stjarnan - 01.11.1927, Qupperneq 5

Stjarnan - 01.11.1927, Qupperneq 5
STJARNAN 165 frá konunginum í höll sinni til fátækl- ingsins í moldarkofanum kölluðu þeir all- ir til GuÖs og sneru sér í burtu frá synd- um sínum. Öll þessi mikla vakning vai* afleiðing af prédikun guÖhrædds fjár- hirðis. Kraftur í orði Guðs. Það er hægt aö draga þrjár miklar lexíur úr þessari stuttu frásögu: 1) Hver einasti sannur sendiboði Guðs kunngjörir þann boðskap, sem Guð gef- ur honum. Aldrei hefir Guð leyft mann- inum að velja sinn eigin boðskap. Erind- reki Guðs er hvorki áhyggjufullur sjálf- ur né truflar hann fólkið með speki og getgátum manna. Hann tekur hina fornu bók og setur fætur sinar á hinn ó- bifanlega grundvöll hennar, og óttalaust, einfaldlega og hispurslaust kunngjörir hann það, sem Guð segir i þeirri bók. Það er óbrotinn boðskapur. Hann hefir ekki margar fellingar, en hann snertir hjörtu mannanna og snýr þeim til Guðs. Kæran, sem Jesús bar á kennimennina á hans dögum, var sú, að þeir kendu lær- dóma, sem voru mannaboð fMatt. 15 :g.). Það er sorglegur veruleiki að margar prédikanir á þessum tíma eiga engar rætur í ritningunni eða neitt samband við hana. Munið eftir, kæru vinir, að sendi- boðar Guðs lesa boðskapinn til yðar í bók bókanna. Gangið í Ijósinu og treystið Guði 2) Þegar Guð talar til þín í bókinni, þá hlustaðu á hann og láttu hann útkljá mál þitt að eilífu. Guð heimtar af þér að þú gjörir það. Margir munu reyna að teljá þér trú um, að hin forna bók sé úrelt, ó- áreiöanleg o. s. frv.; en mundu eftir að það er Guðs orð til þtn eins vel fyrir það. “Guð skal reynast sannorður, þótt sér- hver maður reyndist lygari.” Nínívemenn trúðu Guði. fjónas 3 -.5.) Vér erum vanir að hugsa um þessar forn- aldar þjóðir eins og þær hafi verið á lægra menningarstigi en vér erum ; en leyf ið mér að segja yður, að þær höfðu betri skilning á hlutunum, en níu tíundu part- ar af heiminum á þessum tíma. Jesús sagði: “Nínívemenn munu koma fram í dóminum ásamt kynslóð þessari og dcema kana seka.” Matt. 12141. Þeir trúðu Guði. Heimurinn á þessum tíma trúir ekki Guði. En þú getur trúað Guði og öðlast hjálp frá honum, hvað svo sem heimur- inn gjörir. Orðið meinar einmitt það, sem það segir. Guð meinar einmitt það, sem hann seg- ir. Þegar Guð segir: Far til Níníve. þá meinar hann ekki Jaffa. Vér verðum að læra þetta. Vér viljum gjarnan ímynda oss að Guð meini ekki það, sem hann segir, að hann sé ekki svo mjög nákvæm- um. Jónas hugsaði auðsjáanlega þannig einu sinni líka, en hann komst að annari niðurstöðu. Þegar Guð segir Níníve þá meinar hann Níníve. Þegar hann segir: “Eigi er heldur annað nafn undir himninum, er menn kunna að nefna, er oss sé ætlað fyrir hólpnum að verða,” þá meinar hann ekki að þér leyfist að frelsast á einhvern annan hátt, sem þú munt sjálfur kjósa þér. Þegar hann segir: “Ef þér elskið mig, þá munuð þér halda mín boðorð,” (Jóh. 14 :i5-J þá meinar hann ekki aö þú getur valið úr þau boðorð, sem þig langar að halda. og svo að þú getir fótumtroðið hin. Þegar hann segir: “Minstu þess að lialda hvíldardaginn heilagan” (2. Mós. 20:8J, þá meinar hann ekki sunnudag- inn. Þegar hann segir: “Sjöundi dagur- inn er hvíldardagur,” þá meinar hann ekki fyrsta dag vikunnar. Hann mein- ar það, sem hann segir. Vér getum hagað oss eins og Jónas. ímyndað oss eins mikið og vér viljum, en vér, eins og Jónas, munum komast að raun um og finna aS hvert sporið, sem vér stígum í burtu frá Guði, verðum vér að endurtaka, ef að vér viljum verða

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.