Stjarnan - 01.11.1927, Qupperneq 7

Stjarnan - 01.11.1927, Qupperneq 7
STJARNAN 167 i'ví. Hann fylgdi kenningu hinna fornu helgu bóka. Hann viðurkendi þær. Hann kendi þær, og hann ávítaði menn fyrir a'ð trúa þeim ekki. Hann uppfylti skuggalögmálið. Hann uppfylti eða full- nægði kröfu siðalögmálsins, sem hann aldrei ibraut. Enginn gat sannað upp á hann synd. Enginn gat sannað upp á hann lagabrot. Ásakanir Gyöinga kenni- mannanna í þeim efnum voru ósannar. Þegar Jesús kom til ættborgar sinnar, þá las hann í samkunduhúsinu þennan yndislega kafla úr Gamlatestamentinu: “Andi drottins er yfir mér, af því að hann hefir smurt mig, til að flytja fátæk- um gleðilegan boðskap, hann hefir sent mig, til að boða bandingjum lausn og blindum að þeir skuli aftur fá sýn, til að láta þjáða lausa, til að kunngera hið þóknanlega ár Drottins.” Lúk. 4, 18-19. Es. 61, x. 2. Þennan spádóm sagðist hann sjálfur uppfylla fyrir augum áheyrenda sinna. Annað sinn sagði Meistarinn frá Naza- ret þetta: “Því aS ef þér tryðuð Móse, þá tryðuð þér mér, því að hann hefir ritað um mig. En ef þér trúið ekki ritum lians, hvernig ættuð þér þá að trúa orð- um mínum.” Jóh. 5,40,47- Enn öðru sinni sagði hann: “Þeir hafa Móse og spámennina, hlýði þeir þeim .... Ef þeir hlýða ekki Móse og spámönnunum, munu þeir ekki heldur láta sannfærast, þótt einhver rísi upp frá dauðum. Lúk. 16, Lærisveina sína ávítaði hann a þessa leið: “Ó, þér heimskir og tregir í hjarta t'l að trúa öllu því, sem spámennirnir hafa talað”. Lúk. 24,25. Og er Jesús tók að útleggja spádóma Gamlatestament- isins fyrir þessum lærisveinum sinum, þá fóru hjörtu þeirra að “brenna”. 32. v. Jesús ráðlagði lærisveinum sínum, að athuga spádóma Gamlatestamentisins. “Þegar þér því sjáið viðurstygð eyðing- arinnar, sem talað er um af Daníel spá- mannji, jstandandi á helgum stað—les- arinn athugi það—þá flýi þeir, sem eru í Júdeu upp á fjöllin.” Matt. 24,15, 16. Einu sinni spurði maður nokkur Meist- arann: “Hvað á eg að gera, til þess að eignast eilíft líf?” Meistarinn svaraði: “Ef þú vilt inn ganga til lífsins, þá hald boðorðin.” Matt. 19,16,17. Jesús benti honum á tíu boðorð Guðs. Boðorð Gamlatestatestamentisins, og Jesús — Meistarinn, sem allir þykjast fylgja, mundi segja þér, kæri lesari, hið sama þann dag í dag, ef þú legðir þessa spurn- ingu fyrir hann. “Alt, sem þér því viljið, aö aðrir menn geri yður, það skuluð þér og þeim gera, því þetta er lögmálið og spámennirnir.” Þessa guðdómlegu reglu viðurkenna allir. En hér segir Jesús skýrum orðum, að þessi fullkomna regla, sé fólgin í lögmál- inu og spámönnunum, að lögmálið og spámennirnir heimti þetta. Þó geta spjátrungar kallað Gamlatestamentið “hrafl,” “Gyðinglegar bábiljur” og ann- a8 verra, og reynt svo til að hylja skömm sína undir merki Meistarans frá Naza- ret. Dáfallegur orðaleikur! Þessi dásamlega fallega kenning Krists: “Verið þér því fullkomnir, eins og yðar himneski faðir er fullkominn,” er einnig tekin úr Gamlatestamentinu. Sjá 3. Móse bók 19, 2. Fjallræða Krists er af öllum talin fal- legasti kafli Nýjatestamentisins, og sælu- boðunin fallegasti kaflinn í fjallræð- unni. Það er vel maksins vert að bera saman nokkrar greinar í fjallræðunni við aðrar um sama efni í Gamlatestamentinu. Nýjat.: “Sælir eru fátækir í anda, því að þeirra er himnaríki.” Matt. 5, 3. Gamlat.: “Því að svo segir hinn hái og háleiti, hann sem ríkir eilíflega og heitir Heilagur: Eg bý á háum og heil- ögum stað, en einnig hjá þeim, sem hafa sundurkraminn og auömjúkan anda, til þess að lifga anda hinna auðmjúku og til þess að lífga hjörtu hinna sundur- krömdu.” Es. 57, 15. Nýjat.: “Sælir eru syngjendur, þvi að

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.