Stjarnan - 01.11.1927, Síða 15
STJARNAN
i75
*
kemur öt mánatSarlega.
ÍJtgefendur: The 'Western Canadian
Union Conference S.D.A. Stjarnan kost-
ar $1.60 um áritS í Canada, Bandarikj-
unum og á íslandi. (Borgist fyrirframj.
Ritstjðri og ráSsmaSur :
DAVID GUÐBRANDSSON.
Skrifstofa:
306 Sherbrooke St.. Winnipeg, Man.
Phonie: 31 708
sðist nýjan frið og nýjan kraft til þess
að boð Jesú Krist og hann krossfestan.
Eftir það bauð presturinn bibliu-kenn-
ara Ellu að nota ræðustólinn í kirkju
hans. Hinn tímabæri sannleikur Guðs
hefir því verið boðaður í fæðingarbygð
og ‘bæ Ellu Samson.
Ella Samson fann sannleikann um sál
mannsins, og fyrir milligöngu hennar,
veitti sannleikurinn margri mæddri sálu
hugfró og leiddi hana til þess Guðs
Lambs, er bar synd heimsins.
Pétur Sigurðsson, þýddi.
FRÉTTIR.
f flóðinu í Mississippidalnum síðast-
liðið sumar fórust 225,000 hestar, múlar,
nautgripir og svín ásamt 4,300,000 fugl-
um.
í tilraunum, sem gjörðar voru í rann-
sóknarstofum John Hopkins háskólans,
kom það í ljós að kvenmenn vinna fljót-
ara og með meiri nákvæmni en karlmenn;
en hinir síðarnefndu sýndu miklu þrosk-
aðri dómgreind. Samskonar . tilraunir
voru gerðar meðal skólakrakka og sýndi
það sig einnig þar, að stúlkurnar voru
fljótari og nákvæmari, en þegar til þess
kom að dæma um vigt og mál á ýmsum
hlutum, þá sköruðu piltarnir fram úr.
Frumbyggjar Ástralíu eru smámsam-
an að deyja út. Árið 1924 var tala þeirra
62,145, en árið 1926 var hún komin niður
í 59,296. Þeir eru svo að segja allir
heimilislausir flökkumenn.
Til þess að reyna að ná aftur þeim
heiðri og því ríkidæmi, sem Spánverjar
einu sinni höfðu, ætla þeir að halda tvær
miklar sýningar. Fyrri sýningin mun
nefnd verða “Spansk-Ameríska Sýningin
til heiðurs Kristofer Kolumbus.” Mun
hún haldn verða árið 1928 í borginni Se-
villa og mun hún opnast 12. október, dag-
inn, sem Kolumbus eygði hinn nýja heim.
Margir spanskir og amerískir bygginga-
meistarar eru að gjöra uppdrætti að
fögrum byggingum, sem munu verða hin
fínustu snildarverk. Tuttugu og fimm
lönd munu taka þátt í þessari sýningu.
Næsta sýningin mun haldin verða ári
seinna í borginni Barcelona. Spánn hef-
ir gjört öllum löndum heimsins boð um
að koma og sýna sínar fínustu vörur, af-
urðir og listaverk á þeirri sýningu. Hug-
myndin er sú að gjöra þá sýningu að
hinni stærstu, sem heimurinn nokkurn
tíma hefir séð.
Hin nýjasta stríðsflugvél á Englandi
er i raun og veru bryndreki loftsins. Hún
er hið stærsta flugskip í heimi. Vængirn-
ir eru svo stórir aS lítil flugvél mundi ef
til vill geta lent á þeim. Skrokkurinn er
af nikkel-stáli og alúminíum. Heitir hún
‘ íris II.” Hún lyftir sér frá sjónum
með 50 mílna hraða. Það eru fimm menn
á henni. Þeir matreiða með rafmagni og
hafa góðar rekkjur til að sofa í. Hún
getur haldið sér í loftinu í f jórtán klukku-
tíma í senn. Radíó-herbergið er sér og
hljóðalaust. Hún hefir einnig með sér
nægilegan forða af neyzluvatni.