Stjarnan - 01.01.1928, Blaðsíða 4
4
STJARNAN
margir góðir menn hættu viÖ a'Ö fram-
fylgja ætlun sinni. Það er í sannleika
sorglegt að sjá tuttugu og fjórar ungar
manneskjur láta lífið þannig, en sann-
leikurinn er sá, að hlutfallslega hafa
ekki farist nærri eins mörg mannslíf á
flugferðum yfir reginhöfin og fórust i
fyrstu siglingunum.
í Eiríks sögu rauða lesum vér:
“Svá segja fróðir menn, at á þvi sama
sumri, at Eirikr ra|uði fór at bygg*ja
Grænland, þá fór hálfr fjórði tögr skipa
ór Breiðafirði ok Borgarfirði, enn fjór-
tan kvámust út þangat; sum rak aftr, en
sum týndust. Þat var fimtán vetrum fyrr
en kristni var lögtekin á íslandi.” Bls. 2.
í fyrstu ferð Kólumbusar létu 39
manns lífið. f fyrstu ferð AAisco da
Gama frá Portúgal kring um höfða
Góðrar Vonar til Indlands fórust niutiu
manns. Magallanus hafði fimm skip
og 221 menn, þegar hann lagði af stað
í hina fyrstu ferð kring um hnöttinn, en
aðeins eitt skip og þrettán manns komu
aftur. Francis Drake misti einnig meiri
partinn af skipshöfnum sínum á sinni
ferð kring um hnöttinn. Svo vér sjá-
uni að jregar siglingarnar á reginhöfun-
um voru í harndómi sínum voru jrær
ekki nærri eins ugglausar og flugferðirn-
ar hafa reynst. Þegar næsta stríð skell-
ur á munu þeir flytja herflokkana
heimsálfanna á rnilli í loftförum.
E'innig þessu var fyrirsagt mörgum
öldum fyrir Krist. Spámennirnir fengu
að sjá loftförin i vitrunum sínum og
lýsa þeim á ýmsa vegu. Þegar Esajas
spámaður ritar um þau, kemst hann
þannig að orði: “Hverjir eru þessir,
sem koma fljúgandi eins og ský og sem
dúfur til búra sinna,” Es. 60:8. Sá
sem hefir séð stóran hóp af flugvélum
lenda í einu, mundi varla geta lýst jreim
betur. Seinna meir ritar einnig Nahúm
spámaður ýtarlega um flugvélarnar.
Fyrst talar hann um breytinguna á stríðs
útbúnaðinum. “Þeir,” segir hann, “skifta
hömum og fljúga burt.” Alt þetta höf-
um vér séð hinn síðastliðna áratug. Eyð-
endur jarðarinnar hafa skift hömum og
fljúga nú hvert sem þeir vilja. Og enn
fremur talar hann um flugvéíarnar í
höndum stríðsguðsins á þessa leið:
“Höfðingjar þínir eru eins og átvargar,
herforingjar jrínir eins og sægur af
engisprettum, er liggja á akurgerðunum
þegar kalt er; þegar sólin kemur upp,
fljúga jnær [vélarnar sem bera höfðingj-
ana og herforingjana] burt.” Nah. 3:
16, 17. Alt þetta sjáum vér fyrir aug-
rm vorurn og hvaða ástæðu getum vér
haft til að efast um innblástur og sann-
leika ritningarinnar ?
Ráðstcfna, í Genf.
Frá 20. júní til 4 ágúst síðastliðinn
sátu fulltrúar frá Bandaríkjunum, Bret-
landi og Japan í Genf á Svisslandi, til aö
ræða hvernig hægt væri að koma sér
saman um að minka herskipaflotana.
Fulltrúar frá ítalíu og Frakklandi voru
einnig viðstaddir, en aðeins til að hlusta
á Bandaríkjamenn og Bretar gátu ó-
mögulega komið sér saman, svo að þeir
gáfust að lokum upp. Síðan hafa þeir
gjört allar ráðstafanir til að smíða her-
skip svo tugum skiftir, til þess að vera
til taks, þegar næsta stríð skellur á.
Menn tala um friö, en búa sig undir
strið. Spámennirnir hafa lýst hugsun-
um og yfirborðs friðarræðum þeirra á
þessa leið:
“Og það skal verða á hinum síðustu
dögum ,að fjall það, er hús Drottins
stendur á, mun grundvallað verða á
fjallatindi og gnæfa upp yfir hæðimar,
og þangað munu lýðirnir streyma. Og
margar ])jóðir munu búast til ferðar og
segja: Komið, förum upp á fjall Drott-
ins og til húss Jakobs Guðs, svo að hann
kenni oss sína vegu og vér megum ganga
á hans stigum; því að frá Zion mun
kenning út ganga og orð Drottins frá
Jerúsalem. Og hann mun dæma meðál
margra lýða og skera úr málum vold-
ugra þjóða langt í burtu. Og þær munu