Stjarnan - 01.01.1928, Blaðsíða 5

Stjarnan - 01.01.1928, Blaðsíða 5
STJARNAN 5 smíða plógjárn úr sverðnm sínum og sriiðla úr spjótum sínum. Engin þjóð skal sverð reiða að annari þjóð, og ekki skulu þeir temja sér hernað framar. Hver mun búa undir sínu vintré og und- ir sínu fíkjutré, og enginn hræða þá.” Mika. 4:1-4. Hversu dýrðlegt mundi það ekki vera á þessari jörðu er alt þetta yrði. En þetta er einungis það, sem þeir segja með vörum sínum. Drottinn hefir í orði sinu opiriberað oss það, sem þeim býr innan brjósts og hvað þeir segja í hjörtum sínum og finnum vér það hjá spámanninum Jóel: “Búið yður í heilagt stríð! Kveðjið upp kappana! Allir herfærir menn komi fram og fari í leiðangur! Smíðið sverð úr plógjárnum yðar og lensur úr sniðl- um yðar! Heilsuleysinginn hrópi: Eg er hetja! Flýtið yður og komið, allar þjóðir, sem umhverfis eruð, og safnist saman ........ Hreyfing skal komn !á þjóðirnar og þær skulu halda upp í Jósafatsdal; því að þar mun eg sitja, til þess að dæma allar þjóðirnar, sem um- hverfis eru. Bregðið sigðinnni, því að kornið er fullþroskað; komið og troðið, því að vínlagaþróin er full, það flóir iit úr lagarkerunum, því að ilska þeirra er mikil. Flokkarnir þyrpast saman i dóms- dalnum; því að dagur Drottins er ná- lægur í dómsdalnum.” Jóel. 3:14-19. Hér fáum vér sanna mynd af valdi stríðsandans yfir þjóðunum. Friðar hial þeirra er ekki skildings virði, því að öfugstreymi er í huga þeirra. “Þeg- ar menn segja: ‘Friður og engin hætta,’ þá kemur 'snögglega tortíming yfir þá, eins og jóðsótt yfir þungaða konu, og þeir munu alls ekki undan komast.” 1. Þess. 5:3. Rétturinn er hrakinn á hæl. Það er víða sagt á þessum tíma, að sá sem hefir peningana, hafi réttinn. Oft virðist það vera svo og þó eru til stjórn- endur, lögreglustjórar, lögmenn og dóm- arar ,sem eru nógu kjarkmiklir til að verja sannleikann, hafna mútum og upp- kveða réttláta dóma. En því miður er það auðurinn, sem í fjölda mörgurn til- fellum vinnur málið, en ekki réttlætið. Stjarnan ætlar að bera upp dálitla sögu um heimsfrægt mál: Maður nokkur átti son, er Jón hét og var sjö ára gamall. Faðirinn, var, þegar þessi saga byrjar, nýbúinn að kaupa fjölfræðisbók afardýra i mörgum bindum. Faðirinn brýndi fyrir Jóni litla að snerta aldrei þessi bindi né líta í þau. En svo vildi til dag nokkurn er móðir Jóns fór út í bæ, til þess að kaupa inn fyrir heimilið, að hún við heimkomu sína, fann þessar dýru bækur tættar og rifnar á víð og dreif um alt stofugólfið. Alt benti til að Jón litli hefði gjört þetta í fjarveru móðurinnar. Nú kemur faðirinn heim úr vinnu og Jón litli af leikvellinum. Faðirinn fer að spyrja Jón, til þess að fá sönnun, en Jón litli neitar gjörsamlega að hann hafi verið riðinn við þetta ódáðaverk. Faðirinn trúir honum ekki og hótar að gefa honum hýðingu um kveldið, svo hr.rða að hann hafi aldrei fengið aðra eins. Á meðan hann er að bíða eftir refsingunni er hann látinn inn í dimman klefa og honum gefinn þur brauðbiti og vatnssopi. Þegar tími kom til að berja Jón litla, gekk móðirin á milli og segir: “Það getur nú skeð að strákanginn hafi ekki gert þetta.” Svo faðirinn ákveður að fresta hýðingunni um vikutíma, til þess að rannsaka málið betur, og Jón er lát- inn inn í dimma klefann aftur, þar sem honum er gefið aðeins brauð og vatn. Þegar svo vikan er á enda og faðir- inn ætlar að láta skríða til skarar og hýða Jón, þá gengur frænka Jóns, sem heldúr til á heimilinu, á milli og biður um frest. “Jæja,” segir faðirinn, “eg ætla að bíða þangað til um áramótin, en við

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.