Stjarnan - 01.01.1928, Blaðsíða 16

Stjarnan - 01.01.1928, Blaðsíða 16
Aminningar. MeS þessu hefti byrjar Stjarnan á tíunda árinu síðan hún hóf göngu sína. Hversu fljótt líður ekki tírninn. Marga erfiÖleika hefir hún átt viÖ að stríða, en þó hafa sólskins- og gleðidagarnir veriS margir. Hin mörgu og hlýju bréf frá kaupendunum, gjafirnar, sem hafa hjálpað henni til að geta staðið í skilum allan þennan tíma ,og áhuginn, sem margir hafa sýnt á þeim boðskap, er Stjarnan flytur, hafa gjört henni lífið ánægjulegt. Aldrei hafa tímarnir verið eins hættulegir og einmitt núna og aldrei hefir verið eins mikil þörf á sannleiksboðskap og á þessum tima. Stjarnan hefir ásett sér að flytja lesendum sínum þennan iboðskap á þessu ári, sem nú fer í hönd. Með þessu blaði fylgir umslag, sem hefir utanáskrift Sjtörnunnar. Fleygðu því ékki frá þér, heldur notaðu það við fyrstu hentugleika, til að senda Stjörn- unni andvirðið, þá gjörðu svo vel að senda póstávísun en ekki lausa peninga, því að flest þess háttar bréf týnast á leiðinni. Og þegar þú sendir andvirðið, þá gleymdu ekki aS rita nafn þitt og utanáskrift þína i hornið á umslaginu og hefir þú tíma og tækifæri, þá láttu rniða inn í líka. Á ári hverju fáum vér nafnlausar peningasendingar, en ekki viturn vér hvaðan þær koma eða til hvers þær eru ætlaðar. Fyrir fáum dögum fengum vér póstávísun, sem stimpluð hafði verið á Lundar, Man., en ekkert nafn af neinu tægi fylgdi henni, hvorki á umslaginu né á ávísuninni, og vitum vér ekki hvort þessir peningar eiga að ganga til Stjörn- unnar, eða kristniboðsins eða fyrir bækur. Þeir, sem senda kunningjum á fslandi blaðið, eru vinsamlegast beðnir um að gefa ráðsmanni þess nöfn og utanáskriftir þeirra þegar þeir borga blaðið og eins þegar þeir segja því upp. Vér sendum æfinlega kvittun fyrir allar sendingar, en ef þess háttar bréf týnast, þá þarf enginn að vera áhyggjufullur út úr því, því á umslag blaðsins aft- an á nafnið eru tvær tölur, sem sýna hvenær blaðið hefir verið borgað. Fyrri talan er mánaðartala og síðari talan er ártal. Þegar ofannefndum reglum er fylgt léttir það starf vort og gjörir oss það auðvelt að halda reglu á öllu. Sendum vér öllum kaupendum alúðar þakkir fyrir liðna árið með beztu ósk- um um blessunarríkt ár. Virðingarfylst, D. G.

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.