Stjarnan - 01.01.1928, Qupperneq 12

Stjarnan - 01.01.1928, Qupperneq 12
12 STJARNAN hún er honum orðin, og ganga i ljósinu, sem skín frá Guðs orði, eins langt og það er honum opinberað, hvað sem það kostar og hvernig svo sem afleiðingarn- ar verða. Eins og Farísearnir forðum, sem ekk; geðjaðist fimta boðorðiS, er segir: “Heiðra föður þinn og móður þína,” heldur tóku upp á einhverju öðru, til þess að geta farið í kring urn það eða ónýta það, þannig eru á vorum dögum trúarbragðakennarar, sem ekki geSjast f iórða boðorðið, sem segir: “Sjöundi dagurinn er hvíldardagur,” (2. Mós. 20: 8-1 i.J, heldur koma þeir með afsakanir, sem þeir vona muni réttlæta höfnun og yfirtroðslu hins sama boðorðs, til þess að þeir geti haldið fast við mannasetn- ingar, er kenna að sunnudagurinn sé hvíldardagur kristinna manna eða Drott- ins dagur. Af því aö það er þess virði að athuga hvernig það skeður, ætlum vér að skora á nokkura af hinum fremstu leiðtogum meðal þeirra, sem leita þessara nútím- ans bragða, og sem eru meðlimir þessa Biblíuskóla, að gefa oss ástæður sinar fyrir því, að hafna boðum Guðs og í staðinn aðhyllast mannaboð og manna- lærdóma. (Vér gefum í eftirfarandi köflum að- eins upphafsstafina í nafni þeirra presta sem eru meðlimir Biblíuskólans, en vér getum fullvissað lesendurna um að þess- ir prestar hafa haldið á (lófti leinmitt þess konar kenningum, sem hér er til- einkaðað þeim.J. Var Frelsarinn hvíldardagshaldari eða hvíldardagsyfirtroðslumaður? Vér skulum fyrst biðja séra G. að segja oss, hvernig hann fari í kring um eöa ónýti það Guðs iboðorð, sem segir: “Sjöundi dagurinn er hvíldardagur helg- aður Drotni, Guði þínum: þá skalt þú ekkert verk vinna.” 2. Mós. 20:8-11. Mínar ás.tæður fyrir því, að gefa því boðorði engan gaum eru þessar: Frels- arinn braut sjálfur hvíldardagsboðorðið meðan hann var hér á jörðinni og með því að brjóta boðorðiö viðvíkjandi hvíldardegi Drottins feta eg í fótspor Krists. Já, vér munum eftir því, að þú fyrir skömmu gafst þessa ástæðu í blaðinu “Lincoln Evening News.” Viltu nú vera .svo góður að svara fáeinum spurn- ingum ? H'vað er synd ? Synd er lagabrot. 1. Jóh. 3:4. Það er rétt. Hvað mundi Jesús hafa orðið á þeirri mínútu, sem hann hefði brotið hvíldardagsboðorðið ? Hann mundi hafa orðið syndari. Þú svarar rétt . En sem syndari gat hann ómögulega verið Erelsari syndara. Afsökun þín, séra G. mundi svifta oss Frelsaranum. En hulstaðu nú á það, sem stendur í Jóh. 15:10: “Ef þér hald- ið mín boðorð, þá standið þér stöðugir í eisku minni, eins og eg hefi haldið boð- orð föður míns og stend stöðugur í elsku hans.” Er hvildardagurinn eitt af því, sem Guð hefir gefiS boðorð viðvíkj- andi ? Já, það er hann. Jæja, fyrst hvíldardagurinn er boðað- ur af Föðurnum og Kristur hélt boðorð Föður síns, þá hlýtur Kristur að hafa haldið hvíldardagsboðorðið. Er það ekki rétt? Eg sé að séra A., sem er prestur í fyrsta dags Adventista kirkjunni í——— réttir upp höndina. Vér gefum honum orðið. Þú veizt að Kristur lifði undir lög- málinu og þess vegna var það auðvitað skylda hans að halda hvíldardvginn Já, vér sáum þessa staðhæfingu í grein, sem þú fyrir nokkru ritaðir í “Lincoln Daily Star.” Séra A. og séra G. reyna báðir að verja sunnudaginn og ]ió er vitnisburður þeirra eins og vitnis- burður ljúgvottanna, sem vitnuðu á móti Frelsaranum; þeim ber ekki saman. Ef séra A. hefir á réttu að standa og það hefir hann vissulega, þá komumst

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.