Stjarnan - 01.09.1932, Side 1
STJARNAN
Mál Guös
MóÖurmáliÖ er mál GuÖs. Hver einasta þjóÖ gerir
heimtingu á J>eim heiÖri og um þær allar má segja að
það sé satt, því að móöurmálið er mál heimsins. Það
er eins alment og móðurdómurinn og Guð hefir gefið
orð sitt á móðurmáli heimsins. Það er þess vegna að
það má þýða það á hvaða mál sem er undir himninum,
og það er þess vegna að það finnur hvern mann, hver
svo sem hörundslitur og mál hans kunna að vera, og
hver maður finnur það á því máli sem hann er fæddur
í.—Hvað rnyndi hafa orðið um það ef það hefði verið
ritað á máli vísindanna eða á mállyskum sálfræðinnar ?
Hlvað myndi hafa orðið um það ef það hefði verið
ritað í þjóðernislegum setningum. Biblían er hvorki
gyðingleg né grísk, hvorki rómversk né egypsk,
afrikönsk né kínversk, hvorki indversk né bresk. Hún
tilheyrir öllum jafnt. Hún talar um alsherjar þarfir
á alsherjar máli. Guð ritaði bók sína fyrir allar þjóðir
undir öllum kringumstæðum og á öllum öldum. Hún
er bók Guðs fyrir hvern mann. Hún heimtar ekki
aðra hæfileika en hið mannlega eðli.”—S. Chadwick.
SEPT. 1932 WINNIPEG, MAN. Verð 150