Stjarnan - 01.09.1932, Qupperneq 2
130
STJARNAN
Nýi sáttmálinn
“0g þetta er máttmáli minn viÖ þá,
^egar eg hefi tektö burt syndir þeirra.”
Róm. 11 -.27.
Hvenær mun GuÖ burt taka syndir þín-
ar og gjöra þenna sáttmála að veruleika
í lífi þínu? Hann segir: “Allir hafa
syndgað og skortir Guðs dýrð. Hann
bíður þess með þolinmæði að þú stað-
næmist á vegi syndarinnar og snúir þér
til hans, og gefir honum hjarta þitt.
Þú veizt þú ert syndari, því “af lög-
máli kemur þekking syndar.” Róm. 3 :20.
Páll postuli segir: “Þannig er þá lög-
málið heilagt og boðorðið heilagt, réttlátr
og gott.” Róm. 7:12. Það er mælikvarði
Guðs fyrir því, sem rétt er, sem sýnir þér
syndir þínar, svo þú verðir knúður til að
leita Jesú og fá fyrirgefningu.
Þessi sáttmáli, sem Guð gerir við oss,
þegar hann burt tekur syndir vorar, er
einnig nefndur á öðrum stöðum: “En til
Zíonar kemur hann sem frelsari, til
þeirra í Jakob, sem hafa snúið sér frá
syndum sínum,” segir Drottinn.
Enn aftur: “Sjá, þeir dagar munu koma,
segir Drottinn, að eg mun gera nýjan
sáttmála við ísraels hús of Júda hús, ekki
eins og þann sáttmála, er eg gerði við
feður þeirra, þá er eg tók í hönd þeirra
til að leiða þá út af Egyptalandi, en þann
sáttmála við mig hafa þeir rofið, þótt
eg væri herra þeirra, segir Drottinn. En
í þessu skal sáttmálinn fólginn vera, sá,
er eg geri við ísraels hús eftir þetta, segir
Drottinn. Eg legg lögmáll mitt þeim í
brjóst og rita það á hjörtu þeirra, og eg
skal vera þeirra Guð og þeir skulu vera
mín þjóð.” Jer. 31:3i-33-
Vér lifum undir nýja sáttmálanum, sem
inniheldur hið sama lögmál, með þeim
mismun, að í stað þess að vera ritað á
steintöflur, er það nú skrifað á holdleg
spjöld hjartans fyrir starf og áhrif heilags
anda. Vér leggjum af að syndga og
tökum á móti réttlæti Krists. Hans dýr-
mæta blóð forlíkar fyrir vorar syndir, svo
vér erum teknir til náðar af Guði, og fyrir
kraft Krists hlýðum hans heilaga vilja.
Þannig er lögmálið orðið typtari vor til
Krists, til þess að vér réttlætumst af trú.
(Gal. 3:24.). Nú sjáum vér hversu
nauðsynlegt lögmálið er, því þar sem ekk-
ert lögmál er, þar er engin synd, og þar
sem engin synd er, þar er engin þörf á
frelsara.
Ef vér berum ávöxt andans, þá mun-
um vér fyrir náð Krists lifa í samræmi
og hlýðni við Guðs heilaga lögmál, breyta
eins og hann breytti, og hann segir um
sjálfan sig: “Að gera vilja þinn, Guð
minn, er mér yndi, og lögmál þitt er hið
innra í mér.” Sálm. 40:8. “Ekki hefir
hann (Faðirinn) látið mig einan, því eg
geri ætið það sem honum er þóknan-
legt.” Jóh. 8:29. Jesús veit af eigin
reynslu hvað lögmál Guðs í hjarta manns-
ins getur gert.
Páll postuli skýrir þetta er hann segir:
“Réttlættir af trú höfum vér því frið
við Guð fyrir Drottinr. vorn, Jesús
Krist.” “Gerum vér þá lögmálið að engu
með trúnni? Fjarri fer því, heldur stað-
festum vér lögmálið.”
“Því að þáð sem lögmálinu var ö-
mögulegt að því leyti sem það mátti sín
einkis fyrir holdinu, það gerði Guð, er
hann, með því að senda sinn eingetinn
son í líkingu syndugs holds og vegna
syndarinnar, fordæmdi syndina í hold-
inu, til þess að réttlætiskröfu lögmáls-
ins yrði fullnægt hjá oss, sem ekki göng-
um eftir holdinu heldur eftir andanum.”
Róm. 5:1; 3:31; 8 :3.4.
í þessi 6,000 ár síðan heimurinn var
skapaður, höfum vér smámsaman sé<5
hvernig Guð framkvæmir frelsunar áform
sitt. Hann breytist ekki. Vilji hans og
lögmál hans er óumbreytanlegt. Menn
hafa reynt að afnema lögmál Guðs og
(Framh. á bls. 132)