Stjarnan - 01.09.1932, Page 5

Stjarnan - 01.09.1932, Page 5
STJARNAN 133 Davíð Djarfur og fríhyggjumennirnir A tkvœðcigreiðslan. Menn klöppuöu þegar DavíÖ Djarfur kom upp á ræðupallinn. Menn biðu þess með óþreyjufullri eftirvænting, hvað hann hefði að segja. Nú var tími kominn að hann léti til skarar skríða. Hann gekk fram á brún ræðupallsins og mælti: “Lítið á hina voldugu Babýlon í blóma sínum. Það var borg sem vænta mátti að gæti staðið til eilífðar. Hin mikla borg varð æ ríkari og voldugri og naut aðdá- unar fornþjóðanna. “Hjún þurfti ekki að sækja vörur sín- ar til annara landa, hún gat sjálf frarn- leitt allar nauðsynjar sinar. Babýlon fann upp á því að nota stafróf, hún var frábær í reikningslist. Hún fann upp verkfæri til að mæla tímalend og aðferð til að byggja stórbyggingar úr lélegasta efni, leir. Hún fann upp á að fægja, bora og grafa á gimsteina. Kaldear tóku mynd- ■ir af mönnum og dýrum, þeir náðu mikilli fullkomnun í dúkavefnaði. Þeir rannsökuðu gang himintunglanna, stund- uðu málfræði sem vísindagrein, höfðu mjög góða og nákvæma löggjöf, og við- urkendu nytsemi þess að hafa nákvæm ártöl. Babýlon lagði grundvöllinn undir flestar vísindagreinar. Mikið af listum og vísindum Grikkja kom frá Babýlon. “Aldrei fyr hafði slík borg verið bygð. Hinir sterku múrar umhverfis hana voru 200 fet á hæð, og svo voru þeir þykkir, að fleiri vagnar gátu keyrt uppi á þeim hlið við hlið. Turnarnir á höllum hennar og musterum gnæfðu í loft upp, hátt yfir alla múra og glitruðu í sólskininu. Þeir sáust í margra mílna fjarlægð. Hér var hiö skrautlega Belus musteri og hinir frægu hengi garðar, bygðir eins og blóma- standar eða tröppur hver annari hærri. “Babýlon var ekki einungis drotnari heimsins, heldur stóð hún einnig mitt i gróðursælasta héraði hins þá þekta heims. Jörðin var svo frjósöm, að Heródótus sagnaritari óttaðist fyrir að hann yrði álitinn lygari, ef hann greindi frá, hvað hann hafði horft á að framleitt var úr jörðunni. Nú stóð hr. Einarsson upp svo ræðu- maður hætti strax að tala. “Allir, sem hér eru viðstaddir vita þetta um Babýlon,” sagði hann, “vér komum hingað til að heyra þig kollvarpa van- trúnni, en ekki til að hlusta á fyrirlestur um dýrð og veldi Babýlonar, hversu fróð- legur sem hann annars kann að vera.” “Það gleður mig að þú kannast við það sem eg hefi bent á viðvíkjandi Babýdon,” svaraði ræðumaður, “og þetta er í mjög nánu sambandi viS umtalsefni mitt, því jafnvel áður en Babýlon hafði komist upp á hæsta frægðartindinn, sem stjórnandi heimsins, þá sagði spámaður nokkur ótví-

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.