Stjarnan - 01.09.1932, Síða 6

Stjarnan - 01.09.1932, Síða 6
134 STJARNAN ræÖum or<5um að Babýlon, prý’ði koiiungs- ríkjanna og fegurS Kaldea mundi verÖa eins og þegar Guð umturnaði Sódóma og Gómorra. (Jes. 13:19.). “Þetta er einföld setning, en hún mót- mælir alveg framsögn þinni, aÖ spádómar Bibliunnar líkist Delphisku goðasvörun- um, svo aÖ hvaÖ sem fram kemur megi leggja svo út sem það sé uppfylling spá- dómanna, svo tviræðir séu þeir. “Þegar spámaðurinn leit fram í tímann þá var sem hann segði við sjálfan sig: Eg sé Babýlon er vel víggirt, múrar hennar virðast óvinnandi. Hiún er voldug mjög og hin stærsta borg heimsins, samt sem áður mun þessi volduga borg verða eins gjörsamlega eyðilögð eins og Sódórna og Gómorra. “Var hægt að tala skýrara? Og nú, er vér lítum til baka yfir sögu borgarinnar, getur þá nokkur í svo fáum orðum, eða með nokkrum orðum betur lýst núverandi ástandi hinnar fyrverandi voldugu borgar, sem þá drotnaði yfir heiminum. “Þessi spámaður sá þig, hr. Einarsson, og aðra vantrúarmenn nútímans, og ásetti hann sér að setja spádóminn fram, svo einfaldan og ótvíræðan, að það væri ó- mögulegt að taka meir en eina meiningu út úr honum. Svo heldur hann áfram í 20. versinu: “Hún skal aldrei framar af mönnum bygð vera, Itynslóð eftir kyn- slóð skal þar enginn búa; enginn Arabi skal slá þar tjöldum sinum, og engir hjarðmenn bæla þar fénað sinn.” “Er nokkuð tvírætt í þessurn orðum? Er nokkur hér, sem ekki skilur þau? “En spámaðurinn lætur ekki hér við staðar numið. Hann vissi að vantrúar- menn mundu segja, eins og þú hefir sagt, að spádómarnir væru ekki áreiðanlegir. svo eftir að hann hefir fullyrt að hin voldugasta borg í heimi yrði eyðilögð svo gjörsamlega, aS enginn rnaður mundi dvelja þar, þá segir hann frá hverjir rnundu hafast við í rústunum: “Urðar- kettir skulu liggja þar og húsin fyllast af uglum, strútfuglar skulu halda þar til og skógartröll stökkva þar um. Sjakalar skulu kallast á í höllunum og úlfar í bí- lífis sölunum. Tími hennar nálægist, 0g dagar hennar munu eigi undan dragast.” Jes. 13 :2i. 22. “Þótt spádómurinn væri skýr þá sýnd- ist hann svo ómögulegur, að flestir, sem hann heyrðu mundu álíta að spámaður- inn hafi annaðhvort farið rangt með mál- ið, eða að hann hafi verið viti sínu fjær. En Jeremía styður Jesajas í þessu efni. og það sem spámenn þessir rituðu er skýrt og ótvírætt, hvað sem einstaklingar eða þjóðir hugsa eða segja um boðskap þeirra. “Úr þér skulu menn ekki sækja hornsteina, né undirstöðusteina, heldur skalt þú verða að eilífri auðn — segir Drottinn.” “Og Babel skal verða að grjóthrúgu, að sjakala bæli, að skelfing og háði, enginn skal þar búa.” Nú stóð Einarsson upp og sagði: “Ef menn vita hvað framundan er þá geta þeir verið viðbúnir. Fyrst slíkur boðskap- ur um algjöra eyðileggingu var fluttur, þá hefði fólkið vissulega verið vart urn sig, ef það hefði vitað um þessa spá- dóma.” “Já, innbyggjendur Babýlonar hefðu getað notað vit sitt, fé og krafta til að reyna að komast hjá forlögum sínum, en það hefði alt orðið árangurslaust, því Drottinn segir fyrir munn Jeremía: “þó að Babel hefsji sig til hirnins og þó hún gjöri vígi sitt svo hátt, að það verði ó- kleift, þá mun þó frá mér koma eyðendur yfir hana, segir Drottinn.” “Látið ekki hugfallast og verSið ekki hræddir við tið- indin sem heyrast í landinu, þegar þessi tíðindi koma þetta árið og því næst önnur tíðindi annað árið, og ofbeldi er framið í landinu og drotnari rís móti drotnara.” Jer. 51:53, 56. “Býr nokkur mannleg vera í Babýlon nú á thnum? Ekki ein einasta. Hver dirfist að mótmæla sannleika spádómanna viðvíkjandi þessari borg? Hr. Einarsson, eg ibeini þessari spurningu beinlínis að

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.